Óttast að grágæs verði seld sem heiðagæs

Þeir sem gefið hafa umsögn um áformað sölu­bann á grá­gæs segja slíkt ekki geta bjargað grá­gæsa­stofn­inum eitt og sér.

Óttast að grágæs verði seld sem heiðagæs

Sölubann er ekki að fara að virka eitt og sér til frið­unar á grá­gæs þar sem hún verður þá seld sem heiða­gæs til stór­kaup­enda eins og veit­inga­staða,“ segir Borgar Ant­ons­son, veiði­maður til rúm­lega þriggja ára­tuga, í umsögn um áformað sölu­bann á grá­gæs. Í ljósi þess að grá­gæsum hefur fækkað mikið hyggst umhverf­is­ráðu­neytið banna útflutn­ing og sölu á grá­gæs.

Umsagn­ar­að­ilar draga flestir í efa að sölu­bann sé væn­legt til árang­urs. Borgar stingur t.d. upp á því að veiði­tíma­bilið verði stytt.

Jónas Egilsson telur sölu­bann og stytt­ingu veiði­tíma mögu­lega vera fyrstu skref í að verja stofn­inn en mik­il­væg­ast sé að skoða lífs­skil­yrði gæsanna betur til að kom­ast að því hvað hafi valdið fækkun og breyt­ingum í stofn­stærð, fyrir utan það aug­ljósa; veið­arnar.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Eina sem ég get gert í þessu er að kaupa enga gæs, hvorki lifandi né dauða.
    1
  • Ingimundur Stefánsson skrifaði
    Snubbótt, DV-leg frétt, ekki rannsóknarfrétt eða heildarumfjöllun um stöðu gæsa. Álit t.d. Skotveiðifélags Íslands vantar, s.s. " Afstaða SKOTVÍS er sú að í ljósi þess að fjölgun var í talningum (innsk.grágæs) 2021 í UK og að veiðin hafi dregist saman úr 45.000 fuglum í 26.000 árið 2022 þá ætti sölubann eitt og sér að duga sem fyrsta skref.
    Veiðarnar í dag valda ekki stórfelldri fækkun en sjálfsagt að setja á sölubann til að hjálpa stofninum að ná sér á strik.

    Að fara í margar aðgerðir í einu geri ómögulegt að meta árangurinn af hverri aðgerð fyrir sig. Við höfum reynslu af því vegna veiðistjórnunar á rjúpu.

    Það þurfa líka að liggja fyrir sterk rök fyrir styttingu veiðitíma og af hverju sölubann eitt og sér ætti ekki að duga."

    Ennfremur mætti fjalla um sterkan heiðagæsastofninn, hve fljótt á hausti hann flýgur burt og því hve snemma mætti etv. setja sölubann á gæsir sem dæmi.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár