Forstjóri Ísteka segir „allt tal um dýraníð“ dæma sig sjálft

Til að rann­saka hvort að fleiri fyl­fullar merar hafi drep­ist í tengslum við blóð­töku í fyrra en Ísteka til­kynnti hefur að sögn for­stjóra Mat­væla­stofn­unar verið óskað eftir frek­ari upp­lýs­ingum frá Dýra­vernd­ar­sam­bandi Íslands. Sam­bandið seg­ist hafa áreið­an­legar heim­ildir fyrir því að dauðs­föllin séu mun fleiri en þau átta sem til­kynnt voru. Ísteka hafnar því alfarið.

Forstjóri Ísteka segir „allt tal um dýraníð“ dæma sig sjálft
Blóð­merar Fyl­fullar hryssur fram­leiða með­göngu­hormón sem þykir eft­ir­sókn­ar­vert til fram­leiðslu á frjó­sem­is­lyfi fyrir annan búfénað, s.s. svín og naut­gripi. Ísteka kaupir blóð af bændum sem halda blóð­merar og efnið sem unnið er úr blóð­inu er aðal­lega selt til Þýska­lands. Mynd: Pexels

Mat­væla­stofnun (MAST) hefur sent Dýra­vernd­ar­sam­bandi Íslands (DÍS) beiðni um að fá frek­ari upp­lýs­ingar um dauðs­föll mera í tengslum við blóð­töku á vegum Ísteka sem sam­bandið greindi frá í til­kynn­ingu í gær.

Í til­kynn­ing­unni sagð­ist sam­bandið hafa áreið­an­legar heim­ildir fyrir því að mun fleiri hryssur hefðu drep­ist við blóð­töku í fyrra en þær átta sem Ísteka til­kynnti Mat­væla­stofnun um. DÍS hafi upp­lýs­ingar um dauðs­föll á að minnsta kosti tíu bæjum og á einum þeirra hafi fjórar hryssur drep­ist. Krefst sam­bandið þess að blóð­taka úr fyl­fullum hryssum verði taf­ar­laust bönnuð.

Þessu hafnar Arnþór Guð­laugs­son, for­stjóri Ísteka. „Ég veit ekki hvaðan DÍS hefur sínar upp­lýs­ingar og vona að þau komi þeim í réttan far­veg til okkar ann­ars vegar og MAST hins vegar. Meðan ég hef þau gögn ekki leyfi ég mér …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu