Hrina dóma yfir burðardýrum

Á tveggja mán­aða tíma­bili voru átta burð­ar­dýr stöðvuð á Kefla­vík­ur­flug­velli með fíkni­efni. Í sex til­fellum gerði fólkið til­raun til að smygla kóka­íni hingað til lands. Öll nema eitt voru með hreint saka­vott­orð. Sam­an­lagt var fólkið sem um ræðir dæmt í ríf­lega sjö og hálfs árs fang­elsi.

Hrina dóma yfir burðardýrum
Fjögur þeirra sem hafa verið dæmd í fang­elsi vegna inn­flutn­ings fíkni­efna að und­an­förnu voru með efnin inn­vortis. Kona sem var dæmd í Hér­aðs­dómi Reykja­ness í morgun var með 42 pakkn­ingar af kóka­íni inn­vortis. Mynd: Af Facebooksíðu Lögreglunnar á Suðurnesjum frá árinu 2020

Á mán­að­ar­tíma hafa fallið dómar í sjö málum yfir átta erlendum rík­is­borg­urum sem komið hafa hingað til lands sem burð­ar­dýr í fíkni­efna­málum. Í sex til­vikum af sjö reyndi fólkið að smygla kóka­íni til lands­ins. Kolbrún Bene­dikts­dóttir vara­hér­aðs­sak­sókn­ari segir ekki óal­gengt að það komi hrinur af fíkni­efna inn­flutn­ings­málum á vorin og í byrjun sum­ars. Mála­fjöld­inn nú sé orð­inn sam­bæri­legur og hann var fyrir Covid far­ald­ur­inn en á meðan á honum stóð fækk­aði málum veru­lega. 

Allir dóm­arnir féllu í Hér­aðs­dómi Reykja­ness, enda var fólkið í öllum til­vikum stöðvað og hand­tekið á Kefla­vík­ur­flug­velli við kom­una til lands­ins. Um er að ræða fjóra karl­menn og fjórar konur í sjö aðskildum málum, sem fyrr segir. Í sex mál­anna var um að ræða inn­flutn­ing á kóka­íni, sam­tals rúm sex kíló. Í sjö­unda mál­inu var um að ræða inn­flutn­ing á miklu magni af metam­fetamíni, rúmu kílói af 81 pró­sent hreinu efni.

Brotin voru framin á tíma­bil­inu 19. apríl til 21. júní. Alls var kókaín magnið sem fannst rétt rúm 6000 grömm, af mis­mun­andi styrk þó. Alls voru upp­kveðnir fang­els­is­dómar í mál­unum 92 mán­uðir. Ekki kemur fram nema í einu til­felli hvers lenskt fólkið er en öll eru þau erlendir rík­is­borg­arar. Fólkið var að koma víða að frá Evrópu hingað til lands en Kolbrún segir að oft­ast sé upp­hafs­staður fíkni­efna­smygls hingað til lands Spánn, og ekki sé ólík­legt að fólkið hafi komið þaðan, með milli­lend­ingum ann­ars staðar í Evrópu.

Með 42 pakkningar af kókaíni innvortis

Nýjasti dóm­ur­inn er frá því í morgun en þá var kona dæmd til sjö mán­aða fang­els­is­vistar. Hún var 18. júní síð­ast­lið­inn ákærð fyrir stór­fellt fíkni­efna­laga­brot. Hún hafði komið til lands­ins með tæp 500 grömm af kóka­íni til Íslands frá París 18. júní. Kókaínið sem var í 42 pakkn­ingum flutti konan inn­vortis til lands­ins. Fram kemur að styrk­leiki efn­is­ins hafi verið 79 pró­sent, ætl­aði til sölu­dreif­ingar hér á landi í ágóða­skyni. Konan ját­aði sök fyrir dómi í morgun.

Nokkuð er um að burð­ar­dýr reyni að smygla fíkni­efnum inn­vortisLög­reglan á Suð­ur­nesjum birti þessa röntgen­mynd fyrir nokkrum árum og sagði frá því að nokkru fyrr hefði tví­tugur Íslend­ingur sem kom með 42 pakkn­ing­ar inn­vort­is til lands­ins veikst lífs­hættu­lega þegar ein pakkn­ing­in lak.

Í dómnum segir að með „ský­lausri játn­ingu“ sem sam­rým­ist rann­sókn­ar­gögnum máls­ins sé sannað að hún hafi gerst sek um þá hátt­semi sem fram komi í ákæru. Konan krafð­ist væg­ustu refs­ingar sem lög leyfa og að þeir dagar sem hún sat í gæslu­varð­haldi verði dregnir frá dæmdri refs­ingu. Greint er frá því í dómnum að sam­kvæmt saka­vott­orði sé þetta í fyrsta sinn sem konan verður upp­vís að refsi­verðri hátt­semi. Segir að til­lit verði tekið til þess og að hún ját­aði brot sín hjá lög­reglu og fyrir dómi þegar refs­ing er ákvörðuð, einnig að hún hafi sýnt mikla iðrun fyrir dómi.

„Af fyr­ir­liggj­andi gögnum verður ekki ráðið að ákærða hafi verið eig­andi nefndra fíkni­efna eða tekið þátt í skipu­lagn­ingu á kaupum og inn­flutn­ingi þeirra til Íslands“
úr dómi Hér­aðs­dóms Reykja­ness

Þá er við ákvörðun refs­ingar tekið til­lit til þess að konan var ekki eig­andi fíkni­efn­anna, hún var það sem kallað er burð­ar­dýr. „Af fyr­ir­liggj­andi gögnum verður ekki ráðið að ákærða hafi verið eig­andi nefndra fíkni­efna eða tekið þátt í skipu­lagn­ingu á kaupum og inn­flutn­ingi þeirra til Íslands með öðrum hætti en þeim að sam­þykkja að flytja efnin til lands­ins gegn greiðslu.“ Þá segir í dómnum að á hinn bóg­inn verði ekki fram­hjá því horft að ákærða hafi flutt tölu­vert magn af sterku kóka­íni til lands­ins sem ætlað hafi verið til sölu­dreif­ingar hér á landi. 

Fimm burðardýr dæmd á fimmtudaginn 

Fjórir dómar í sam­bæri­legum málum voru kveðnir upp í Hér­aðs­dómi Reykja­ness á fimmtu­dag­inn í síð­ustu viku og fimm mann­eskjur dæmdar í fang­elsi fyrir að hafa flutt efni til lands­ins. 

Þeirra á meðal er kona sem var á fimmtu­dag dæmd fyrir að hafa 21. júní síð­ast­lið­inn flutt til lands­ins rétt tæp­lega 330 grömm af kóka­íni, að styrk­leika 56-57 pró­sent. Fíkni­efnin flutti hún inn falin inn­vortis með flugi frá Osló til Kefla­vík­ur­flug­vallar. Hún ját­aði brotið við þing­fest­ingu máls­ins. Saka­vott­orð hennar lá ekki fyrir í mál­inu en sam­kvæmt upp­lýs­inga­skýrslu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum hefur konan áður komið við sögu vegna stór­fellds fíkni­efna­inn­flutn­ings frá Frönsku Gíneu til Frakk­lands. Þá hefur hún sam­kvæmt spænskum yfir­völdum setið í fang­elsi þar í landi vegna fíkni­efna­inn­flutn­ings.

Í dóms­orði segir að ekki verði séð af rann­sókn­ar­gögnum að konan hafi verið eig­andi fíkni­efn­anna þó hún hafi sam­þykkt að flytja þau til lands­ins gegn greiðslu. Var hún dæmd til sex mán­aða fang­els­is­vistar en til frá­dráttar kom gæslu­varð­halds­vist frá 22. Júní. 

Þá var karl­maður dæmdur til fang­els­is­vistar í tvö ár og sex mán­uði í Hér­aðs­dómi Reykja­ness á fimmtu­dag. Hann var hand­tek­inn við komu til Kefla­vík­ur­flug­vallar 1. maí síð­ast­lið­inn en hann hafði í fórum sínum tæp 3000 grömm af kóka­íni, að styrk­leika 86-87 pró­sent, falin í tveimur pakkn­ingum undir fölskum botni í ferða­tösku sinni. 

Maðurinn ját­aði sök afdrátt­ar­laust fyrir dómi. Samkvæmt saka­vott­orði hafði hann ekki áður orðið upp­vís að refsi­brotum og af fyr­ir­liggj­andi gögnum varð ekki ráðið að hann hafi verið eig­andi fíkni­efn­anna eða tekið þátt í skipu­lagn­ing á kaupum þeirra og inn­flutn­ingi með öðrum hætti en að hafa sam­þykkt að flytja þau til lands­ins gegn greiðslu. Frá fang­els­is­vist dregst gæslu­varð­halds­vist hans frá 2. maí til 20. júlí. 

Kókaín í þremur niðursuðudósum

29. apríl síð­ast­lið­inn var kona stöðvuð í Leifs­stöð og fund­ust í far­angri hennar um 1.500 grömm af kóka­íni sem hún hafði komið fyrir í þremur nið­ur­suðu­dósum. Segir í dómnum að styrkur efn­is­ins hafi verið á bil­inu 82 til 83 pró­sent. Ekki kemur fram í dómnum hvaðan konan var að koma. Hún var úrskurðuð í gæslu­varð­hald og ákæra leit dags­ins ljós 17. júlí eða tæpum þremur mán­uðum eftir að hún var hand­tekin. Þremur dögum eftir að ákært var í mál­inu var konan dæmd til átján mán­aða fang­els­is­vistar.

Í dómnum kemur fram, líkt og í hinum dómunum sem hér er fjallað um, að konan hafi hvorki verið eig­andi fíkni­efn­anna né tekið þátt í skipu­lagn­ingu á kaupum og inn­flutn­ingi þeirra til Íslands ,,með öðrum hætti en þeim að sam­þykkja að flytja efnin til lands­ins gegn greiðslu.“ Hún var því líkt og hinar kon­urnar þrjár og karl­arnir fjórir svo­kallað burð­ar­dýr.

Í dómnum segir að ákærða hafi afdrátt­ar­laust játað sök fyrir dómi. ,,Með ský­lausri játn­ingu ákærðu fyrir dómi, sem sam­rým­ist rann­sókn­ar­gögnum máls, er sannað að hún hafi gerst sek um þá hátt­semi sem henni er gefið að sök í ákæru“ segir í dóm­inum en hún líkt og flest hinna sem hér er fjallað um hafði ekki orðið upp­vís að refsi­verðri háttt­semi áður. Segir í dómnum að tekið sé til­lit til þessa við ákvörðun refs­ingar sem og að hún hafi sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi gögnum ekki verið eig­andi fíkni­efn­anna né tekið þátt í skipu­lagn­ingu á kaupum og inn­flutn­ingi þeirra hingað til lands. 

Gleypti 230 grömm af kókaíni 

Laug­ar­dag­inn 23. maí síð­ast­lið­inn var karl­maður stöðv­aður í Leifs­stöð ásamt konu sem var með honum í för. Þau voru að koma frá Helsinki í Finn­landi. Karlinn hafði falið um 230 grömm af kóka­íni inn­vortis en í dómnum sem kveð­inn var upp á fimmtu­dag­inn segir að þau hafi staðið í sam­ein­ingu að inn­flutn­ingi efn­is­ins. Segir í ákæru sem gefin var út 13. júlí að styrk­leiki efn­is­ins hafi verið 78 til 79 pró­sent og ætlað til „sölu­dreif­ingar hér á landi í ágóða­skyni“. Samkvæmt dómnum voru þau svokölluð burð­ar­dýr en ekki eig­endur fíkni­efn­anna. Í dómnum segir enn­fremur að ákærðu hafi játað brot sín án und­an­dráttar við þing­fest­ingu máls­ins sem var sama dag og dómur var kveð­inn upp síð­ast­lið­inn fimmtu­dag. Þau kröfð­ust þess að í mál­inu yrði þeim gerð væg­asta refs­ing sem lög leyfi og að gæslu­varð­hald sem þau höfðu verið í frá 21. maí myndi drag­ast frá refs­ingu. Í dómi segir að með ský­lausri játn­ingu þeirra sem fái stoð í gögnum séu þau sek um þá hátt­semi sem til­greind sé í ákæru. Þau höfðu, líkt og flest hinna sem hér er fjallað um, ekki áður gerst sek um refsi­verða hátt­semi á Íslandi og segir í dómnum að ekki sé, af gögnum máls­ins, ljóst hvort þau hafi hlotið refsi­dóma í öðrum löndum. 

Við ákvörðun refs­ingar var tekið til­lit til þess sem og játn­ingar beggja. Einnig er til­greint að þau hafi bæði verið sam­vinnu­fús, ekki síst konan. Voru þau hvort um sig dæmd til fimm mán­aða fang­els­is­vistar. 

Varð fyrir alvarlegri árás í gæsluvarðhaldi 

Þá var karl­maður dæmdur til sjö mán­aða fang­els­is­vistar 21. júní síð­ast­lið­inn en til frá­dráttar kom gæslu­varð­hald frá 21. apríl 2023. Var hann dæmdur fyrir stór­fellt brot gegn lögum um ávana- og fíkni­efni með því að hafa 20. apríl 2023 staðið að inn­flutn­ingi á um 500 grömmum af kóka­íni að styrk­leika 55 pró­sent. Fíkni­efnin flutti mað­ur­inn með flugi frá Amster­dam í Hollandi, falin inn­vortis. Þá hafði hann í fórum sínum um 1 gramm af hassi og 0,45 grömm af kóka­íni í fötum sínum sem toll­verðir fundu við kom­una hingað til lands. 

„Hann hafi ekki verið eig­andi fíkni­efn­anna, skipu­leggj­andi eða fjár­magn­andi ferð­ar­innar heldur hafi hann verið burð­ar­dýr sem hafi verið neytt í för­ina“
úr dóm Hér­aðs­dóms Reykja­ness

Hann ját­aði brot sín und­an­drátt­ar­laust við þing­fest­ingu máls­ins. Óskaði hann þess fyrir dómi að tekið yrði til­lit til þess að gæslu­varð­halds­vistin hefði hefði verið honum sér­stak­lega þung­bær, meðal ann­ars vegna til­hæfu­lausrar og alvar­legrar árásar sem hann varð fyrir í gæslu­varð­hald­inu. Þá óskaði hann eftir því að litið yrði til þess til refsim­ild­unar að hann ját­aði sök og sýndi sam­starf við rann­sókn máls­ins. „Hann hafi ekki verið eig­andi fíkni­efn­anna, skipu­leggj­andi eða fjár­magn­andi ferð­ar­innar heldur hafi hann verið burð­ar­dýr sem hafi verið neytt í för­ina. Loks vís­aði ákærði til góðrar hegð­unar sinnar gæslu­varð­halds­vist­inni,“ segir í dómnum. 

Samkvæmt saka­vott­orði hafði mað­ur­inn ekki áður gerst sekur um refsi­verða hátt­semi. Af rann­sókn­ar­gögnum máls­ins verður ekki séð að ákærði hafi verið eig­andi fíkni­efn­anna þótt hann hafi sam­þykkt að flytja þau til lands­ins. 

19. apríl síð­ast­lið­inn var karl­maður, sem er franskur rík­is­borg­ari, hand­tek­inn á Kefla­vík­ur­flug­velli við komu frá París. Reyndist hann hafa með­ferðis rúmt kíló af metam­fetamíni, 81 pró­sent að styrk­leika, sem hann flutti til lands­ins falin í far­angri sínum. Maðurinn játað brot sitt ský­laust við þing­setn­ingu. Samkvæmt saka­vott­orði hafði hann ekki áður gerst sekur um refsi­verða hátt­semi. Af rann­sókn­ar­gögnum máls­ins varð ekki séð að hann væri eig­andi fíkni­efn­anna þó hann hefði sam­þykkt að flytja þau til lands­ins. Var mað­ur­inn dæmdur til fang­els­is­vistar í 14 mán­uði 6. júlí síð­ast­lið­inn, en til frá­dráttar kom gæslu­varð­halds­vist hans frá 20. apríl 2023.

Málafjöldinn orðinn eins og fyrir Covid

Kolbrún Bene­dikts­dóttir vara­hér­aðs­sak­sókn­ari sótti tvö þeirra mála sem hér er fjallað um fyrir hönd ákæru­valds­ins. Í sam­tali við Heim­ild­ina segir Kolbrún að á vorin og sumrin komi oft upp hrinur mála þar sem fólk er stöðvað með fíkni­efni sem það gerir til­raun til að smygla til lands­ins. „Það komu svo­lítið mörg mál upp núna í vor, ég held að það hafi mest verið 25 manns í gæslu­varð­haldi hjá lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum. Þetta er oft svona á þessum tíma, að vori og í byrjun sum­ars.“

Kolbrún segir að í Covid far­aldr­inum hafi fíkni­efna­inn­flutn­ings­málum fækkað drastískt. Nú sé staðan hins vegar orðin áþekk því sem var fyrir far­ald­ur­inn. „Þetta er auð­vitað mjög mikið, þetta er bara iðn­aður. Svona vinna þessir hópar, þeir eru með fjölda af fólki í erf­iðri stöðu sem í raun vinna bara við þetta, ef maður getur sagt sem svo.“

Fáir skipu­lagðir hóparKolbrún segir yfir­völd telja að fáir hópar hér á landi standi að baki flestum komum burð­ar­dýra til lands­ins.

Langmest kókaín innflutningur

Spurð hvort það segi eitt­hvað til um inn­lendan fíkni­efna­markað að í öllum til­vikum nema einu í þeim málum sem hér er fjallað um hafi fólk verið hand­tekið við að smygla hingað til lands kóka­íni játar Kolbrún því. „Ég held að það hljóti að vera. Þessi mál sem hafa verið að koma upp að und­an­förnu eru að mjög miklu leyti kóka­ín­inn­flutn­ingur. Fólk er að flytja hingað þetta hálft kíló ef það er inn­vortis og svo aðeins meira ef það er í far­angri.“

„Fólkið er á aldr­inum frá ríf­lega tví­tugu og upp í fólk vel á sex­tugs­aldri“
Kolbrún Bene­dikts­dóttir
vara­hér­aðs­sak­sókn­ari

Aldur fólks­ins er ekki til­greindur í dómunum en Kolbrún segir að í þeim málum sem hún hefur komið að síð­ustu vikur, sem eru fleiri en hér um ræðir, sé fólk á ýmsum aldri. „Ég held ég hafi þannig verið með fimm eða sex ákærur síð­ustu vikur og fólkið er á aldr­inum frá ríf­lega tví­tugu og upp í fólk vel á sex­tugs­aldri. Flestir eru nú samt á þrí­tugs­aldri, þó það sé allur gangur á því.“

Spánn mjög oft upphafsstaður

Aðeins í einu til­viki kemur fram í dóms­orði af hvaða þjóð­erni sak­born­ingar eru, og er sá franskur rík­is­borg­ari. Kolbrún segir hins vegar aðspurð að fólk sem hefur verið hand­tekið vegna fíkni­efna­inn­flutn­ings upp á síðkastið sé af ýmsu þjóð­erni, þannig hafi það verið rík­is­borg­arar í Dóminík­anska lýð­veld­inu, frá Perú, Spáni og Frakk­landi sem hafi verið sak­born­ingar í málum sem hún hafi komið að. 

„Ég held að þetta sé langoft­ast þannig að burð­ar­dýr vita ekki neitt um fyrir hvern þau vinna“
Kolbrún Bene­dikts­dóttir
vara­hér­aðs­sak­sókn­ari

Spurð hvort hún viti, eða telji sig vita, hvort fólk sem hefur verið hand­tekið hér á landi sem burð­ar­dýr sé að vinna fyrir sömu, fáu aðil­ana hér á landi, segir Kolbrún að erfitt sé að full­yrða um það. „Ég held að þetta sé langoft­ast þannig að burð­ar­dýr vita ekki neitt um fyrir hvern þau vinna, það er eng­inn sem tekur séns á því. Þau koma bara hingað og svo á að hafa sam­band við þau. Mann grunar hins vegar að þetta séu í mesta lagi nokkrir hópar, ekki margir.“

Fólkið sem fjallað er um hér að framan kom hingað til lands víða að, þó ekki sé til­greint í öllum málum hvaðan það var að koma. Þó sést að það var meðal ann­ars að koma frá París, Amster­dam, Helsinki og Osló. Kolbrún segir að oft sé um milli­lend­ingar að ræða. „Fólk er í tölu­verðu mæli að koma frá Spáni og þá er stundum milli­lent í Frank­furt, París eða Amster­dam. Þannig að leiðin liggur oft frá Spáni en það getur verið allur gangur á því.“

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár