„Hugmyndin um kvenstærðfræðing var ekki til í hausnum á mér“

Nanna Krist­jáns­dóttir stýrir stærð­fræði­náms­búð­unum Stelpur diffra. Sjálf kláraði hún ell­efu stærð­fræði­á­fanga í mennta­skóla, er nú að læra stærð­fræði í HÍ og er eina stelpan í sínum árgangi í hreinni stærð­fræði. Hún segir að kven­stærð­fræð­ingar hafi hingað til að mestu verið ósýni­legir og því ætlar hún að breyta.

„Hugmyndin um kvenstærðfræðing var ekki til í hausnum á mér“
Nanna Krist­jáns­dóttir Kennir ungum stelpum og kynsegin nem­endum á fram­halds­skóla­aldri stærð­fræði. Mynd: Kristinn Ingvarsson

Nanna Krist­jáns­dóttir er 22 ára nemi í stærð­fræði við Háskóla Íslands sem heldur úti sum­ar­búð­unum Stelpur diffra. Áhugi hennar á stærð­fræði byrj­aði snemma en hún man eftir því að hafa spurt kennar­ann sinn í þriðja bekk hvað prím­tölur væru.

Það er Nönnu hjart­ans mál að búa til sam­fé­lag fyrir stelpur og stálp í stærð­fræði enda seg­ist hún hafa reynslu af því að vera eina stelpan í hópi stráka. „Ég tók þátt í stærð­fræði­keppni í 10. bekk. Það er til mjög sæt mynd af mér og svo níu strákum hvort sínum megin við mig. Ég vann keppn­ina og man hvað mér leið illa fyrir hönd strák­anna að ég hefði rænt þá sigrinum og gleð­inni af því að vinna. Ólíkt þeim átti ég engan í keppn­inni til að fagna með.“

Sum­ar­búðir fyrir stelpur og stálpNönnu datt í hug að stofna sum­ar­búð­irnar þegar hún var á loka­ár­inu sínu í MH.

Nanna lauk stúd­ents­prófi frá Mennta­skól­anum við Hamra­hlíð en þar tók hún ell­efu stærð­fræði­á­fanga. Unga stærð­fræð­ingnum finnst eft­ir­minni­legt að aðeins einn af þeim kenn­urum sem kenndu henni stærð­fræði var kona. „Hug­myndin um kven­stærð­fræð­ing var ekki til í hausnum á mér.“ Fyrir utan stærð­fræði­stof­urnar í MH var plakat af stærð­fræð­ingum, svo­kallað stærð­fræð­inga­tal, og á því var aðeins ein kona, Emmy Noether. „Hún var einn mik­il­væg­asti stærð­fræð­ingur 20. ald­ar­innar,“ segir Nanna. Textinn á plakatinu skýrði frá hetju­sögum karl­kyns stærð­fræð­inga en um Emmy stóð: „Hún var feit, fyr­ir­ferð­ar­mikil og hávær.“ Það kom þó einnig fram að hún hefði verið við­kunn­an­leg. Á heima­síðu MH má sjá mynd af Nönnu afhenda rektor skól­ans leið­rétt­ingu á stærð­fræð­inga­tal­inu. Á nýja plakatinu fá nokkrar þeirra kvenna sem lögðu sitt af mörkum til stærð­fræð­innar gegnum ald­irnar verð­skuldað pláss.

Í dag stendur Nanna fyrir sum­ar­búð­unum Stelpur diffra sem ætl­aðar eru stelpum og kynsegin nem­endum á fram­halds­skóla­aldri sem hafa áhuga á stærð­fræði. Sum­ar­búð­irnar standa yfir frá 8. til 12. ágúst og fer kennsla fram í Háskóla Íslands. Hug­myndin kvikn­aði þegar Nanna var á síð­asta árinu sínu í MH en þá lang­aði hana sjálfa að fara í sum­ar­búðir en þær var ekki að finna á Íslandi. Kostn­að­ur­inn við slíka náms­ferð erlendis getur verið gríð­ar­lega mik­ill og Nönnu lang­aði að búa til rými þar sem stelpur og stálp hér á Íslandi gætu komið saman og deilt áhuga sínum á stærð­fræði. Hún bar hug­mynd sína um að stofna sum­ar­búð­irnar Stelpur diffra undir kennar­ann sinn, Önnu Helgu Jóns­dóttur, dós­ent í stærð­fræði, sem hjálp­aði henni að hefja und­ir­bún­ing. Auk Önnu hefur Bjarn­heiður Krist­ins­dóttir, lektor í stærð­fræði og stærð­fræði­menntun, aðstoðað Nönnu.

Stelpur diffraNanna leggur áherslu á að gera kven­kyns fyr­ir­myndir sýni­legar.

Fyrsta nám­skeiðið var haldið sum­arið 2021 og voru þátt­tak­endur þá sex tals­ins. Á síð­asta ári voru nem­endur 18. „Það er þre­földun frá árinu áður,“ segir Nanna sem býst við svip­uðum fjölda í ár. Í lok nám­skeiðs gefst nem­endum tæki­færi á að veita sum­ar­búð­unum umsögn. Þær stelpur sem hafa tekið þátt segj­ast finna fyrir meira sjálfs­trausti, eiga sér nýjar kven­fyr­ir­myndir og ein þeirra sagð­ist hafa „örlítið meiri hug­mynd um hvað ég vil gera í fram­tíð­inni“.

Sterk vina­sam­bönd hafa mynd­ast í sum­ar­búð­unum. Nanna rifjar upp pip­ar­köku­gerð fyrir síð­ustu jól sem hlýj­aði henni um hjarta­rætur. „Í fyrra gerðu þær algebru­leg form sem hafa þann eig­in­leika að þú getur lagt þau við hlið­ina á hvert öðru. Þau geta litið alls konar út. Þær gerðu allar sitt eigið pip­ar­köku­form sem við 3D prent­uðum út, og af því að þú getur lagt formin hlið við hlið er hægt að nota allt deigið,“ segir Nanna og brosir. „Eftir loka­prófin síð­asta vetur buðum við þeim í pip­ar­köku­bakstur uppi í háskóla þar sem stelp­urnar gátu hist aftur sem hópur. Það var gaman að sjá hvað það var þægi­leg stemn­ing í hópnum.“ Tveir þátt­tak­enda voru nem­endur Mennta­skóla Borg­ar­fjarðar sem er í Borg­ar­nesi og þær keyrðu til Reykja­víkur dag­lega svo þær gætu verið með. 

Pip­ar­köku­baksturSum­ar­búð­irnar eru vett­vangur fyrir nem­endur til að tengj­ast vina­böndum.

Eina stelpan

Nönnu finnst mjög mik­il­vægt að nem­endur kynn­ist kven­kyns fyr­ir­myndum og eru umsjón­ar­menn sum­ar­búð­anna konur sem hafa látið til sín taka í fræði­grein­inni hér á landi. „Bæði eru konur að kenna í sum­ar­búð­unum og svo fáum við líka konur í heim­sókn í morg­un­kaffi sem segja frá sínum störfum. Þær vinna ólík störf en eiga það allar sam­eig­in­legt að vera stærð­fræði­mennt­aðar. Til dæmis kemur ein lista­kona til okkar í ár sem notar stærð­fræð­ina mikið í list­inni.“ 

Nanna er eina stelpan í sínum bekk í háskól­anum og eini nem­and­inn sem ekki lauk stúd­ents­prófi frá Mennta­skól­anum í Reykja­vík. Í grein­inni Kannski erum við, sem birt­ist árið 2011 í Tímarit um mennta­rann­sóknir, er fjallað um orð­ræðu í karllægu umhverfi íslenskra raun­vís­inda. „Ég tengi alveg við þetta sem er talað um í grein­inni. Mér finnst ég að ein­hverju leyti hafa minnkað kven­leik­ann til að standa minna út úr. Ég hef mætt máluð upp í skóla, fengið komment á það og ekki gert það aftur.“

Það eru fleiri ungar konur að læra stærð­fræði í háskól­anum en að sögn Nönnu eru þær ýmist einu ári á eftir henni eða á undan. Hún seg­ist njóta góðs af því að hafa kynnst stelpum í hag­nýtri stærð­fræði. Hún segir hvetj­andi að vera í kringum ungar konur sem ekki draga úr kven­leika sínum til þess að vera teknar alvar­lega sem stærð­fræð­ingar, heldur séu nákvæm­lega eins og þær langar að vera. 

„Ég hef mætt máluð upp í skóla, fengið komment á það og ekki gert það aftur.“

Sjálf á Nanna eitt ár eftir af háskóla­nám­inu. Aðspurð hvað taki við segir hún: „Ég hef eig­in­lega ekki hug­mynd.“ Hún vinnur hjá Vís­inda­smiðj­unni auk þess að halda sum­ar­búð­irnar og nýtur þess mjög. „Draum­ur­inn var að fara í stærð­fræði­kennslu en núna hefur stærð­fræði- og vís­inda­miðlun vakið gleði í hjarta mínu. Mig langar að geta boðið upp á ólíkar leiðir fyrir fólk til að læra og finna áhuga á hlut­unum. Ég vil vera ein­hvers staðar þar sem ég get komið að sam­fé­lags­legu gagni.“

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár