Verðbólgudraugurinn sem vomir yfir Íslandi

Ísland virð­ist sér­stak­lega við­kvæmt fyrir verð­bólgu. Hvenær hún lætur á sér kræla og hvenær hún hverfur, virð­ist þó mörgum hin mesta ráð­gáta. Seðla­bank­inn reynir sitt besta til að kveða draug­inn í kút en það er bara svo margt sem við vitum ekki þegar við veljum með­ölin.

Verðbólgudraugurinn sem vomir yfir Íslandi

Töluvert var fagnað og stjórn­mála­menn klöpp­uðu sér jafn­vel á bakið þegar nýj­ustu verð­bólgu­mæl­ingar Hagstofu Íslands voru birtar í júlí. Eftir langt skeið sem ein­kennst hafði af stöð­ugum hækk­unum lækk­aði verð­bólga annan mán­uð­inn í röð og mæld­ist í júní undir níu pró­sentum í fyrsta sinn í heilt ár. „Þó það sé vissu­lega of fljótt að fagna sigri eru góð teikn á lofti í bar­átt­unni við verð­bólg­una sem nú er komin undir 9% í fyrsta sinn á síð­ustu 12 mán­uðum. Þar skiptir máli ábyrg hag­stjórn rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur þar sem ekki er vikið frá því að standa vörð um vel­ferð­ina en sömu­leiðis þá vel­sæld sem byggst hefur upp á síð­ustu árum,“ skrif­aði Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar Alþingis, strax í kjöl­far nýju verð­bólgu­frétt­anna. 

Björninn er ekki unn­inn, en allt á réttri leið. Eða hvað? „Þetta er senni­lega aðeins flókn­ara,“ segir Þórólfur Geir Matth­í­as­son, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands, sem líkt og …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íslenski verðbólgudraugurinn

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár