Atvinnuleysi ekki mælst jafn lítið síðan 2018

Atvinnu­leysi hefur minnkað hratt síðan eftir kór­ónu­veiru­far­aldur og í júní stóð það í 2,9 pró­sentum. Það er í fyrsta sinn síðan í des­em­ber 2018 sem það fer undir þrjú pró­sent. Vinnu­mála­stofnun gerir ráð fyrir litlum breyt­ingum í júlí.

Byggingariðnaður
Bygg­ing­ar­iðn­aður Atvinnu­lausum fækk­aði lít­il­lega í flestum atvinnu­greinum á milli mán­aða, þar á meðal í bygg­ing­ar­iðn­aði. Mynd: Davíð Þór

Atvinnu­leysi mæld­ist 2,9 pró­sent í júní síð­ast­liðnum. Það er minnkun um 0,1 pró­sentu­stig frá fyrri mán­uði en atvinnu­leysi hefur lækkað um 0,6 pró­sentu­stig borið saman við sama mánuð í fyrra þegar það var 3,5 pró­sent. Þetta kemur fram í nýrri mán­að­ar­skýrslu frá Vinnu­mála­stofnun (VMST).

Atvinnu­leysi hefur lækkað jafnt og þétt síð­ustu miss­eri og þetta er í fyrsta sinn síðan árið 2018 sem atvinnu­leysi mælist undir þremur pró­sentum. Í des­em­ber það ár mæld­ist atvinnu­leysi 2,5 pró­sent.

„Að með­al­tali voru 5.833 atvinnu­lausir í júní, 3.185 karlar og 2.648 konur. Að með­al­tali fækk­aði atvinnu­lausum um 208 frá maí,“ segir í skýrslu VMST. Atvinnu­leysi mælist mest á Suð­ur­nesjum, 3,8 pró­sent og minnkar um 0,3 pró­sentu­stig milli mán­aða. Minnst var atvinnu­leysi á Norð­ur­landi vestra, 0,6 pró­sent. Það er eina svæði lands­ins þar sem meira atvinnu­leysis mælist meðal karla en kvenna. Á Aust­ur­landi var atvinnu­leysi 1,1 pró­sent og á Vest­fjörðum var 1,7 pró­sent atvinnu­leysi í júní.

Hlutfall erlendra atvinnuleitenda heldur áfram að hækka

Í flestum atvinnu­greinum fækk­aði atvinnu­lausum lít­il­lega milli mán­aða. „Mest var fækkun atvinnu­lausra í ferða­þjón­ustu, þ.e. far­þega­flutn­ingum, gisti­þjón­ustu og ýmissi ferða­þjón­ustu. Einnig fækk­aði atvinnu­lausum nokkuð í verslun og vöru­flutn­ingum. Í sjáv­ar­út­vegi fjölg­aði atvinnu­lausum hins vegar lít­ils­háttar frá maí.“

Erlendum atvinnu­leit­endum fækk­aði á milli mán­aða um 49 og eru nú 2.980. Þrátt fyrir fækk­un­ina hefur hlut­fall erlendra atvinnu­leit­enda af heild­ar­fjölda atvinnu­leit­enda hækkað síð­ustu miss­eri og stendur nú í 49 pró­sentum.

VMST gerir ráð fyrir litlum breyt­ingum á atvinnu­leysi í júlí, það gæti orðið á bil­inu 2,7 til 2,9 pró­sent.

Hröð minnkun atvinnuleysis eftir faraldur

Atvinnu­leysi hefur minnkað hratt frá því á tímum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Fyrir tveimur og hálfu ári síðan, í jan­úar árið 2021 náði almennt atvinnu­leysi hámarki þegar það var 11,6 pró­sent. Á þeim tíma var til staðar úrræði sem gaf fólki kost á að sækja sér atvinnu­leys­is­bætur vegna minnk­aðs starfs­hlut­falls, svokölluð hluta­bóta­leið. Í jan­úar árið 2021 mæld­ist 1,2 pró­sent atvinnu­leysi vegna þessa úrræðis og heild­ar­at­vinnu­leysi á þeim stóð því í 12,8 pró­sentum. Í apríl og maí árið 2020 var heild­ar­at­vinnu­leysi að vísu hærra en í jan­úar ári síðar vegna þessa úrræðis en það fór hæst í sam­tals 17,8 pró­sent í apríl 2020, snemma í far­aldr­inum. 

Líkt og áður segir mæld­ist almennt atvinnu­leysi hæst í jan­úar 2021, 11,6 pró­sent, en við lok þess árs var almennt atvinnu­leysi komið niður í 4,9 pró­sent. Atvinnu­lausum hélt svo áfram að fækka árið 2022 og við lok árs­ins stóð atvinnu­leysi í 3,2 pró­sentum. Að með­al­tali voru 3,9 pró­sent af mann­afla á vinnu­mark­aði atvinnu­laus í fyrra sam­an­borið við 7,7 pró­sent árið áður.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár