Yfir helmingur óánægður með Ásgeir og Katrínu

Samkvæmt nýrri könnun eru yfir helm­ingur aðspurðra óánægð með störf Ásgeirs Jóns­sonar seðla­banka­stjóra og Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra. Mikil ánægja er hins vegar með störf Guðna Th. Jóhann­es­sonar for­seta.

Yfir helmingur óánægður með Ásgeir og Katrínu
Vekur ekki lukku Mikil óánægja mælist með störf Ásgeirs Jóns­sonar seðla­banka­stjóra. Mynd: Bára Huld Beck

Aðeins tæpur fjórð­ungur lands­manna er ánægður með störf Ásgeirs Jóns­sonar seðla­banka­stjóra og þá er aðeins rétt rúmur fjórð­ungur ánægður með störf Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra. Hins vegar eru nær því þrír af hverjum fjórum ánægðir með störf Guðna Th. Jóhann­es­sonar, for­seta Íslands.

Katrín Jak­obs­dóttirTraust til Katrínar hefur farið hríð­lækk­andi síð­ustu mán­uði í könn­unum.

Þetta eru nið­ur­stöður könn­unnar kann­ana­fyr­ir­tæk­is­ins Prósents sem fram­kvæmd var daga 8. til 23. júní.

Fyr­ir­tækið hefur ekki gert við­líka kann­anir áður svo ekki er hægt að gera sam­an­burð á því hvernig ánægja með störf þess­ara emb­ætt­is­manna hefur þró­ast yfir tíma.

Þegar horft er á frekara nið­ur­brot á skoð­unum þátt­tak­enda í könn­nun­inni kemur í ljós að alls eru 22 pró­sent aðspurðra ánægð með störf Ásgeirs en 55 pró­sent eru óánægð. Þá eru 28 pró­sent ánægð með störf Katrínar en 52 pró­sent eru óánægð.

Hins vegar eru 74 pró­sent ánægð með störf Guðna for­seta. Þar af eru 45 pró­sent mjög ánægð og 29 pró­sent frekar ánægð. Aðeins 8 pró­sent eru óánægð með störf hans.

KönnunSpurt var: Á heild­ina litið, hversu ánæg(ð/ður/t) eða óánæg(ð/ður/t) ert þú með störf emb­ætt­is­manna? Þetta eru nið­ur­stöður þeirra sem tóku afstöðu.

Konur eru mark­tækt ánægð­ari með störf bæði Guðna og Katrínar en hins vegar eru karlar mark­tækt ánægð­ari með störf Ásgeirs.

Úrtak könn­un­in­ar­inar var 2.700 manns og svar­hlut­fall var 50 pró­sent. Könnunin var net­könnun meðal könn­un­ar­hóps Prósents.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár