Inga Sæland vill bankastjórn og fjármálaráðherra burt: „Þetta fólk á allt að fara“

Formaður Flokks fólksins segir enn skýrara nú en áður að skipa þurfi rann­sóknarnefnd til þess að fara yfir söluna á Íslands­banka. Bankinn hefur samþykkt að greiða sögulega háa sekt fyrir lögbrot sem voru framin innan hans í ferlinu.

Ákveðin
Ákveðin Inga er skýr í sínum við­brögðum við sátt Íslands­banka og FME. Hún vill að þau sem komu að mál­inu víki. Mynd: Bára Huld Beck

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, kallar eftir afsögn banka­stjóra Íslands­banka, stjórnar bankans og fjármála­ráðherra, vegna lögbrota bankans við sölu á 22,5 prósenta hlut ríkisins í honum. 

„Þetta fólk á allt að fara, það er búið að brjóta lög og Bjarni [Benediktsson, fjármála­ráðherra] ber ábyrgð á því hvort sem hann vissi af því eða ekki,“ segir Inga.

Sáttar­gjörð Íslands­banka og Fjármála­eftirlits Seðla­banka Íslands var birt í gær en vegna hennar mun Íslands­banki greiða sögulega háa sekt, 1,2 milljarða króna. Í sáttinni eru „alvarleg og kerfislæg“ lögbrot Íslands­banka útlistuð, en þau eru fjölmörg. Bankinn villti um fyrir Banka­sýslu ríkisins og skapaði fjölmarga hagsmuna­árekstra með því að gefa starfs­mönnum sínum aðgang að útboðinu.

Dökk mynd

Inga segir að sáttin dragi upp mun dekkri mynd af framkvæmd sölunnar en bankinn málaði upp fyrir helgi. 

„Ég veit ekki við hverju maður bjóst en nú er búið að draga það þarna upp á yfir­borðið að þetta er mun alvarlegra en þau hafa viljað vera að láta,“ segir Inga. „Það hefur líka komið í ljós að rann­sóknar­nefndin sem stjórnar­andstaðan hefur farið fram á að verði sett á fót til þess að fara yfir þessa sölu á meira en rétt á sér.“

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra sagði í samtali við Heimildina í gær að bankinn bæri ábyrgð á lögbrotunum, ekki fjármála­ráðherra. Þannig hafi ekkert komið í ljós sem bendi til þess að óeðlilega hafi verið staðið að undir­búningi sölunnar. 

„Þarna er hafin framkvæmd þar sem á að fylgja ákveðnum reglum og það er ekki gert,“ sagði Katrín. „Þá horfi ég auðvitað til þess hver það er sem fylgir ekki reglunum, það er bankinn.“

Inga er ósammála forsætis­ráðherra. 

„Ráðherra­ábyrgð hans er skýr hvað þetta varðar. Hann ber lagalega ráðherra­ábyrgð gagnvart öllum sölum ríkis­eigna. Hann getur ekki þvegið hendur sínar af þessu,“ segir Inga. Næsta mál á dagskrá hjá henni er að kalla eftir svörum frá fjármála­ráðuneytinu um það hve mikið nákvæmlega ríkið greiddi fyrir umsýslu með sölu­ferlinu og hverjum ríkið greiddi þær upphæðir.

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íslandsbankasalan

FréttirÍslandsbankasalan

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Benediktsson, fyrr­verandi fjármála- og efnahags­ráðherra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þingsins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagnvart hverjum og einum kaupanda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera augljóst að ekki væri hægt að fylgja hæfis­reglum í sölu­meðferðinni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar í dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár