Inga Sæland vill bankastjórn og fjármálaráðherra burt: „Þetta fólk á allt að fara“

Formaður Flokks fólks­ins segir enn skýr­ara nú en áður að skipa þurfi rann­sókn­ar­nefnd til þess að fara yfir söl­una á Íslands­banka. Bankinn hefur sam­þykkt að greiða sögu­lega háa sekt fyrir lög­brot sem voru framin innan hans í ferl­inu.

Ákveðin
Ákveðin Inga er skýr í sínum við­brögðum við sátt Íslands­banka og FME. Hún vill að þau sem komu að mál­inu víki. Mynd: Bára Huld Beck

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, kallar eftir afsögn banka­stjóra Íslands­banka, stjórnar bank­ans og fjár­mála­ráð­herra, vegna lög­brota bank­ans við sölu á 22,5 pró­senta hlut rík­is­ins í honum. 

„Þetta fólk á allt að fara, það er búið að brjóta lög og Bjarni [Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra] ber ábyrgð á því hvort sem hann vissi af því eða ekki,“ segir Inga.

Sátt­ar­gjörð Íslands­banka og Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands var birt í gær en vegna hennar mun Íslands­banki greiða sögu­lega háa sekt, 1,2 millj­arða króna. Í sátt­inni eru „alvar­leg og kerf­is­læg“ lög­brot Íslands­banka útli­stuð, en þau eru fjöl­mörg. Bankinn villti um fyrir Banka­sýslu rík­is­ins og skap­aði fjöl­marga hags­muna­á­rekstra með því að gefa starfs­mönnum sínum aðgang að útboð­inu.

Dökk mynd

Inga segir að sáttin dragi upp mun dekkri mynd af fram­kvæmd söl­unnar en bank­inn mál­aði upp fyrir helgi. 

„Ég veit ekki við hverju maður bjóst en nú er búið að draga það þarna upp á yfir­borðið að þetta er mun alvar­legra en þau hafa viljað vera að láta,“ segir Inga. „Það hefur líka komið í ljós að rann­sókn­ar­nefndin sem stjórn­ar­and­staðan hefur farið fram á að verði sett á fót til þess að fara yfir þessa sölu á meira en rétt á sér.“

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði í sam­tali við Heim­ild­ina í gær að bank­inn bæri ábyrgð á lög­brot­unum, ekki fjár­mála­ráð­herra. Þannig hafi ekk­ert komið í ljós sem bendi til þess að óeðli­lega hafi verið staðið að und­ir­bún­ingi söl­unnar. 

„Þarna er hafin fram­kvæmd þar sem á að fylgja ákveðnum reglum og það er ekki gert,“ sagði Katrín. „Þá horfi ég auð­vitað til þess hver það er sem fylgir ekki regl­unum, það er bank­inn.“

Inga er ósam­mála for­sæt­is­ráð­herra. 

„Ráð­herra­á­byrgð hans er skýr hvað þetta varðar. Hann ber laga­lega ráð­herra­á­byrgð gagn­vart öllum sölum rík­is­eigna. Hann getur ekki þvegið hendur sínar af þessu,“ segir Inga. Næsta mál á dag­skrá hjá henni er að kalla eftir svörum frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu um það hve mikið nákvæm­lega ríkið greiddi fyrir umsýslu með sölu­ferl­inu og hverjum ríkið greiddi þær upp­hæðir.

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár