Katrín Jakobsdóttir: Ábyrgðin bankans, ekki fjármálaráðherra

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra telur að banka­stjóri og stjórn Íslands­banka beri fulla ábyrgð á lög­brotum við söl­una á bank­anum. Um póli­tíska ábyrgð segir Katrín ekk­ert hafa komið fram sem bendi til þess að óeðli­lega hafi verið staðið að und­ir­bún­ingi söl­unnar.

Áfellisdómur
Áfell­is­dómur „Ég get enga aðra nið­ur­stöðu dregið en að þetta sé mjög alvar­legur áfell­is­dómur yfir stjórn­endum bank­ans,“ segir Katrín um sátt­ina. Mynd: Heiða Helgadóttir

Rík­is­stjórnin mun ekki ráð­ast í frek­ari sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka fyrr en öll kurl eru komin til grafar varð­andi sölu á 22,5 pró­senta hlut rík­is­ins í bank­anum í fyrra. Þetta segir Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra.

Sátt Íslands­banka við fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands (FME) var birt í dag en bank­inn hefur við­ur­kennt að hafa brotið lög við söl­una. Ríkið á enn 42,5% í bank­anum og var frek­ari sala á hlut rík­is­ins á áætlun í ár.

Samtök atvinnu­lífs­ins sögðu í umsögn sinni um fjár­lög þessa árs að ef ekki yrði af sölu bank­ans væri ein meg­in­for­senda fjár­laga í upp­námi. Í frum­varp­inu var gert ráð fyrir að 75 millj­arðar króna fengjust fyrir hlut rík­is­ins í bank­anum. Ef salan fer ekki í gegn í ár verður því til 75 millj­arða gat í fjár­lögum.

Spurð um það segir Katrín að rík­is­stjórnin sé alltaf að vinna með mikla óvissu. „Það er ekki eitt­hvað sem ég hef stórar áhyggjur af,“ segir Katrín. „Mér finnst mik­il­væg­ara að við ætlum að vanda bæði mjög vel til þess að skoða þessa sölu og ekki taka ákvörðun um nýja fyrr en þetta fyr­ir­komu­lag hefur verið end­ur­skoðað.“

Kallar eftir því að stjórnendur bankans axli ábyrgð

Katrín segir ítar­lega rann­sókn FME vera alvar­legan áfell­is­dóm yfir stjórn­endum bank­ans. Hún kallar brot bank­ans alvar­leg, m.a. hvað varðar skort á áhættu­vit­und og ráð­staf­anir til að tryggja að bank­inn upp­fyllti laga­kröfur. 

Í sátt­ar­gjörð­inni kemur einnig fram að bank­inn veitti Banka­sýsl­unni vill­andi upp­lýs­ingar og virti ekki útboðs­skil­mála hennar. 

„Það er auð­vitað stóral­var­legt mál því hér er um að ræða sölu á almanna­eign“
Katrín Jak­obs­dóttir
um vill­andi upp­lýs­ingar Íslands­banka til Banka­sýsl­unnar.

„Það er auð­vitað stóral­var­legt mál því hér er um að ræða sölu á almanna­eign,“ segir Katrín. „Við köllum eftir því að stjórn og stjórn­endur axli ábyrgð á þessu ferli.“

Ertu þá að kalla eftir því að stjórn bank­ans og banka­stjóri segi af sér? 

„Ég kalla eftir því að þau geri okkur, eig­endum sínum, grein fyrir því hvernig þau ætla að axla ábyrgð á þess­ari stöðu og sínum gjörðum,“ segir Katrín. 

Bankinn sem fylgdi ekki reglum

Stjórn­ar­and­staðan hefur kraf­ist þess að Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra axli póli­tíska ábyrgð á mál­inu. Katrín segir aftur á móti ekk­ert hafa komið fram um að óeðli­lega hafi verið staðið að und­ir­bún­ingi söl­unnar en þar taki ráð­herrar ákvarð­anir. 

„Síðan er það auð­vitað banka­sýslan sem á að ann­ast þetta fyrir hönd rík­is­ins. Samkvæmt þess­ari skýrslu, sem við eigum eftir að kafa betur í, þá virð­ast reglur hafa verið brotnar, skil­málum ekki verið fylgt og vill­andi upp­lýs­ingar verið gefnar. Mér finnst alveg blasa við hver ber ábyrgð á því.“

Er það þá ekki fjár­mála­ráð­herra? 

„Ég myndi telja að það væri bank­inn sem fylgir ekki regl­unum og gefur ekki réttar upp­lýs­ingar.“

Ber Bjarni þá enga ábyrgð? 

„Þarna er hafin fram­kvæmd þar sem á að fylgja ákveðnum reglum og það er ekki gert. Þá horfi ég auð­vitað til þess hver það er sem fylgir ekki regl­unum, það er bank­inn.“

Áfellisdómur

Stjórn­ar­and­staðan hefur kallað eftir því síðan salan fór fram í fyrra að rann­sókn­ar­nefnd verði skipuð sem fái það hlut­verk að fara yfir söl­una. 

Munt þú styðja kröfu um skipun rann­sókn­ar­nefndar? 

„Ég tel að bæði skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar og þessi skýrsla muni gefa heild­stæða mynd af þessu ferli öllu og það kalli ekki á frek­ari rann­sóknir en með þeim fyr­ir­vara að við eigum eftir að fara yfir þetta mál á vett­vangi rík­is­stjórnar. Ég tel að þessi skýrsla sýni mjög vel hvernig fram­kvæmd­inni var háttað.“

„Við köllum eftir því að stjórn og stjórn­endur axli ábyrgð á þessu ferli“
Katrín Jak­obs­dóttir,
for­sæt­is­ráð­herra

Katrín segir að í fram­hald­inu verði ráð­ist í að end­ur­skoða fyr­ir­komu­lag söl­unnar frá grunni og ítrekar að engin frek­ari sala muni fara fram fyrr en því er lokið. 

Sérðu fyrir þér að það ger­ist á þessu ári? 

„Ég þori ekki að segja nákvæm­lega til um það. Það verður bara að taka þann tíma sem það tekur því að stóra málið er að svona sala þarf að vera hafin yfir allan vafa. Þessi skýrsla er áfell­is­dómur yfir fram­kvæmd bank­ans og það getum við ekki látið end­ur­taka sig.“

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (8)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Brynja Óskarsdóttir skrifaði
    Það er sorglegt, aumlegt og skammarlegt þegar forsætisráðherra landsins telur sig enga ábyrgð bera á gjörðum ráðherra sinna og yppir áhyggjulausum öxlum yfir hverju stórmálinu á fætur öðru. Og kona þaraðauki! Það er hættulegt þegar hún leyfir dómsmálaráðherra að vígvæða lögreglu án lýðræðislegs samráðs við ríkisstjórn og Alþingi og beinir þarmeð farvegi lýðræðis í átt að einræði og ofbeldi. Og felur samþykkta stjórnarskrá alþýðunnar. Það er fáránlegt þegar hún forsætisráðherrann, skipstjórinn í brúnni, telur sig valdlausa í fjármálum þjóðarinnar og leyfir þarafleiðandi auðgunarbrot sérhagsmunaafla á kostnað lífsviðurværis hins almenna borgara: svo sem sést á að helstu auðlindir landsins færa örfáum ofurauð en fjöldanum versnandi heilbrigðisþjónustu, menntakerfi og lélegri vernd fjölskyldna og barna. OG nú síðast á lýðræði Alþingis í vök að verjast þegar forseti Alþingis tekur upp einræði í upplýsingagjöf sem alþingismenn, kjörnir fulltrúar þjóðarinnar eiga fullan rétt á að nálgast. En Katrín Jakobsdóttir, kona, forsætisráðherra þjóðarinnar, telur sig ábyrgðarlausa og valdlausa og vísar til almennra starfsmanna og borgara um að sinna ábyrgð. Hvað kom fyrir þig, Katrín Jakobsdóttir? Af hverju ættir þú að vera sú manneskja sem skiptir máli að stjórni? Ég velti fyrir mér að þú ættir að skipa svo fyrir að Rannsóknarnefnd Alþingis rannsaki allan fjárhagsrekstur ríkisstjórnar þinnar svo hægt verði að sýna hver ber pólitíska ábyrgð framar öðrum í stjórn landsins fyrst hvorki þú eða fjármálaráðherra kannist við slíkt. Skyldi engan undra að fjármálakerfið haldi að það megi hegða sér eins og það beri enga ábyrgð gagnvart almenningi. Ég mæli með að starfsleyfi allra deilda Íslandsbanka sem komið hafa að sölu bankans fyrr og nú verði tekið af þeim. Mæli einnig með að bankastjóranum verði sagt upp störfum strax. Svo mæli ég eindregið með að ríkisstjórninni verði sagt upp tafarlaust og að almenningur þessa lands hætti viðskiptum við Íslandsbanka og mæti til borgaralegrar uppreisnar á Austurvöll. Og kjósi aldrei aftur vinstri græna eða sjálfstæðisflokk.
    0
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    bjarN1 benediktsson er ekki stjórnmálamaður, hann er foringi stærstu skipulögðu glæpasamtaka Íslands, sjálfstæðisglæpasamtakanna.
    0
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Í alvörulandi er keðjuábyrð ábyrgðar og Bjarni er bullandi sekur og ekki mark á honum takandi... sér í lagi yfirlýsingar um þekkingarleysið á fjárfestingum föður hans enda Bjarni Beneficial Owner á aflandseyjaskráðu höllinni í Florida enda notaði hann bústaðinn þrátt fyrir að honum sem þingmanni og ráðherra væri fulljóst að um aflandseyjaskráða felueign væri að ræða.

    Frekar fyndið að fjármálaráðherrar notið hulduheimaeignir í R&R... en ekkert nýtt á Íslandi.

    Þetta er galið ástand og því miður ekki óhætta að sleppa neinum upplýsingum lausum því landinn og kerfið svæfir og kæfir allt. Breytingin frá 2000 er engin og allir dómarnir um "vondu" banksterana voru eins og allir erlendir sérfræðingar sáu í hendi sér... bara sýndarmennska.... því kerfið breytttist ekkert.

    Auðvitað veit Katrín af öllu... uppalin af Steingrími og meðvituð um allar hans gerðir... líka þegar hann vildi selja bretum sjálfsdæmið.

    En við fáum það sem við eigum skilið... ekki satt ?
    1
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Spillingin er svo svakalega mikil á Íslandi að ekkert verður gert , en hvers vegna er VG svona sokkin í spillingu ?
    3
  • Sveinn Hansson skrifaði
    Nei sko, klappstýran mætt.
    Bjaddni klapp klapp klapp, Bjadddni klapp klapp klapp.
    Er til meiri vesalingur í pólitík en Katrín ?
    4
  • Kári Jónsson skrifaði
    Hvað er Bjarni Ben með uppí erminni gegn Katrínu Jak sem þolir ekki dagsljósið ?Meðvirkni Katrínar Jak með Bjarna Ben er hreinlega átakanleg og öllum í sömu stöðu ráðlagt að leita sér aðstoðar hjá alanon-samtökunum. Bjarni Ben ber 100% ábyrgð á sölu ríkiseigna sem fjármálaráðherra í stjórnarráði Katrínar Jak.
    7
    • Sveinn Hansson skrifaði
      Nei sko, klappstýran mætt.
      Bjaddni klapp klapp klapp, Bjadddni klapp klapp klapp.
      Er til meiri vesalingur í pólitík en Katrín ?
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár