Íslandsbanki greiðir 1,2 milljarð í sekt vegna bankasölunnar

Stjórn Íslands­banka hefur geng­ist við því að bank­inn braut gegn ákvæðum laga í tengslum við banka­söl­una og sam­þykkt að greiða tæpa 1,2 millj­arða sekt. Í til­kynn­ingu sem birt var í kvöld kemur fram að brot bank­ans hafi verið „al­var­leg,“ sam­kvæmt nið­ur­stöðu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

Íslandsbanki greiðir 1,2 milljarð í sekt vegna bankasölunnar

Íslands­banki hefur sam­þykkt að greiða 1,2 millj­arða í sekt vegna brota sem Fjár­mála­eft­ir­litið metur „alvar­leg“. Málið varðar fram­kvæmd Íslands­banka á útboði Banka­sýslu rík­is­ins á 22,5% eign­ar­hlut Íslands­banka þann 22. mars 2022.

Alvarleg brot

Nið­ur­staða Fjár­mála­eft­ir­lits­ins var að „laga­kröfum og innri reglum bank­ans um veit­ingu fjár­fest­ing­ar­þjón­ustu hafi ekki verið fylgt í öllum til­vikum við und­ir­bún­ing og fram­kvæmd útboðs­ins, einkum hvað varðar hljóð­rit­anir sím­tala, upp­lýs­inga­gjöf til við­skipta­vina, flokkun fjár­festa og ráð­staf­anir gegn hags­muna­á­rekstrum,“ segir í til­kynn­ingu frá bank­anum, meðal ann­ars hvað varðar aðskilnað starfs­sviða og við­skipti starfs­manna. Inn­leið­ing stjórn­ar­hátta og innra eft­ir­lits hafi heldur ekki verið full­nægj­andi. 

Fjár­mála­eft­ir­litið taldi að bank­inn hefði átt að gera sér­stakt áhættu­mat í tengslum við útboðið, sem var ekki gert. Fram­kvæmd bank­ans við útboðið hafi ekki verið að öllu leyti í sam­ræmi við „eðli­lega og heil­brigða við­skipta­hætti og venjur í verð­bréfa­við­skiptum. Er það nið­ur­staða fjár­mála­eft­ir­lits­ins að brot bank­ans sam­kvæmt fram­an­greindu hafi verið alvar­leg.“

…

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • hún er ábyrg sem stjóri bankans
    1
  • HKG
    Hans Kristján Guðmundsson skrifaði
    Nú bíðum við eftir að þau sem sviku taki pokann sinn. Einhver hlóta að verða rekin.
    1
  • ÖBJ
    Örn Bárður Jónsson skrifaði
    Enginn látinn fjúka. Skoðið þetta frá Noregi þar sem ráðherra varða að segja af sér fyrir að skipa vini í stjórnir opinberra stofnana.
    https://www.nrk.no/norge/anette-trettebergstuen-gar-av-som-kulturminister-1.16457966
    2
  • Kári Jónsson skrifaði
    Takið eftir að Íslandsbanki = fyrirtækið borgar 1.2-milljarða í sekt vegna alvarlegra innherja-svika, hinsvegar var það starfsfólk bankanns sem framdi GLÆPINN, engar kröfur um að innherjasvikarar eða að Birna-bankastjóri hirði pokann sinn eða beri persónulega ábyrgð með fjársektum.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu