Formaður atvinnuveganefndar heyrði fyrst af hvalveiðislúttinu í fréttum

Stefán Vagn Stef­ánsson, formaður Atvinnu­veganefndar Alþingis, heyrði fyrst af hval­veiðibanni ráðherra í fjöl­miðlum og hefði kosið að ráðherra hefði kynnt það fyrst þing­flokkum stjórnar­flokkanna. Hann telur eðlilegt að atvinnu­veganefnd óski rökstuðnings.

Formaður atvinnuveganefndar
Formaður atvinnu­vega­nefndar Stefán Vagn Stef­áns­son, odd­viti Fram­sókn­ar­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og for­maður Atvinnu­vega­nefndar Alþingis, segir að ákvörðun ráð­herra hafi komið honum á óvart. Mynd: Bára Huld Beck

„Þetta kom mér bara mjög á óvart enda heyrði ég fyrst af þessu í gegnum fjölmiðla,“ segir formaður Atvinnu­veganefndar Alþingis, Stefán Vagn Stef­ánsson þingmaður Framsóknar­flokksins í Norðvestur­kjördæmi, um þá ákvörðun Svandísar Svavars­dóttur matvæla­ráðherra að slá af hval­veiðar, sem tilkynnt var um í morgun.

„Þetta er svo nýskeð að ég get eiginlega lítið tjáð mig efnislega um ákvörðunina.“ 

Stefán Vagn segir ljóst að ákvörðunar­valdið sem slíkt liggi hjá ráðherranum en að í ljósi umfangs málsins og umræðu um það, hefði honum þótt eðlilegra að ákvörðunin hefði verið kynnt þing­flokkum stjórnar­flokkana og samráð haft við atvinnu­veganefnd um málið.

„Ég verð að viðurkenna að mér hefði ekki þótt óeðlilegt að málið yrði kynnt stjórnar­flokkunum fyrst, við skulum orða það þannig,“ segir Stefán Vagn, sem staddur var á Hólmavík þegar Heimildin náði tali af honum. Stefán Vagn sagðist aðspurður ekki hafa tekið neina ákvörðun um að kalla saman atvinnu­veganefnd …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Það kemur fram í opinberum gögnum SjálfstæðisFLokksins að Hvalur ehf er einn helsti styrktaraðili hans.

    Ein helsta ástæða þess, að hvalveiðar hafa undanfarin ár verið stundaðar við Ísland, er sú að Hvalur ehf borgar feitt í kosningasjóði FLokksins :-)
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár