Að strjúka samfélaginu í öfuga átt

List­fræðingurinn Margrét Elísabet Ólafs­dóttir rýnir í sýninguna Boðflenna – en Snorri Ásmundsson sýnir nú í Lista­safni Reykja­nesbæjar.

Viðbrögð
Viðbrögð Tilvist verka Snorra Ásmunds­sonar hefur verið sam­tvinnuð umfjöllun um þau.
Myndlist

Boðflenna

Niðurstaða:

Sýning: Boðflenna Sýningarstaður: Listasafn Reykjanesbæjar Sýningarstjóri: Helga Þórsdóttir Tímabil: 17. maí - 20. ágúst

Gefðu umsögn

Sýningin Boðflenna í Lista­safni Reykja­nesbæjar er yfirlits­sýning á verkum Snorra Ásmunds­sonar, ólíkinda­tóls í íslensku listalífi sem skilgreina mætti sem nútíma naívista. Snorri er með öðrum orðum sjálf­menntaður í listinni en hann hefur eingöngu fengist við myndlist frá árinu 1996. Hann hefur frá upphafi lagt áherslu á málverk og gjörninga­list en tilvist gjörninga­verkanna hefur verið samtvinnuð umfjöllun fjölmiðla um verkin. Fyrsta uppátæki Snorra sem vakti fjölmiðla­athygli var sýning á verkum lista­kattarins Loka á Akureyri sumarið 1997 en elstu verkin á sýningunni í Reykja­nesbæ eru einmitt nokkur málverk eftir Snorra/Loka. Þar hefur þeim verið komið fyrir við hliðina á sjónvarps­skjá sem sýnir fréttir af framboðs­fundi Katta­framboðsins sem bauð fram í sveitar­stjórnar­kosningum á Akureyri vorið 2022.         

Að skilgreina Snorra  

Katta­framboðið er eitt af yngri verkum Snorra á sýningunni og dæmigert fyrir þær sakir að þar tvinnar Snorri saman líf og list sem renna saman í eitt án þess að hægt sé að greina þar á milli. Gjörningar Snorra búa yfir ásýnd veruleika sem birtist áhorf­endum í formi frétta sem eru sannar í þeim skilningi að Snorri þykist aldrei vera annar en hann er og kemur til dyranna eins og hann er klæddur í það skiptið. Hann er á vissan hátt andstæða Joseph Beuys, sem lét sig samruna lífs og listar varða, og bjó yfir sterkum persónu­leika og ímynd. Snorri Ásmundsson á meira skylt við Zelig því hann tekur á sig það gervi sem tíðar­andinn blæs honum í brjóst hverju sinni. Það er í þessari þversögn sem sann­leikur verkanna, aðdráttarafl þeirra og óþægindi birtast. Fyrir­myndir gervanna eru ímyndir fengnar úr fjöl­miðlum, hvort sem þær eru fulltrúar pólitískra valdhafa, andlegra leiðtoga, útlits­sérfræðinga, þjóðarímyndar eða lista­manna. Helga Þórs­dóttir sýningar­stjóri dregur þá sann­færandi ályktun að persónur Snorra séu ekki hluti af alter-egói hans heldur „hvíli í honum sjálfum“, þótt mögulega aðeins um stund.

Að sýna Snorra

Það er ekki einfalt að setja upp sýningu á verkum eftir Snorra Ásmundsson, sem byggja tilvist sína að stórum hluta á viðbrögðum fjölmiðla og því hvernig þeir miðla fréttum af gjörningum hans til almennings. Hluta þessarar umfjöllunar er að finna á sýningunni í formi blaða­úrklippa og frétta­skota en eitt einkenni þessa frétta­flutnings er að hann birtist ýmist í fréttum eða sem slúður, en sjaldnast á menningar­síðum eða sem list­gagnrýni. Verkin eru þá hluti af fjölmiðla­umhverfinu fremur en list­heiminum enda auðveldara að ná til fjöldans í gegnum fjölmiðla en með sýningu í lista­galleríi. Það má því fullyrða að Snorri Ásmundsson sé með þekktari lista­mönnum landsins þótt verk hans hafi oft farið öfugt ofan í þá sem fjalla um myndlist af meiri „alvöru“ en Snorri vill láta kenna sig við.     

Þegar verk Snorra eru komin saman á einum stað verður ekki annað séð en þau standist vel tímans tönn og hafi virkað í því rými sem hann hefur skapað sér hverju sinni. Er þá sama hvort um er að ræða íþróttasal (Master Hilarion, 2019), kirkju (Guðs­þjónusta í Hrís­eyjarkirkju, 2018), torg (Ástar­píramídinn 2006), svalir (Fjall­konan, 2020), heimili stjórn­málaflokks (Sjálfstæðis­maðurinn, 2009), sjónvarpssal (Forseta­framboðið (2003)) eða sölutorg (Afláts­bréf, síðan 2003). Snorra tekst alltaf að smeygja sér inn og strjúka sér óþægilega upp við hin ýmsu málefni, hvort sem þau eru af trúar­legum toga, pólitískum eða samfélags­legum. Hann gerir það með einlægni naívistans að vopni, þess sem kærir sig kollóttan um annað samhengi, og kemur alltaf niður standandi hversu illa sem verkin kunna að koma við þau sem strokist er upp við.  

Að vera Snorri

Þegar gengið er í gegnum sýninguna í Lista­safni Reykja­nesbæjar verður ekki hjá því komist að viðurkenna að verk Snorra virka eins og samfélags­púls. Honum tekst að snerta einhverja kviku í þjóðar­sálinni á hverjum tíma með því að máta sig við hana. Í ljós­myndinni The American Dream (2006) sefur Snorri vært á hvítum rúmfötum, með pípuhatt með mynstri ameríska fánans á höfðinu og frelsis­styttuna í fanginu – þetta er í miðjum efnahags­uppganginum. Í gjörn­ingnum Hnakka og skinkur (2011) sem fluttur var á umdeildri sýningu, Koddu, í Nýlista­safninu rétt eftir hrun, beinir hann að okkur hinni hlið spegilsins og allt verður vitlaust. Sýningin Boðflenna ber nafn með réttu því Snorri treður sér alls staðar að, óboðinn. Hann er við og við erum hann með alla okkar bresti og hégóma og jafnframt leynda þrá eftir aflausn. Á sýningunni er einnig að finna málverk frá ólíkum tímabilum, tónlistar­upptökur, ljós­myndaröð og sýningar­skrá með greinar­góðum textum, þar sem þó hefði mátt halda betur utan um upplýsingar um stað­reyndir um fjölskrúðugan listferil Snorra Ásmunds­sonar.  

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár