Yfirlýsingar lögmanns Samherja í mótsögn við forstjóra

For­svars­menn Samherja, þar á meðal Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri, hafa haldið því fram að Namib­íu­málið hafi engin áhrif haft á við­skipti sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins. Lögmaður fyr­ir­tæk­is­ins sagði hins vegar fyrir dómi í Bret­landi í síð­asta mán­uði að stórir við­skipta­vinir hefðu stöðvað við­skipti sín við fyr­ir­tækið í kjöl­far umfjöll­unar um málið.

Yfirlýsingar lögmanns Samherja í mótsögn við forstjóra
Ósamræmi Ekki er sam­ræmi milli yfir­lýs­inga for­svars­manna Samherja, Björg­ólfs Jóhanns­sonar fyrr­ver­andi setts for­stjóra, og Þor­steins Más Bald­vins­sonar for­stjóra ann­ars vegar, og lög­manns fyr­ir­tæk­is­ins hins vegar. Mynd: Vísir/Sigurjón

Yfir­lýs­ingar lög­manns Samherja í lög­banns­máli vegna list­gjörn­ings­ins „We‘re Sorry“ í Bret­landi í lok síð­asta mán­aðar stang­ast á við fyrri mál­flutn­ing for­svars­manna sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins. Í yfir­lýs­ingum lög­manns­ins, Christophers James Grieveson, kom fram að í kjöl­farið á upp­ljóstr­unum fjöl­miðla um fram­göngu fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu hefði fyr­ir­tækið orðið fyrir veru­legu við­skipta­legu tjóni. Það gengur í ber­högg við yfir­lýs­ingar til að mynda Þor­steins Más Bald­vins­sonar, for­stjóra Samherja, og Björg­ólfs Jóhann­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra, sem báðir hafa lýst því að málið hafi ekki haft áhrif á við­skipti fyr­ir­tæk­is­ins.

Fyrst var greint frá Namib­íu­mál­inu í nóv­em­ber árið 2019, þegar Stundin, Kveikur, Wikileaks og Al Jezeera sögðu frá því að útgerð­ar­fé­lagið Samherji hefði stundað stór­felldar mútu­greiðslur, í gegnum net skatta­skjóla, til stjórn­mála­manna- og emb­ætt­is­manna í Namibíu í því skyni að ná til sín fisk­veiði­kvóta.

Sagði málið ekki hafa haft teljandi áhrif á rekstur

Á Þor­láks­messu það sama ár sendi Björgólfur Jóhanns­son, þá starf­andi for­stjóri Samherja, starfs­fólki fyr­ir­tæk­is­ins bréf þar sem hann fór yfir málið og sagði þar meðal ann­ars: „Sem betur fer hefur þetta mál ekki haft telj­andi áhrif á rekst­ur­inn og þar er fyrst og fremst ykkur að þakka.“

„Við höf­um ekki tapað nein­um við­skipta­vin­um hingað til“
Björgólfur Jóhanns­son
settur for­stjóri Samherja, í við­tali við Intra­Fish í jan­úar 2020

Í jan­úar 2020 sagði Björgólfur jafn­framt í við­tali við fisk­veiði­frétta­vef­inn Intra­Fish að Samherji hefði ekki tapað neinum við­skipta­vinum frá því að greint var frá Namib­íu­mál­inu. „Við höf­um ekki tapað nein­um við­skipta­vin­um hingað til en þeir eru áhyggju­fullir vegna þessa og við höfum unnið mjög náið með þeim.“

Namib­íu­málið var þarna aðeins tveggja mán­aða gam­alt og því mögu­legt að áhrif þess hafi ekki verið komin fram í við­skiptum Samherja. Hins vegar, ef marka má síð­ari yfir­lýs­ingar for­svars­manna fyr­ir­tæk­is­ins, komu nei­kvæð við­skipta­leg áhrif alls ekki fram yfir­höfuð.

Þorsteinn sagði samstarfsaðila hafa haldið tryggð við Samherja

Á vef Samherja var í júlí á síð­asta ári birt frétt um árs­upp­gjör fyr­ir­tæk­is­ins og vísað í aðal­fund þess sem hald­inn var á Dalvík 19. júlí 2022. Í frétt­inni var vitnað í ræðu Þor­steins Más Bald­vins­sonar for­stjóra þar sem hann ræddi rann­sókn á starf­semi Samherja í Namibíu. Þar sagði Þor­steinn: „Í þessu sam­bandi er ánægju­legt að geta und­ir­strikað að sam­starfs­að­ilar okkar um allan heim hafa haldið tryggð við okkur.“

„Mik­il­vægir sam­starfs­að­ilar fyr­ir­tæk­is­ins, eins og bankar, birgjar og stórir við­skipta­vinir hafa haldið tryggð við fyr­ir­tækið“
Úr árs­reikn­ingi Samherja fyrir árið 2021

Í árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins fyrir árið 2021 segir einnig, um rann­sókn­ina á Namib­íu­mál­inu, að „mik­il­vægir sam­starfs­að­ilar fyr­ir­tæk­is­ins, eins og bankar, birgjar og stórir við­skipta­vinir hafa haldið tryggð við fyr­ir­tækið“.

Töluvert átak þurfti til

Allar þessar yfir­lýs­ingar eru í mót­sögn við vitn­is­burð Christophers James Grieveson, lög­manns hjá norsku lög­fræði­stof­unni Wikborg Rein. Grieveson kom fram sem lög­maður Samherja í lög­banns­máli sem fyr­ir­tækið höfð­aði á hendur Oddi Eysteini Frið­riks­syni, Odee, í síð­asta mán­uði úti í Bret­landi. Fór fyr­ir­tækið fram á að sett yrði lög­bann á vef­síð­una sam­herji.co.uk, sem er hluti af list­gjörn­ingi Odds, „We‘re Sorry“.

„Kærandi telur veru­legar líkur á frek­ari skaða á orð­spori sínu hjá við­skipta­vinum“
Christopher James Grieveson
lög­maður Samherja

Í vitn­is­burði Grieveson rakti hann meðal ann­ars að þegar ásak­anir á hendur Samherja vegna fram­ferðis fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu komu fram hefðu sumir stærstu við­skipta­vinir Samherja í Bret­landi stöðvað við­skipti við fyr­ir­tækið. Það hefði misst tölu­verð við­skitpi og það hefði þurft „veru­legt átak“ af hálfu Samherja til að ná að létta stöðv­un­inni. „Kærandi telur veru­legar líkur á frek­ari skaða á orð­spori sínu hjá við­skipta­vinum. Í það minnsta myndi staðan kalla á veru­legar fjár­hæðir í kynn­ingar- og almanna­tengsla­kostnað.“

Grieveson bætti enn fremur við að vel­vilji væri til staðar í Bret­landi í garð vöru­merk­is­inns Samherja en sá vel­vilji fengi högg vegna notk­unar lista­manns­ins á vöru­merk­inu án heim­ildar. „Enn fremur eru margir af breskum við­skipta­vinum, og hugsna­legum við­skipta­vinum, fiskaf­urða kær­anda [Samherja] stór­fyr­ir­tæki sem, af aug­ljósum ástæðum, hafa tölu­verðar áhyggjur af stöðu mála eins og full­yrt er að þau séu í hinni fölsuðu frétta­til­kynn­ingu. Það eru miklar líkur á að lestur hinnar fölsuðu frétta­til­kynn­ingar muni hafa áhrif á sam­skipti þeirra við kær­anda og valda alvar­legu fjár­hagstjóni, annað hvort með því að þeir eigi alls ekki við­skipti eða með því að kær­andi þurfi að leggja í veru­legan kostnað til að draga úr áhyggjum þeirra.“

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Har har har.

    Með ólíkindum hvað menn geta búið til skemmtileg ævintýri sem skauta léttilega framhjá frekar auðsóttum staðreyndum... en keisarinn þarf jú ekki föt ef hann hefur góða að sem harðneita nekt hans.

    "Það eru miklar líkur á að lestur hinnar fölsuðu fréttatilkynningar muni hafa áhrif á samskipti þeirra við kæranda og valda alvarlegu fjárhagstjóni, annað hvort með því að þeir eigi alls ekki viðskipti eða með því að kærandi þurfi að leggja í verulegan kostnað til að draga úr áhyggjum þeirra.“

    Og hvað halda menn gerist ef viðskiftavinir Samherja fá greinagóðar gagnastuddar lýsingar á hvað raunverulega gerðist og hvernig þeir ómeðvitað... eða meðvitað .... tóku þátt í því... með tilvísunum um sambærileg mál og afleiðingarnar sem þeir sem þeim tengdust urðu fyrir þegar tekið var á þeim málum með fullum ásetningi og vönduðum vinnubrögðum aðila sem íslensk stjórnvöld hafa engin tök á að hafa áhrif á ?

    Ó... sönnun þess að það var Deutsche Bank sem var valdur að íslenska bankahruninu finnst meðaL annars með því að lesa stofnskjöl og stoðgögn varðandi stofnun Burlington Loan Management. Þarf nú ekki mikla rannsóknarvinnu til að sjá það... enda ekki að ástæðulausu sem Ramos dómari snéri sér 180 gráður og henti NY málinu út... því annars hefðum við setið í arfaslæmri stöðu gagnvart kröfuhöfum.

    Haldið þið virkilega að kröfuhafar hafi farið í milljarða málaferli til að fá upplýsingar um það sem Kroll var búið að grafa upp ??? Hugmyndin kom frá þáverandi yfirmanni LA deildar Kroll sem var fyrrverandi saksóknari í NY. Flettið því nú upp... er á netinu.

    í sporum Samherja.... myndi ég hafa verulegar áhyggjur... og ekki af einhverjum listamanni sem siglir undir fölsku flaggi. Fyrir þá er öll umfjöllun af hinu illa.

    Stórundarleg þessi naflaskoðun íslenskra stjórnvalda og rannsóknaraðila... sem velja og hafna... á grundvelli góðrar tilfinningar í stað þess að sækja sér gögnin og hreinsa þetta leiðindarmál út af borðinu áður en það stórskaðar íslenskan fiskútflutning.... því það er óhjákvæmileg afleiðing.

    Tíminn vinnur ekki með ykkur viðvaningarnir mínir... peningarþvætti fyrnist seint og skaðabótalögmennirnir erlendu eru ennþá að bíða eftir að röðin komi að þeim.

    Og heldur seint að loka Kýpversku skúffunum eftir að búið var að taka afrit af þeim hlutanum.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár