Alvöru flóttamenn og gerviflóttamenn

Orðræða Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra miðar að því að skipta flótta­mönnum upp í tvo mis­mun­andi flokka, þá sem eru alvöru flótta­menn og hina sem eru það ekki. Telur hann að flótta­menn frá Venes­ú­ela til­heyri seinni hópnum. Flótta­menn þaðan setj­ist upp á vel­ferð­ar­kerfið hér á landi.

Alvöru flóttamenn og gerviflóttamenn

„Börn flótta­manna fá for­gang inn í leik­skóla. Að hluta til eru vand­ræði Reykja­vík­ur­borgar í leik­skóla­málum að því að það er að koma svo mikið af börnum erlendis frá með flótta­mönnum.“

Sá sem hér talar er Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra, sá sem fer með mála­flokk flótta­manna og umsækj­enda um alþjóð­lega vernd hér á landi. Hann sagði þetta í hlað­varps­þætt­inum „Chat after dark“ þann 16. mars síð­ast­lið­inn, eða dag­inn eftir að útlend­inga­frum­varpið sem hann lagði fyrir þingið var sam­þykkt. 

Þennan sama dag fagn­aði hann sam­þykktu frum­varpi á Facebook-vegg sínum. Breyt­ing­arnar væru nauð­syn­legar til þess að ein­stak­lingar sem „þarfn­ast raun­veru­legrar verndar“ fái vand­aða og skjóta úrlausn mála. Fólk fagn­aði með og skrif­aði undir: „Vel gert, Jón, hér á Suð­ur­nesjum eru þessi mál komin í óefni,“ sagði einn og annar: „Leggja svo niður kæru­nefnd útlend­inga­mála strax!“

Á sínum ferli hefur dóms­mála­ráð­herra margoft gripið í þetta …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flóttafólk frá Venesúela

Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár