„Ég finn mikinn mun á geðheilsunni“

Lilja Björt Krist­bergsdóttir ákvað að nýta sér 75 daga áskorunina sem notið hefur mikilla vinsælda á TikTok til að auka lífsgæði sín. Hún finnur mikinn mun á andlegri og líkamlegri líðan en Lilja tekur einn dag í einu og sýnir sér mildi.

Lilja Björt Kristbergsdóttir
Lilja Björt Krist­bergs­dóttir finnur mik­inn mun á and­legri og lík­am­legri heilsu eftir að hún byrj­aði á 75 daga áskor­un­inni. Mynd: Aðsend

Til þess að ná árangri getur verið gott að setja sér markmið, eitthvað til að stefna að. Sumum finnst þægilegt að setja sér eitt markmið í einu á meðan aðrir vilja umturna hversdags­lífi sínu og byrja af krafti. Hver svo sem þín leið er, þá gæti 75 daga áskorunin verið fyrsta skrefið í átt að heilsusamlegra lífi.

75 dagar af nýjum vana

Á TikTok hefur hin svokallaða „75 daga áskorun“ náð miklum vinsældum undan­farið. Annaðhvort fara notendur erfiðari leiðina (75 hard) eða auðveldari leiðina (75 soft). Í raun og veru má breyta áskoruninni að vild, svo lengi sem viðkomandi leggur sig fram um að skapa nýja vana á hverjum degi í 75 daga. Þessi tiltekni vani, eða vanar, eiga að bæta lífsgæði viðkomandi til lengri tíma.  

Áður en lengra er haldið: Öllum tísku­bylgjum á samfélags­miðlum ber að taka með fyrirvara enda er það …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár