Maðurinn með götótta gítargarminn

Gítarinn lítur út eins og hauga­matur, strengirnir gerðir úr dýra­görnum og eig­and­inn syngur aldrei á takt­inum. Hann hefur gefið út fleiri en 100 plötur sem hafa selst í yfir 60 millj­ónum ein­taka og er einn þekkt­asti sveita­söngv­ari heims. Willie Nelson er orð­inn níræður og enn að.

Maðurinn með götótta gítargarminn
Verð­laun­aður Willie Nelson var heiðr­aður á LBJ Liberty and Justice for All Award Gala í Texas í gær, 12. maí. Mynd: AFP

Þegar Willie Nelson birt­ist á svið­inu með gít­ar­inn munu ókunn­ugir vart geta ímyndað sér að hægt sé að ná ein­hverjum tóni úr þessum gít­ar­g­armi. Götóttur, risp­aður og útkrot­aður. Þeir sem til þekkja vita betur.  Snemma árs 1969 gaf hljóð­færa­fram­leið­and­inn Baldwin Willie Nelson magn­ara og gítar með Pris­matone pickup. Balwin fyr­ir­tækið, sem var stofnað árið 1857, var einkum þekkt fyrir smíði á píanóum og org­elum var á þessum árum að reyna hasla sér völl sem gít­ar­fram­leið­andi.

Baldwin hafði fengið verk­fræð­ing­inn Robert C. Sherer til að hanna pickup (hér vantar íslenskt orð) sem sér­stak­lega væri ætl­aður fyrir nælon­strengi. Willie Nelson hafði ein­ungis átt þennan gítar í nokkra mán­uði þegar hann skemmd­ist. Shot Jackson, þekktur hljóð­færa­sali, með smiði á sínum snærum, sagði gít­ar­inn svo illa far­inn að ekki yrði hægt að gera við hann. Hann ráð­lagði Willie að kaupa Martin N-20 klass­ískan gítar og að ósk Willie var Pris­maton picuppinn settur í nýja gít­ar­inn. Willie gaf honum nafnið Trigger og sagði aðspurður að hann hefði nefnt í höf­uðið á hesti Roy Rogers. Þennan gítar hefur Willie notað æ síðan.

Fjöl­margir tón­list­ar­menn hafa gegnum árin ritað nöfn sín á gít­ar­inn, fyrstur til þess var Leon Russell (1942- 2016) en hann og Willie voru góðir vinir. 

Trigger bjargað úr eldinum

Á Þor­láks­messu árið 1969, sama árið og Wille Nelson eign­að­ist Trigger, kom upp eldur í húsi hans í smá­bænum Ridgetop í Tennessee, skammt frá Nas­hville. Þegar Willie kom heim stóð húsið í björtu báli en Willie óð inn í eld­inn og kom til baka með gít­ar­inn Trigger, sem ekki hafði hafði haft gott af hit­anum, og hálft kiló af mari­júana. „Ég ætl­aði ekki að láta lögg­una nappa mig fyrir hamp­inn og Trigger bjarg­aði ég af aug­ljósum ástæðum.“

Meðal þess sem eyði­lagð­ist í brun­anum voru tugir seg­ul­banda, sem lögum sem ýmist voru hálf- eða full­kláruð. „Maður getur alltaf skrifað ný lög, en það er bara einn Trigger“ sagði hann þegar spurt var hvort ekki hefði verið nær að bjarga seg­ul­bönd­unum en gít­arnum. 

Í tónlistinni frá unga aldri

Willie Nelson fædd­ist í þorp­inu Abbott í Texas 29. apríl 1933. Fæð­ing­ar­dag­ur­inn er þó í opin­berum gögnum sagður 30. apríl en þetta mis­ræmi stafar að lík­indum af því að fæð­ingin var ekki til­kynnt og skráð fyrr en dag­inn eftir að dreng­ur­inn kom í heim­inn. Willie ólst upp hjá föð­ur­for­eldrum sínum ásamt Bobbie systur sinni, sem var tveimur árum eldri, for­eldr­arnir skilu þau eftir hjá ömmu og afa og fóru hvort í sína átt­ina. Föð­ur­for­eldr­arnir voru músikalskir og snemma kom í ljós að þau Willie og Bobbie höfðu erft tón­list­ar­gáf­urnar.

Þegar Willie var sex ára gáfu afinn og amman honum gítar og kenndu honum nokkur grip, og jafn­framt kenndu þau Bobbie á píanó. Afinn og amman voru trúuð og Willie hefur alla ævi verið mjög trú­aður. Þau systk­inin sungu saman í kirkjukórnum í þorp­inu og Willie spil­aði á gít­ar­inn. Willie samdi fyrsta lagið þegar hann var sjö ára gam­all og níu ára gam­all spil­aði hann í hljóm­sveit. Afinn og amman unnu við bómull­ar­tínslu á sumrin, eins og flestir þorps­búar í Abbott, Willie leidd­ist bómull­ar­tínslan en afl­aði tekna með söng þar sem slíkt bauðst. Þrettán ára var hann far­inn að spila og syngja á knæpum á svæð­inu og hélt því áfram þangað til hann útskrif­að­ist úr Abbott High School, sautján ára gam­all. Hann var í körfu­boltaliði skól­ans og einnig í fót­boltaliði (american football) skól­ans. Meðfram þessu söng hann og spil­aði í hljóm­sveit­inni The Texans.

Flugher, landbúnaðarfræði og fyrsta upptakan

Árið 1950, að loknu mennta­skóla­prófi, fór Willie í flug­her­inn. Eftir nokkra mán­uði kom í ljós að hann var bak­veikur og eftir tæp tvö ár var endi bund­inn á her­mennsk­una. Árið 1954 hóf Willie nám í land­bún­að­ar­fræðum við Baylor háskól­ann í Waco í Texas. Hann hætti í skól­anum árið 1956 til að ein­beita sér að tón­list­inni. Jafn­framt stund­aði hann ýmis konar vinnu því tón­listin gaf ekki mikið í aðra hönd. Hann fékk vinnu sem plötu­snúður hjá útvarps­stöð­inni KBOP í Ple­a­santon í Texas.

Þarna, árið 1955, hljóð­rit­aði Willie í fyrsta sinn lög eftir sjálfan sig „The storm has just begun“ og „When I´ve sung my last hill­billy song. Fyrr­nefnda lagið samdi hann þegar hann var sjö ára og þessi tvö lög voru tekin upp á notuð seg­ul­bönd. Upp­tök­urnar sendi hann til SARG útgáfu­fyr­ir­tæk­is­ins sem hafn­aði þeim.

Fyrstu hljóm­plöt­una gerði Willie Nelson árið 1956, hún vakti litla athygli og Willie ákvað nokkru síðar að snúa baki við tón­list­inni og sneri sér aftur að sölu­mennsk­unni, seldi meðal ann­ars ryksugur og bibl­íur.

Nashville

Árið 1960 flutti Willie Nelson til Nas­hville Tennesse. Vinur hans hafði sagt honum að það væri „stað­ur­inn“. Þar gekk hann á milli útgef­enda sem sýndu honum lít­inn áhuga en Willie fram­fleytti sér með lausa­mennsku í tón­list­inni. Kvöld eitt hitti hann Hank Cochran, tón­list­ar­mann og laga­höf­und, sem vann fyrir útgáfu­fyr­ir­tækið Pamper Music. Hank hafði heyrt og séð Willie spila og syngja nokkrum dögum fyrr á skemmti­stað í Nas­hville og nú vant­aði skyndi­lega bassa­leik­ara í hljóm­sveit Ray Price, sem var annar eig­enda Pamper Music. 

Willie Nelson kunni ekk­ert að leika á basa en tók samt starfið að sér. Þótt hann hafi ekki ennþá náð að slá í gegn sem flytj­andi voru ýmsir þekktir tón­list­ar­menn búnir að upp­götva lög hans. Maður að nafni Charlie Dick heyrði eitt kvöldið, á bar í Nas­hville lag eftir Willie Nelson og fékk hann til að spila fyrir sig prufu­upp­töku af lag­inu. Í fram­hald­inu bauð Charlie Dick Willie að koma með sér heim og leyfa eig­in­konu sinni að heyra lagið, hún væri söng­kona. Það var komið fram á nótt þegar þeir komu heim til Charlie Dick og Willie leist ekki á blik­una. Eig­in­kona Charlie Dick reynd­ist vera Patsy Cline, hún ákvað að hljóð­rita lagið, sem heitir „Crazy“ sem kom út á plötu árið 1961. Patsy Cline var þá  orðin þekkt söng­kona og lagið „Crazy flaug upp vin­sælda­listana og er sagt vera það lag sem oft­ast hefur verið leikið í glymskröttum (juke­box) í öllum heim­inum.

RCA Victor

Haustið 1964 samdi Willie Nelson, fyrir til­stilli gít­ar­leik­ar­ans Chet Atkins, við útgáfu­fyr­ir­tækið RCA Victor. Vorið 1965 kom út fyrsta plata hans hjá RCA Victor „Country Willie – His own songs.

Á RCA Victor árunum gekk á ýmsu en uppúr sam­vinn­unni slitn­aði árið 1972, vegna deilna. Willie Nelson ákvað að hætta í tón­list­inni, þá ákvörðun dró hann þó fljót­lega til baka.

Bandera, Austin og frægðin

Eftir hús­brun­ann í Ridgetop, sem áður var á minnst keypti Willie Nelson búgarð í skammt frá Austin í Texas en flutti síðan á annan búgarð á sama svæði. Segja má að frægð­ar­sól hans hafi fyrir alvöru risið á árunum eftir 1970, þegar hann var fluttur á Austin svæðið. Þá stofn­aði hann hljóm­sveit­ina „The Family“, þar voru ýmsir sem höfðu unnið með Willie áður en einnig nýtt fólk. Bobbie, systir Willie, gekk til liðs við þessa sveit og starf­aði með henni til dauða­dags 2022. Um svipað leyti og Willie flutti til Austin voru þar fyrir nokkrir tón­list­ar­menn (og þeim átti eftir að fjölga) sem sömdu og fluttu sveita­tón­list sem var hrárri og óheflaðri en sú sem kennd var við Nas­hville. Willie var um tíu ára skeið félagi í hljóm­sveit­inni „The Highwaymen“

ásamt Johnny Cash, Waylon Jennings og Kris Kristoffer­son. Þessi „súpergrúppa“, sem starf­aði óreglu­lega, gerði þrjár plötur.

Tónlistar- og söngstíllinn

Þótt Willie Nelson sé fyrst og fremst maður sveita­tón­list­ar­innar er tón­listin blanda úr ýmsum áttum, rokk, þjóð­lagatón­list, djass og rokk. Nefmælt og  iðu­lega titr­andi röddin er líka auð­þekkt. Annað sem ein­kennir flutn­ing­inn er að Willie syngur ekki á takt­inum, oft­ast aðeins á eftir, sem gerir þeim sem með honum spila erfitt fyrir.

Skatturinn og skuldirnar

Árið 1990 voru nær allar eignir Willie Nelson gerðar upp­tækar af skatt­inum. Í ljós hafði komið að end­ur­skoð­andi Willie hafði ekki staðið skil á skatt­greiðslum sem náum tugum millj­óna doll­ara. Willie gat ekki borgað og því voru eign­irnar kyrr­settar. Þótt þetta væri mikið högg hafði Willie mestar áhyggjur af gít­arnum Trigger og til að koma í veg fyrir að skatt­ur­inn kæm­ist með putt­ana í hann fékk Willie dóttur sína til að fela Trigger og hann var svo í geymslu til árs­ins 1993 en þá hafði Willie tek­ist að greiða alla skatta­skuld­ina og fá eigur sínar til baka.

Hefur komið víða við

Í stuttum pistli er ekki hægt að gera grein fyrir öllu því sem Willie Nelson hefur tekið sér fyrir hendur. Hann hefur gefið út um 100 hljóm­plötur, komið fram í að minnsta kosti 30 kvik­myndum og skrifað all­nokkrar bækur. Hann hefur sömu­leiðis starfað að ýmsum bar­áttu­málum, var meðal ann­ars einn stofn­enda FarmAid tón­leik­anna sem haldnir hafa verið nær árlega frá árinu 1986. Allur hagn­aður af tón­leik­unum rennur til bænda og ætlað að sjá til þess að bú þeirra og bústofn falli ekki í hendur banka og stór­eigna­manna. 

Willie Nelson sem nú stendur á níræðu hefur lengi barist fyrir lög­leið­ingu mari­júana og margoft verið hand­tek­inn með slíkt efni í fórum sínum. Hann segir að hamp­ur­inn hafi bjargað lífi sínu en hætti þegar hann var 35 ára að reykja Chesterfield sígar­ettur og drekka viskí.

Í við­tali við tón­list­ar­tíma­ritið Rolling Stone fyrir tveimur árum sagði hann þegar talið barst að notkun hans á mari­júana „ef ég hefði haldið áfram að reykja sígar­ettur og drekka eins og ég gerði á fer­tugs­aldr­inum hefði ég ekki orðið nema 85 ára.“

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár