Aukin skattlagning í Noregi lætur eiganda Arnarlax einbeita sér að Íslandi

Norska laxeldis­fyrirtækið Salmar, eigandi Arnarlax á Bíldudal, segir í árshluta­uppgjöri sínu sem kynnt var í gær að starfsemin á Íslandi hafi aldrei gengið eins vel og fyrstu mánuði ársins. Salmar hefur hins vegar áhyggjur af aukinni skatt­lagningu á laxeldi í Noregi og þess einbeitir félagið sér frekar að fjár­festingum í öðrum löndum eins og Íslandi.

Metframleiðsla á Íslandi
Met­fram­leiðsla á Íslandi Norska lax­eld­is­fyr­ir­tækið Salmar greinir frá því að fram­leiðsla Arnarlax á Íslandi hafi slegið met fyrstu þrjá mán­uði árs­ins. For­stjóri Salmar, Frode Arntsen, sést hér á mynd. Mynd: Ivan Kverme

Aukin skatt­lagning á laxeldi í Noregi gerir það að verkum að norska laxeldis­fyrirtækið Salmar, eigandi Arnarlax á Bíldudal, einbeitir sér frekar að fjár­festingum í öðrum löndum þar sem það er með starfsemi, meðal annars Íslandi. Þetta kemur fram í árshluta­uppgjöri Salmar sem kynnt var í gær. Um er að ræða uppgjör á starfsemi félagsins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins. Norðmenn hafa boðað aukinn auðlinda­skatt á laxeldi í Noregi og stendur til að hækka skatt­prósentuna úr 22 prósentum í 57. 

„Starf­semin á Íslandi skil­aði met fram­leiðslu og áfram­hald­andi góðum rekstr­ar­nið­ur­stöðum.“
Úr árs­hluta­upp­gjöri Salmar sem kynnt var í vik­unni

Kjartan sagði tækifæri fyrir Ísland í skattheimtunni

Þessi niður­staða Salmar rímar ágætlega við það sem Kjartan Ólafsson, stjórnar­formaður Arnarlax, hefur sagt um möguleg áhrif skatt­lagningarinnar fyrir Ísland. Í viðtali í fyrra líkti hann þessum aðstæðum við það hvernig íbúar Noregs …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þ
    Þórbergur skrifaði
    Hér er ekkert hugsað fyrir samfélagslegum stuðningi, bara skyndigróði. Þar af leiðir að ekki er hægt að hleypa þessari starfsemi lengra gjaldalaust.
    0
  • Eysteinn Gunnarsson skrifaði
    Hverjir stjórna landinu.?????
    0
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Hvers vegna eru Íslendingar að gefa Norðmönnum frjálsan aðgang að þessari auðlind okkar meðan aðrar þjóðir taka gjald fyrir afnotin, þar á meðal Færeyingar.
    3
    • Þorsteinn Bjarnason skrifaði
      Vegna þess að Island er mjög spillt land og hægt að múta stjórnmálamönnum/flokkum
      það á auðvitað að hækka veiðileyfa
      gjöldin og bankaskatt líka en það
      er að einhverjum undarlegum
      ástæðum ekki gert heldur.
      3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár