Hvað þýðir að vera öðruvísi?

Er sá sem er öðru­vísi sér­stakur – eða jafn­vel ein­stakur? Felur sér­staðan í sér að við­kom­andi sé betri en aðrir? Um þetta var fjallað á mál­þingi í Háskóla Íslands í erind­inu: Sér­stöðu­hyggja og landa­mæri Evrópu. Þar kom fram að hverjum þykir sín sér­staða sér­stök­ust.

Hvað þýðir að vera öðruvísi?
Allir sér­stakir Mann­fræð­ing­ur­inn Kristín Lofts­dóttir telur að flestir telji sig hafa ein­hverja sér­stöðu. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sé hug­takið sér­staða slegið inn í leit­ar­vél koma upp fjöl­mörg dæmi um sér­stöðu ýmissa hópa. „Vill að Suður-Ítalía fái sér­stöðu“, er fyr­ir­sögn fréttar um að for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu vilji að suð­ur­hluti lands­ins fái sér­staka styrki frá Evr­ópu­sam­band­inu. Alveg eins og hverf­is­ráð Gríms­eyjar vill und­an­þágu frá banni á svart­fuglsveiðum vegna sér­stöðu Gríms­eyjar. Atvinnu­rek­andi í veit­inga­geir­anum vill að tekið verði til­lit til sér­stöðu grein­ar­innar í kjara­samn­ingum og for­svars­menn Eflingar telja að hærri fram­færslu­kostn­aður á höf­uð­borg­ar­svæð­inu rétt­læti sér­með­ferð í kjara­samn­ingum. 

Hug­myndin um að þjóð, sam­fé­lag, fyr­ir­tæki, stofnun eða annað fyr­ir­bæri sé sér­stakt og eigi þess vegna að njóta ákveð­inna for­rétt­inda er ekki ný af nál­inni, en slíka hugsun kalla fræði­menn sér­stöðu­hyggju. Hún byggir oft­ast á raun­veru­legum sér­kennum við­kom­andi hóps, sem gera ein­stak­lingum innan hóps­ins kleift að sam­sama sig hópnum. Þörfin fyrir að til­heyra er mjög sterkt ein­kenni mann­skepn­unnar og þjóð­ern­is­hyggjan, ein teg­und sér­stöðu­hyggju, er hreyf­ing sem hefur tek­ist að virkja þessa þörf og …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár