Katrín: Starfsemi kínversku rannsóknarmiðstöðvarinnar aldrei farið fyrir þjóðaröryggisráð

Málefni norð­ur­ljósa­rann­sókn­ar­mið­stöðvar Kín­versku heim­skauta­stofn­un­ar­innar í Þing­eyj­ar­sýslu hafa aldrei farið fyrir þjóðar­ör­ygg­is­ráð Íslands. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að eft­ir­lit með rann­sókn­ar­mið­stöð­inni sé hendi ráð­herra háskóla­mála. NATO hefur meðal ann­ars haft áhyggjur af rann­sókn­ar­mið­stöð­inni.

Rannsóknarmiðstöð sem lýtur engu eftirliti
Rann­sókn­ar­mið­stöð sem lýtur engu eft­ir­liti Rann­sókn­ar­mið­stöð Kínversu heim­skauta­stofn­un­ar­innar á Íslandi hefur ekki lotið neinu eft­ir­lit og meðal ann­ars ekk farið fyrir þjóðar­ör­ygg­is­ráð Íslands. He Rulong er sendi­herra Kína á Íslandi. Mynd: Heiða Helgadóttir

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að rann­sókn­ar­mið­stöð Kín­versku heim­skauta­mið­stöðv­ar­innar á Kárhóli í Þing­eyj­ar­sýslu hafi aldrei farið fyrir þjóðar­ör­ygg­is­ráð. Þetta kemur fram í svörum hennar til Andrésar Inga Jóns­sonar, þing­manns Pírata, sem birt var í vef Alþingis í vik­unni. „Starf­semi sam­eig­in­legrar mið­stöðvar til norð­ur­ljósa­rann­sókna á Íslandi á vegum Rannís og Heim­skauta­stofn­unar Kína (PRIC) var ekki rædd á vett­vangi þjóðar­ör­ygg­is­ráðs í aðdrag­anda hennar sem á rætur að rekja til árs­ins 2013 og hefur ekki komið á borð ráðs­ins frá stofnun hennar.“

Andrés Ingi spurði for­sæt­is­ráð­herra spurn­inga um rann­sókn­ar­mið­stöð­ina í byrjun apríl. 

Katrín segir í svari sínu að eft­ir­lit með starf­semi rann­sókn­ar­mið­stöðv­ar­innar falli ekki undir þjóðar­ör­ygg­is­ráð Íslands heldur starfs­svið háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra. Orðrétt segir í svar­inu: „Þjóðar­ör­ygg­is­ráð er sam­ráðs- og sam­hæf­ing­ar­vett­vangur um þau mál­efni er varða þjóðar­ör­yggi en ábyrgð á stjórn­ar­fram­kvæmd ein­stakra stjórn­ar­mál­efna er hjá hlut­að­eig­andi ráð­herra sam­kvæmt for­seta­úr­skurði hverju sinni. Þjóðar­ör­ygg­is­ráð hefur því ekki lögum sam­kvæmt eft­ir­lit …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kína og Ísland

FréttirKína og Ísland

Áhyggjur Norð­manna af njósnum Kína og speg­il­myndin Ísland

Yfirvöld örygg­is­mála í Noregi hafa áhyggjur af mögu­legri mis­notkun yfir­valda í Kína á sam­skipta­miðl­inum TikTok. Inger Haugland hjá norsku örygg­is­lög­regl­unni PST varar Norðmenn við að nota mið­il­inn. Ísland er eft­ir­bátur hinna Norð­ur­land­anna í varnar- og net­ör­ygg­is­málum og er ekki með sams konar við­búnað og þau gagn­vart mögu­legum njósnum erlendra ríkja eins og Kína og Rúss­lands.
FréttirKína og Ísland

Þing­maður spyr Katrínu um eft­ir­lit með kín­versku rann­sókn­ar­mið­stöð­inni

Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Pírata, hefur spurt Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra spurn­inga um kín­versku rann­sókn­ar­mið­stöð­ina á Kárhóli í Þing­eyj­ar­sýslu. NATO og nágranna­ríki Íslands hafa lýst yfir áhyggjum af starf­semi rann­sókn­ar­mið­stöðv­ar­innar vegna mögu­legra áhrifa á þjóðar­ör­yggi. Íslensk stjórn­völd hafa haft litla yfir­sýn yfir starf­semi rann­sókn­ar­mið­stöðv­ar­innar.
FréttirKína og Ísland

Önnur ríki hafa áhyggjur af norð­ur­ljósamið­stöð Kína á Íslandi

Sér­fræð­ingar í þjóðar­ör­ygg­is­málum fjalla um norð­ur­ljósa­rann­sókn­ar­mið­stöð Kína á Kárhóli í rit­gerð. Einn af höf­und­unum, Gregory Falco, segir að stað­setn­ing rann­sókn­ar­mið­stöðv­ar­innar á Íslandi sé of mikil til­viljun í hans huga. NATO og önnur ríki á norð­ur­hveli jarðar hafa áhyggjur af því að Kína stundi eft­ir­lit og njósnir á Íslandi í gegnum mið­stöð­ina.
FréttirKína og Ísland

NATO hefur lýst áhyggjum af rann­sókn­ar­mið­stöð Kína um norð­ur­ljósin

Norð­ur­ljósa­rann­sókn­ar­mið­stöð Íslands og Kína að Kárhóli í Þing­eyj­ar­sýslu hefur verið vand­ræða­mál inni í stjórn­kerf­inu um nokk­urra ára skeið. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, furð­aði sig á mið­stöð­inni eftir að hann varð utan­rík­is­ráð­herra. Rann­sókn­ar­mið­stöðin virð­ist hafa verið ákveðin og byggð nán­ast án póli­tískrar aðkomu eða eft­ir­lits.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár