Biden er eldri en íslenska lýðveldið

Joe Biden for­seti Banda­ríkj­anna til­kynnti nýverið um fram­boð sitt til end­ur­kjörs þrátt fyrir að 70 pró­sent Banda­ríkja­manna vilji ekki að hann bjóði sig fram. Pró­fessor í sagn­fræði telur að sterkasta vopn Biden verði að benda á að hann sé alla­veg­ana ekki jafn slæmur og Trump.

Biden er eldri en íslenska lýðveldið

Joe Biden Banda­ríkja­for­seti er eldri en íslenska lýð­veldið. Hann býður sig nú fram til end­ur­kjörs í for­seta­kosn­ing­unum árið 2024. Nái Biden end­ur­kjöri verður hann 86 ára gam­all þegar síð­ara kjör­tíma­bili hans lýkur. Hann er þegar elsti for­seti í sögu Banda­ríkj­anna. Pró­fessor í sagn­fræði segir Biden og Trump báða nota þjóð­ern­is­stefnu í kosn­inga­her­ferðum sínum en þó á ólíkan hátt. 

70 prósent vilja ekki Biden

Yfir­skrift kosn­ing­ar­her­ferðar Biden er: Klárum verkið. Í mynd­skeiði þar sem hann til­kynnir fram­boðið er Kamala Harris vara­for­seti áber­andi. Skila­boðin til kjós­enda eru skýr, nái Biden ekki að klára verkið er Harris til­búin að grípa bolt­ann en vin­sældir hennar hafa dalað tölu­vert á kjör­tíma­bil­inu. 

Þau mál­efni sem eru Biden kær hafa verið mikið í deigl­unni und­an­farið, þar á meðal skertur réttur kvenna til þung­un­ar­rofs. Í mynd­skeið­inu minnir Biden fólk á þá miklu ólgu sem var í banda­rísku sam­fé­lagi þegar hann tók við emb­ætti og biður um meiri tíma til að end­ur­byggja það sem Trump eyði­lagði.

Ekki eru allir Banda­ríkja­menn til­búnir að gefa Biden þennan tíma. Nýlega birti NBC-frétta­veitan könnun sem sýndi að 70 pró­sent Banda­ríkja­manna, þar af helm­ingur demókratar, vilja ekki að Biden bjóði sig aftur fram. Aldur hans var algeng­asta ástæðan fyrir því.

Póli­tískir and­stæð­ingar Biden hafa einnig gagn­rýnt for­set­ann. Á síð­asta ári skrif­uðu 54 áhyggju­fullir repúblikanar í full­trúa­deild Banda­ríkja­þings bréf stílað á Hvíta húsið og lýstu yfir áhyggjum af háum aldri Biden og mögu­legum elli­glöpum.

„Hún hefur aðdráttarafl sem hann hefur ekki“

Guð­mundur Hálf­dán­ar­son er pró­fessor í sagn­fræði við Háskóla Íslands. Í sam­tali við Heim­ild­ina segir Guð­mundur að aldur Biden muni óhjá­kvæmi­lega hafa ein­hver áhrif á fram­boðið en að Biden virð­ist heilsu­hraustur sem stendur. „Því eldri sem þú verður því erf­ið­ara er að spá fyrir um hvað ger­ist. Eins og er þá held ég að hann komi nú ekki til með að eiga neitt sér­stak­lega erfitt með þetta.“

Guð­mundur bendir á að kosn­inga­bar­átta Biden snúi að mestu leyti um að sinna hlut­verki sínu sem for­seti. Pró­fess­or­inn telur Harris for­set­anum mik­il­væga. „Það er aug­ljóst að hún hefur svona ákveðið aðdrátt­ar­afl sem að hann hefur ekki.“

Guð­mundur Hálf­dán­ar­sonPró­fessor í sagn­fræði við Háskóla Íslands.

Aðrir frambjóðendur

Fleiri, og yngri, fram­bjóð­endur eru bæði demókrata- og repúblik­ana megin. Donald Trump fyrrum Banda­ríkja­for­seta steðjar lík­lega mest ógn af Ron DeSantis 44 ára rík­is­stjóra Flórída og stjórn­mála­kon­unni Nikki Haley, 51 árs. Mót­fram­bjóð­endur Biden úr Demókra­ta­flokknum eru bæði um sjö­tugt en það eru and­legi leið­tog­inn Marianne Williamson og Robert F. Kennedy hinn yngri. Í könnun NBC-frétta­veit­unnar sögðu 88 pró­sent demókrata að þau myndu kjósa Biden aftur ef hann léti verða af því að fara í fram­boð. Staða hans innan flokks­ins er því nokkuð sterk. 

Trump til­kynnti um fram­boð sitt á síð­asta ári og hefur hans helsta gagn­rýni gegn Biden verið veik staða Banda­ríkj­anna efna­hags­lega. Trump segir það Biden að kenna að há verð­bólga sé í Banda­ríkj­unum og að ríki heims nálgist óðfluga þriðju heims­styrj­öld­ina. Það gæti verið kostur fyrir Biden að fá Trump á móti sér, bæði vegna þess að Biden hefur sigrað hann áður og svo er Trump sjálfur orð­inn 74 ára gam­all.

„Einhver á miðjunni á engan séns“

Spurður út í stöðu Biden ef hann mætir öðrum fram­bjóð­anda en Trump í kosn­ing­unum segir Guð­mundur: „Það væri alveg öruggt að Biden myndi eiga í miklu meiri erf­ið­leikum ef að ein­hver sem væri nær miðj­unni myndi bjóða sig fram í Repúblikana­flokknum. En stað­reyndin er bara sú að ein­hver á miðj­unni á engan séns á að verða fram­bjóð­andi repúblik­ana.“ Að mati Guð­mundar sitja repúblikanar uppi með Trump fyrst að þeir los­uðu sig ekki við hann fyrir sex árum. 

„En það sem er verra fyrir repúblik­ana er það að Trump skapar líka æsing hjá þeim sem eru á móti honum. Þeir fara líka á kjör­stað, ekki endi­lega til að kjósa Joe Biden heldur til að kjósa gegn Trump. Og það er líka vanda­mál fyrir repúblik­ana.“ 

Þjóðernisstefna er pólitísk

Guð­mundur hefur rann­sakað þjóð­ern­is­stefnu í sínum fræði­störfum. Hann segir hana vera eina af meg­in­stoðum sjálfs­myndar fólks enda séu flestir mót­aðir af því að til­heyra ákveð­inni þjóð sem gefur þeim ákveðin rétt­indi og skyldur. „Það verður svona rammi fyrir þig til þess að þér finn­ist þú til­heyra ákveðnum hópi sem þú ert til­búin að fórna ein­hverju fyrir, borga skatta og annað slíkt, og það held ég að sé nauð­syn­legt fyrir öll sam­fé­lög að hafa ein­hverja slíka sam­kennd.“

„Það sem ég held að sé kannski mik­il­væg­ast í sam­bandi við þjóð­ern­is­stefn­una er að átta sig á að þetta er póli­tísk stefna, þetta er ekki nátt­úru­legt fyr­ir­bæri. Þú fæð­ist ekki með þjóð­erni í hausnum. Þetta er eitt­hvað sem þú ert alin upp í að verða í gegnum þína skóla­göngu, gegnum teng­ingar við alls­konar hátíða­höld, menn­ing­ar­leg fyr­ir­bæri og póli­tísk fyr­ir­bæri. En ein þjóð er ekk­ert annarri merki­legri, þær eru bara mis­mun­andi, ólíkar.“

Biden og TrumpMikill hiti var í síð­ustu kosn­inga­bar­áttu sem fór fram árið 2020.

Báðir þjóðernissinnar

Aðspurður hvernig Biden og Trump nota þjóð­ern­is­stefnu á ólíkan hátt í aug­lýs­inga­her­ferðum sínum segir Guð­mundur: „Við getum kallað þá báða þjóð­ern­is­sinna en þeir eru það á mjög ólíkan hátt.“

Guð­mundur segir Trump vera full­trúa ein­angr­un­ar­stefnu á meðan að Biden er opn­ari. „Biden er miklu opn­ari og full­trúi þá fyrir annan streng í banda­rískum stjórn­málum sem hefur verið sér­stak­lega áber­andi síðan eftir síð­ari heims­styrj­öld. Það snýr að því að það sé eig­in­lega hlut­verk Banda­ríkj­anna að styðja við og styrkja lýð­ræð­is­þróun í heim­inum og þessa teg­und sam­fé­lags er í þessum heims­hluta.“

Guð­mundur svarar því hvort að Biden sé veik­ari heima fyrri vegna sterkrar stöðu hans í utan­rík­is­málum neit­andi. Guð­mundur segir hlut­ina stefna í að kosn­ingin verði end­ur­tekn­ing af þeim sem voru árið 2020. „Ég held að vin­sældir Trump meðal almennra Banda­ríkja­manna hafi minnkað enn frekar á síð­ustu mán­uðum. Þannig að ég held að það verði sterkasta vopn Biden að það er að benda á hinn gæj­ann, ég er þó skárri en hann.“

Tímalína

Æviskeið Joes Biden

Nokkrir sögu­legir við­burðir sem gerst hafa yfir ævi­skeið Biden.

Biden fæðist

Biden fædd­ist í borg­inni Scranton í Pen­syl­vaníu fylki þann 20. nóv­em­ber 1942. Borgina þekkja margir úr gam­an­þátt­unum Office. Franklin D. Roosevelt var for­seti Banda­ríkj­anna sem höfðu gengið til liðs við Banda­menn í seinni heim­styrj­öld­inni.

Biden 10 ára

Á fyrstu 10 árum Biden verður Ísland lýð­veldi og gengur í NATO. Banda­menn vinna seinni heims­styrj­öld­ina, Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn tekur til starfa og Dwight Eisenhower er kos­inn for­seti Banda­ríkj­anna.

Biden 20 ára

Á öðrum ára­tug Biden er Elísabet fyrrum Bret­lands­drottn­ing krýnd, Íslend­ingar hefja fyrsta þorska­stríð, Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu er stofn­aður og Marilyn Monroe deyr.

Biden 30 ára

Á þriðja ára­tug Biden voru John F. Kennedy og Martin Luther King skotnir til bana. Richard Nixon tekur við for­seta­emb­ætt­inu og Víetnam stríð­inu lýkur.

Biden 40 ára

Á fjórða ára­tug Biden verða Jimmy Carter og Ronald Reagan for­setar Banda­ríkj­anna. Þorska­stríð­inu lýkur á Íslandi, Vigdís Finn­boga­dóttir tekur við emb­ætti for­seta og John Lennon er skot­inn til bana.

Biden 50 ára

Á fimmta ára­tugi Biden falla Berlín­ar­múr­inn í Þýska­landi og Járn­tjaldið í Sov­ét­ríkj­unum. George Bush verður for­seti Banda­ríkj­anna og Nelson Mandela verður frjáls.

Biden 60 ára

Á sjötta ára­tugi Biden verða Bill Clinton og Goerge W. Bush for­setar Banda­ríkj­anna. Framin er hryðju­verka­árás á Tví­bura­t­urn­ana og Díana prinsessa lætur lífið.

Biden 70 ára

Á sjö­unda ára­tugi Biden lýkur Íraks­stríð­inu, hann verður vara­for­seti Banda­ríkj­anna og Obama hlýtur for­seta­emb­ættið. Arabíska vorið á sér stað í Egypta­landi og Ísland vinnur Icesave málið.

Biden 80 ára

Á átt­unda ára­tugi sínum verður Biden 46. for­seti Banda­ríkj­anna eftir sigur á Donald Trump. Skrifað er undir Par­ís­ar­sam­komu­lagið, ráð­ist var á þing­húsið í Banda­ríkj­unum og COVID-19 reið yfir heim­inn.

Er sagan söluvara?

Trump vísar mikið í sögu Banda­ríkj­anna í ræðum sínum og segir gjarnan að eitt­hvað sé stærsti við­burður í ára­tugi eða árhund­ruð. Aðspurður hvort að hægt sé að nýta sög­una sem sölu­vöru með því að bjóða kjós­endum síðu í sögu­bók­unum í skiptum fyrir atkvæði segir Guð­mundur að svo sé. Hann segir Trump hins vegar búa til sína eigin sögu. „Það er hægt að nota það sem þú segir að sé sagan sem sölu­vöru.“

„Þarna er Trump að vísa til sög­unnar eins og hann segir að hún sé og ein­hvern veg­inn að skapa hug­myndir hjá fólki um að það sé hægt að end­ur­reisa sjötta ára­tug­inn sem var mjög íhalds­samur bæði í sið­ferð­is­málum og gagn­vart stöðu kyn­þátt­anna. Það var líka ára­tugur mik­illar efna­hags­legrar vel­meg­unar, fólk gat flúið borg­irnar og búið í stærri húsum. Þessi ára­tugur kemur ekk­ert aftur.“

Guð­mundur bætir við: „Það voru ákveðnar sögu­legar aðstæður sem sköp­uðu þennan ára­tug. Þær sögu­legu ástæður eru búnar og eru ekki lengur þarna. En honum hefur greini­lega tek­ist að selja þetta mjög mörgum. En hins vegar auð­vitað ekki meiri­hlut­anum.“

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár