Ekki ástæða til að hætta við nýja byggð í Skerjafirði

Skýrsla starfs­hóps um áhrif nýs hverfis í Skerja­firði á flug­að­stæður á Reykja­vík­ur­flug­velli er loks komin. Starfs­hóp­ur­inn telur ekki unnt að full­yrða, án frek­ari rann­sókna, að áhrif hverf­is­ins á flug verði slík að hætta skuli við upp­bygg­ing­una. Inn­við­a­ráðu­neytið og Reykja­vík­ur­borg hafa kom­ist að sam­komu­lagi um að jarð­vegs­vinna á svæð­inu hefj­ist.

Ekki ástæða til að hætta við nýja byggð í Skerjafirði
Reykja­vík­ur­flug­völlur Starfs­hóp­ur­inn rýndi aðal­lega í tvær fyr­ir­liggj­andi skýrslur sem unnar hafa verið við fyrir Reykja­vík­ur­borg og Isavia um áhrif byggð­ar­innar á flug­að­stæður á vell­inum. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Starfs­hópur á vegum inn­við­a­ráð­herra telur ekki hægt að full­yrða, án frek­ari rann­sókna, að áform Reykja­vík­ur­borgar um íbúa­byggð í Skerja­firði hafi það slæm áhrif á aðstæður fyrir flug að upp­bygg­ing­ar­á­formin verði sett á ís.

Í skýrsl­unni, sem birt var í dag, segir þó að byggðin í Nýja Skerja­firði sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi skipu­lagi þrengi að starf­semi flug­vall­ar­ins frá því sem nú er, breyt­ingar verði á vinda­fari á flug­vell­inum og not­hæfi hans skerð­ist. 

Uppbyggingin verður sett af stað

Í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins segir að inn­við­a­ráðu­neytið og Reykja­vík­ur­borg hafi tekið ákvörðun um að haf­ist verði handa við jarð­vegs­fram­kvæmdir og þar með und­ir­bún­ing upp­bygg­ingar í Nýja Skerja­firði. 

Þá muni Reykja­vík­ur­borg í sam­vinnu við Isavia yfir­fara ákvæði í deiliskipu­lagi sem lúta að því að tak­marka áhrif vinds við upp­bygg­ingu og útfærslu byggðar og land­mót­unar á svæð­inu, í sam­ræmi við ábend­ingar starfs­hóps­ins.

LoftmyndMyndin sýnir til­lögu að deiliskipu­lagi fyrri áfanga hins svo­kall­aða Nýja Skerja­fjarðar.

Nýja hverfið í Skerja­firði hefur verið póli­tískt bit­bein á milli ríkis og borgar um nokk­urt skeið. Deiliskipu­lagið sem sam­þykkt var 2021 gerir ráð fyrir að þar verði blönduð byggð með um 690 íbúðum, í fram­haldi af eldra hverfi í Skerja­firð­inum. Það er þó ein­ungis fyrsti áfangi fyr­ir­hug­aðrar upp­bygg­ingar.  

Í maí í fyrra sagði Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra í sam­tali við frétta­stofu Stöðvar 2 að Reykja­vík­ur­borg myndi ekki fá að hefja upp­bygg­ingu hverf­is­ins fyrr en búið væri að finna starf­semi Reykja­vík­ur­flug­valllar nýjan stað. 

Í aðdrag­anda þess höfðu skeyta­send­ingar gengið á milli ráðu­neytis hans, borg­ar­innar og Isavia vegna áforma sem borgin hafði um að hefja jarð­vegs­vinnu á svæð­inu vegna fyr­ir­hug­aðrar byggðar.

Inn­við­a­ráð­herraSigurður Ingi Jóhanns­son for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Á end­anum var þessu deilu­máli siglt í hend­urnar á starfs­hópi, sem nú hefur kannað fyr­ir­liggj­andi gögn og lend­ingin orðin sú að hverfið mun rísa.

Fulltrúi borgarinnar undirritaði með bókun

Í loka­orðum skýrsl­unnar er þess getið að það sé og verði ákvörð­un­ar­at­riði stjórn­valda, rekstr­ar­að­ila og not­enda flug­vall­ar­ins hvort og þá hvaða skerð­ing not­hæfis sé ásætt­an­leg fyrir flugið á Reykja­vík­ur­flug­velli. Í grein­ar­gerð hóps­ins sé ekki lagt mat á þetta atriði.

Fulltrúi Reykja­vík­ur­borgar í starfs­hópnum, Glóey Helgu­dóttir Finns­dóttir, und­ir­rit­aði hins vegar skýrsl­una með bókun, þar sem segir að nið­ur­staðan sé sú að fyr­ir­huguð byggð muni hafa í för með sér ein­hverjar breyt­ingar en umfang þeirra sé óveru­legt. 

„Ekkert hefur því komið fram sem bendir til að aðstæður fyrir flug á Reykja­vík­ur­flug­velli rask­ist það mikið að bygg­ing­ar­á­formum í Skerja­firði skuli annað hvort frestað eða þau slegin af,“ segir í bók­un­inni.

Eyjólfur Árni Rafnsson var for­maður starfs­hóps­ins og í honum sátu einnig Sveinn Valdi­mars­son frá Isavia, Ingvar Krist­ins­son frá Veð­ur­stofu Íslands, Orri Eiríks­son frá Örygg­is­nefnd Félags íslenskra atvinnu­flug­manna og Þorgeir Pálsson frá Háskól­anum í Reykja­vík, auk Glóeyjar frá Reykja­vík­ur­borg.

Ýmsar mótvægisaðgerðir mögulegar

Starfs­hóp­ur­inn rýndi sam­kvæmt því sem fram kemur í skýrsl­unni aðal­lega í fyr­ir­liggj­andi gögn úr skýrslum frá verk­fræði­stof­unni Eflu og hol­lensku flug­vís­inda­stofn­un­inni NLR.

NLR hafði lagt til í sinni skýrslu að Isavia, rekstr­ar­að­ili flug­vall­ar­ins, myndi ráð­ast í mót­væg­is­að­gerðir sem gætu m.a. falist í auk­inni upp­lýs­inga­gjöf til flug­manna við til­tekin veð­ur­skil­yrði og hins vegar söfnun raun­gagna með vöktun veð­ur­að­stæðna og til­kynn­ingum flug­manna um kviku eða aðstæður þar sem mikil ókyrrð hefði merkj­an­leg áhrif á flug.

Starfs­hóp­ur­inn sem inn­við­a­ráð­herra setti saman segir svo í skýrsl­unni að skoða megi frek­ari aðgerðir, eins og tak­marka hæð fyr­ir­hug­aðrar byggðar í Nýja Skerja­firði við flöt­inn 1:35 frá mið­línu flug­brautar.

Einnig megi skoða hvernig megi draga úr áhrifum frá jöðrum fyr­ir­hug­aðrar byggðar í Nýja Skerja­firði með annarri útfærslu skipu­lags og formun mann­virkja og skoða mögu­leg áhrif lands­lags­mót­unar milli fyr­ir­hug­aðrar byggðar og flug­vall­ar­ins til að draga úr áhrifum byggð­ar­innar.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Er bjóðandi fólki að búa svona nálægt flugbraut? Er ekki hávaðinn ærandi? Og hvað með mengun?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár