Vill innleiða aftur „ákveðinn aga“ og skilning á því hvað má og hvað ekki

Formað­ur Mið­flokks­ins tel­ur að stjórn­völd standi sig ekki þeg­ar kem­ur að því að verj­ast skipu­lagðri glæp­a­starf­semi. Frétt­ir af auknu of­beldi með­al ung­menna og vopna­burði kalli á við­brögð stjórn­valda og sam­fé­lags­ins. „Hluti af þeim við­brögð­um hlýt­ur að vera að inn­leiða hér aft­ur ákveð­inn aga og skiln­ing á því hvað má og hvað ekki og gefa skóla­stjórn­end­um og lög­reglu tæki­færi til að senda skýr skila­boð og fylgja þeim eft­ir.“

Vill innleiða aftur „ákveðinn aga“ og skilning á því hvað má og hvað ekki
Vill ekki „lög­leiða glæp­ina“ Formaður Mið­flokks­ins segir að helstu skila­boð stjórn­valda inn í ákveðið ástand, sem hann segir að sé í sam­fé­lag­inu, séu ítrekuð frum­vörp um lög­leið­ingu fíkni­efna. Ekki hægt sé að taka á vand­anum með því að lög­leiða glæp­ina. Mynd: Stundin / Davíð Þór

„Það er ekki hægt að taka á vand­anum með því að lög­leiða glæp­ina. Við þurfum að gefa lög­reglu og öðrum stjórn­völdum hér tæki­færi til að takast á við þennan vanda og gera það af þeirri festu sem þessi stig­vax­andi vandi sam­fé­lags­ins kallar á.“ Þannig lauk Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður Mið­flokks­ins ræðu sinni undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Nokkrir þing­menn ræddu ópíóða­far­aldur hér á landi, sem mikið er til umræðu í sam­fé­lag­inu um þessar mundir, á Alþingi undir sama lið. Val­gerður Rún­ars­dóttir, yfir­læknir á Vogi, ræddi far­ald­ur­inn í Bítinu á Bylgj­unni í morgun en þar sagði hún að tíu skjól­stæð­ingar þeirra undir fer­tugu hefðu lát­ist það sem af er árinu. Hún kall­aði eftir aðgerðum stjórn­valda. 

Sig­mundur Davíð sagði meðal ann­ars í sinni ræðu að helstu skila­boð stjórn­valda inn í þetta ástand væru ítrekuð frum­vörp um lög­leið­ingu fíkni­efna. 

„Und­an­farin ár hefur rík­is­lög­reglu­stjóri ítrekað varað við, með mjög afger­andi hætti, auk­inni skipu­lagðri glæp­a­starf­semi á Íslandi og hvatt til og kallað eftir aðgerðum til að bregð­ast við því. Við horfum líka upp á fíkni­efnafar­aldur – ekki hvað síst núna ópíóða­far­aldur sem borist hefur til Íslands og nú heyrum við í auknum mæli, viku eftir viku og mánuð eftir mánuð, fréttir af auknu ofbeldi meðal ung­menna og vopna­burði meðal barna og ann­arra ung­menna,“ sagði þing­mað­ur­inn. 

„Veggjakrot að mati stjórnvalda líklega bara leyst“

Sig­mundur Davíð telur að þetta kalli á við­brögð stjórn­valda og sam­fé­lags­ins en hluti af þeim við­brögðum hljóti að vera að „inn­leiða hér aftur ákveð­inn aga“ – skiln­ing á því hvað má og hvað ekki. Gefa skóla­stjórn­endum og lög­reglu tæki­færi til að senda skýr skila­boð og fylgja þeim eftir.

„Í New York-borg var á sínum tíma ráð­ist í aðgerðir sem fylgdu svo­kall­aðri rúðu­brots-kenn­ingu til að takast á við mikla glæpa­öldu þar. Hún fólst í því að taka hart á minni afbrotum, rúðu­brotum og veggjakroti – og gera strax við þar sem skemmdir hefðu verið unnar og fylgja því eftir. Hér er veggjakrot að mati stjórn­valda lík­lega bara leyst og skortur á vilja til að fylgja eftir skila­boðum um hvað telst ásætt­an­legt og hvað ekki,“ sagði hann jafn­framt. 

Mætti koma í veg fyrir dauðsföll

Inga Sæland for­maður Flokks fólks­ins hélt ræðu undir sama lið á þingi í dag þar sem hún sagði að í dag væru margir sorg­mæddir. Margir fylgdu ung­mennum sínum og ást­vinum til grafar vegna þessa far­ald­urs og þess ógnar­á­stands sem hefði skap­ast í sam­fé­lag­inu af völdum ópíóða. 

Inga Sæland

„Það er sorg­legt til þess að vita að þessum mörgu ótíma­bæru dauðs­föllum mætti koma í veg fyrir með lyf­inu, Naloxone, með því að gefa það frjálst í lausa­sölu. Lyfi sem eru í formi nefúða sem í raun­inni dregur úr eitr­un­ar­á­hrifum en 1. júlí í fyrra var þetta lyf sett í Frú Ragn­heiði og Rauði kross­inn og heil­brigð­is­stofn­anir hafa getað nýtt sér það þegar það er að fá fólkið okkar, unga fólkið okkar, til sín við dauð­ans dyr. 

Ég segi: Þetta er gríð­ar­lega alvar­legt mál. Þetta er neyð­ar­á­stand í sam­fé­lag­inu. Ég held ég sé búinn að koma hérna 100 sinnum upp til að kalla og hrópa úr þessum ræðu­stóli eftir raun­veru­legum aðgerðum. Raun­veru­legum aðgerðum til þess að koma í veg fyrir, ef þess er nokkur kostur, ótíma­bær dauðs­föll ung­menna á Íslandi.“ 

Vísaði Inga í við­tal við fram­kvæmda­stjóra SÁÁ sem birt­ist í gær. „Hvað segir hún? Tíu ung­menni hafa dáið frá ára­mótum, sem hafa í raun verið að nýta sér þjón­ust­una á Vogi, hafa fallið og hafa viljað koma aftur, þau eru á biðlista og hvað­eina annað sem er. Naloxone, þetta lyf sem er ekki ávana­bind­andi, það er ekki skað­legra en pan­odil sem er selt hér úti í apó­teki, gæti komið í veg fyrir stóran hluta af þeim ótíma­bæru dauðs­föllum sem við erum að horfast í augu við í dag ef heil­brigð­is­yf­ir­völd myndu ein­ungis leyfa það í lausa­sölu.“ 

Hún hvatti að end­ingu Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra til dáða um leið og hún vott­aði öllum þeim sem eru að ganga í gegnum þessar hörm­ung­ar­sorgir sína dýpstu samúð.

Mikilvægt að mæta þessari ógn

Ásmundur Frið­riks­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins tók undir í sinni ræðu með Ingu Sæland og Sigmundi Davíð. 

Ásmundur Frið­riks­son

„Ég ætla að halda mig við að ræða ópíóða­fíkn sem hefur verið mjög til umræðu í sam­fé­lag­inu síð­ustu daga og veldur miklum skaða; fíkn sem nær helj­ar­tökum á þeim sem neyta og ungt fólk sem ánetj­ast þessum lyfjum á vart und­an­komu­leið. Frá árinu 2014 hefur þeim ein­stak­lingum fjölgað sem fá lyfja­með­ferð við ópíóða­fíkn á Vogi, úr 117 ein­stak­lingum í 347 á síð­asta ári, en á sama tíma yfir þetta tíma­bil, þessi níu ár, greiðir ríkið aðeins fyrir með­ferð 90 ein­stak­linga. Það er alveg sama hvað er að ger­ast, það er engin hækkun,“ sagði hann. 

Þá sagði hann jafn­framt að það væri alveg með ólík­indum að á sama tíma og þetta væri að ger­ast í íslensku sam­fé­lagi þá fjölg­aði til­lögum á Alþingi um að auka aðgengi að víni og fíkni­efnum. „En það koma engar til­lögur um það hvernig við ætlum að mæta þeim áföllum sem sam­fé­lagið og ein­stak­ling­arnir verða fyrir. Dauðs­föllum ein­stak­linga sem hafa dvalið á Vogi á und­an­förnum árum hefur fjölgað gríð­ar­lega. Árið 2017 lét­ust 75 ein­stak­lingar sem höfðu dvalið á Vogi. Þar af voru 12 yngri en þrí­tugir. Í ár er gert ráð fyrir að þessi tala verði 139 ein­stak­lingar, þar af verði 24 undir 30 ára.“

Ásmundur benti á að mikil verð­mæti væru í hverjum ein­stak­lingi. „Það er mik­il­vægt fyrir okkar sam­fé­lag að mæta þess­ari ógn með því að styðja við bakið á þeim fyr­ir­tækjum og stofn­unum sem eru að reyna að bjarga þessu fólki úr helj­ar­g­reipum fíkn­ar­innar.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár