Þurfum að vera tilbúin að hafa vindorkuver „nær okkur en við vildum áður“

Viljið þið vind­orku­ver í byggð eða í óbyggðum? Viljið þið stór og fá ver eða lítil og mörg? Þetta eru meðal spurn­inga sem starfs­hópur um vind­orku­nýt­ingu veltir upp og að auki hvort núver­andi kyn­slóð þurfi ekki að axla ábyrgð á lofts­lags­vand­anum „með því að for­gangs­raða þeim gæðum sem tengj­ast óspilltri nátt­úru umfram þau gæði að hafa slík mann­virki ekki í sjón­máli í dag­legu lífi”.

Þurfum að vera tilbúin að hafa vindorkuver „nær okkur en við vildum áður“
Sýni­leiki Í skýrslu starfs­hóps um vind­orku­nýt­ingu er þessa mynd að finna. Hún á að sýna hvernig vind­orku­ver nærri byggð gæti litið út. Og er vind­myllum stillt upp ofan Hvera­valla í Reykja­hverfi. Mynd: dvoevnore

Hún er loks komin út. Skýrslan frá starfs­hópnum er ráð­herra umhverfis- og orku­mála skip­aði í fyrra­sumar „til að gera til­lögur um nýt­ingu vind­orku, meðal ann­ars um lagaum­hverfi hennar og hvernig verði tekið á ýmsum álita­málum“.

280 dögum eftir að hóp­ur­inn var skip­aður og 77 dögum eftir að hann átti að skila sínum nið­ur­stöðum er afurðin loks komin fram. 

Nema að í henni er ekki að finna neinar til­lögur. Og ekki er heldur tekið á, að minnsta kosti fast, neinum álita­málum þótt fjöl­mörg slík séu dregin saman „og settir fram val­kostir um hvaða leiðir eru færar“, líkt og það er orðað.

Því í kjöl­far á átt­unda tug umsagna og um 50 funda hóps­ins, sem á komu um 100 gestir, var nið­ur­staðan nefni­lega sú að bíða með til­lögur. Bíða með að taka á álita­efnum. Það væri ekki tíma­bært. Þess í stað að skila skýrslu sem fæli í sér …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HR
    Hilmar Ragnarsson skrifaði
    Það er ljóst að erlendir aðilar og þá oftast með aðstoð íslenskra bakhjarla vilja komast í ódýra raforku hér á Íslandi. Nákvæmlega eins og Norðmenn komust bakdyramegin í sjókvíalaxeldið án auðlindagjalds. Látum þetta ekki gerast.
    3
  • Brynhildur Magnúsdóttir skrifaði
    Það er ekki bæði sleppt og haldið, það verður að fara að taka þetta samtal án upphrópana, hvernig við viljum búa til orkuna og hvernig við viljum nýta hana...
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár