Skólarnir hættu að vinna með Landvernd vegna gagnrýni á laxeldi

Grunn­skólarnir á Bíldudal og Patreks­firði hættu þátttöku í svokölluðu Græn­fána­verk­efni Land­verndar árið 2021. Ein af ástæðunum sem Landvernd fékk fyrir þessari ákvörðun var að samtökin væru á móti atvinnu­uppbyggingu á suðvest­an­verðum Vestfjörðum sem og samgöngu­bótum. Skóla­stjórinn segir ástæðuna fyrir því að skólarnir hafi hætt í verk­efninu fyrst og fremst vera tímaskort.

Skólarnir hætti vegna gagnrýniu á atvinnuuppbyggingu
Skól­arnir hætti vegna gagn­rýniu á atvinnu­upp­bygg­ingu Grunn­skól­arnir á Bíldudal og Pat­reks­firði og hættu að vera þátt­tak­endur í Græn­fána­verk­efni Land­vernar vegna gagn­rýni umhverf­is­vernd­ar­sam­tak­anna á atvinnu­upp­bygg­ingu og sam­göngu­umbætur. Sjókvíar Arnarlax í Arn­ar­firði sjást hér og er þorpið Bíldu­dalur í bak­sýn.

Grunn­skólarnir á Bíldudal og Patreks­firði hafa ekki viljað vera þátt­takendur í svokölluðu Grænfánaverkefni Land­verndar, meðal annars vegna gagnrýni umhverfis­verndar­samtakanna á atvinnu­uppbyggingu, laxeldi og samgöngu­umbætur á suðvestanverðum Vestfjörðum. Þetta segir starfs­maður Land­verndar, sem ekki vill láta nafns síns getið, í samtali við Heimildina. 

Laxeldis­fyrirtækið Arnarlax er með höfuð­stöðvar sínar á Bíldudal í Arnar­firði og á og rekur sjókvíar í firðinum sem og annars staðar á suðvestanverðum Vestfjörðum, meðal annars í Patreks- og Tálkna­firði.

Grænfánaverkefni …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár