Meirihluti verkefna varðandi náttúruvá vanfjármögnuð

Í nýbirtri skýrslu starfs­hóps um stöðu og áskoranir varðandi tilhögun hættumats og vöktunar vegna náttúruvár kemur fram að brýn verkefni sem hópurinn leggur til að farið verði í „hafa ekki trygga fjár­mögnun“. Í þeim sex mála­flokkum sem eru tilteknir teljast fjórir í „umfangs­mikilli fjárþörf“ á einhverju sviði og einn á öllum þremur sviðum sem eru tiltekin. Af þeim 18 liðum sem eru tilteknir varðandi fjárþörf eru 14 í verulegri eða umfangs­mikilli fjárþörf og aðeins einn þeirra í lítilli fjárþörf.

Mun taka mörg ár að ljúka nauðsynlegum verkefnum
Mun taka mörg ár að ljúka nauð­syn­legum verk­efnum Miðað við núver­andi fyr­ir­komu­lag mun það taka mörg ár að koma á dag­skrá og ljúka nauð­syn­legum hættu­mats­verk­efnum vegna nátt­úru­vár. Þetta kemur fram í skýrslu starfs­hóps sem meta átti stöðu og áskor­anir varð­andi til­högun hættu­mats og vökt­unar vegna nátt­úru­vár á Íslandi. Mynd: Davíð Þór

Starfs­hópur á vegum umhverfis-, orku- og loftslags­ráðuneytisins sem meta átti stöðu og áskoranir varðandi tilhögun hættumats og vöktunar vegna náttúruvár segir „umfangs­mikla fjárþörf“ liggja fyrir í mála­flokknum, sérstak­lega í ljósi þess að mörg af þeim verkefnum sem ráðast þarf í til að koma í veg fyrir tjón þurfi trygga fjár­mögnun. Í þeim sex mála­flokkum sem eru tilteknir í skýrslunni er í þremur þeirra fjár­þörfin metin sem veruleg eða umfangs­mikil. Flokkunum er skipt síðan niður í liði, af þeim 18 liðum sem kynntir eru eru 14 þeirra í verulegri eða umfangs­mikilli fjárþörf.

„Miðað við núverandi fyrir­komulag mun það taka mörg ár að koma á dagskrá og ljúka nauðsyn­legum hættumats­verkefnum vegna náttúruvár og loftslags­breytinga auk aðlögunar­aðgerða,“ segir í skýrslu starfs­hópsins sem kynnt var í Hörpu í dag.

FjárþörfEf horft er til ákveð­inna þátta er hægt að áætla gróf­lega fjár­þörf hvers mála­flokks með til­liti til þriggja þátta; mannauðs, rekst­urs og fjár­fest­ingar í meðal ann­ars tækjum, bún­aði og aðstöðu.

Áskoranir sem hópurinn kynnti eru yfir 20 talsins og tæplega 60 megin­verkefni tengjast þeim. „Erfitt er að forgangs­raða þeim þar sem þau eru öll mikilvæg,“ en hópurinn leggur til að lögð verði fram stefna um náttúruvá á Íslandi sem muni fela í sér skýra forgangs­röðun verkefna sem væri þá undir­staða fyrir stjórn­völd til að ákvaða fjár­heimildir til þeirra. 

Framkvæmd verkefna óásættanleg

Þar segir einnig að þrátt fyrir að hlut­verka­skipting opinberra stofnana og sveitar­félaga varðandi náttúruvá liggi fyrir með viðeigandi fjár­mögnun hafi skort á það að hægt sé að framkvæma verkefni og að framvinda þeirra sé með „ásættanlegum hætti“.

Víða þurfi að huga að endurnýjun á búnaði og styrkja mælikerfi til þess að koma til móts við kröfur um ásættanlega vöktun á náttúruvá. „Þetta á til dæmis við um vatns- og sjávar­flóð, ofanflóð og úrkomu­mælingar.“ Einnig er tekið fram að þrátt fyrir að fjöldi mæla sé umtalsverður séu enn „gloppur í kerfinu sem fylla þarf í til að það verði af þeim gæðum sem talið er ásættanlegt og í samræmi við það sem er gert í löndunum sem við berum okkur saman við. Ekki er nóg að byggja upp mælakerfi heldur þarf að tryggja eðlilega endurnýjun og rekstur þess til ókominnar framtíðar.“

„Miðað við núver­andi fyr­ir­komu­lag mun það taka mörg ár að koma á dag­skrá og ljúka nauð­syn­legum hættu­mats­verk­efnum vegna nátt­úru­vár.“

Þá er bent á mikilvægi þess að það sé til sambærileg löggjöf og til eru um ofanflóð um hættumat, varnir og viðbrögð vegna annarrar náttúruvár og að koma því í kring að stofnanir geti ráðið við aukin verkefni. 

Nauðsynlegt að endurskoða hættumat vegna ofanflóða

Þrátt fyrir að til sé löggjöf um ofanflóð, hættumat vegna þeirra, varnir og viðbrögð segir í skýrslunni að nauðsynlegt sé að endur­skoða hættumat þar sem varnar­virki hafa verið reist. Ofanflóð samkvæmt skýrslunni, ásamt ofsaveðri, er sú náttúruvá sem veldur mestu tjóni og mannskaða á Íslandi og þá er tiltekið að frá alda­mótunum 1900 hafi 171 látist í snjó­flóðum. Auk þess sé eldgosa­hættumat „langt frá því að vera lokið“ og gerð hættumats vegna vatns- og sjávar­flóða „stutt á veg komin.“ Og svo er bætt við: „auk þess sem skortur á sérhæfðu starfs­fólki og fjármagni spilar stóra rullu hér.“

Sérstak­lega er tekið fram að skortur á sérhæfðu starfs­fólki sé „ógn við starfsemi stofnana sem tengjast náttúruvá.“ Störfin séu afar sérhæfð og samkeppni um sérhæft starfs­fólk mikil auk þess sem stór hluti þeirra sem hafa slíka þekkingu sé að komast á eftirlauna­aldur. Það þurfi að auka þekkingu og mannauð á þeim stofnunum sem sinna miðlun í náttúruvá, það þurfi að tryggja til þess nægan fjölda sérfræðinga og svo er sérstak­lega tekið fram að auka þurfi getu stofnana til að miðla upplýsingum á nokkrum tungu­málum. 

„Þetta er veik­leiki sem Veð­ur­stofan hefur bent á, meðal ann­ars til þjóðar­ör­ygg­is­ráðs.“

Þá unnu fáir framhalds- og nýdoktorsnemar að verkefnum tengdum náttúruvá síðasta áratuginn auk þess sem ekkert þeirra fáu verkefna sem þó voru fjölluðu um ofanflóð, þá náttúruvá sem veldur mestu tjóni og mannskaða. Þrátt fyrir að ofan­flóða­hættumat hafi verið unnið fyrir nánast alla þéttbýlis­staði landsins sem búa við ofan­flóðahættu er samkvæmt hópnum „verk­efninu langt frá því lokið“. Framkvæmdir við varnir vegna ofanflóða eða uppkaupa húseigna hefur átt sér stað á 15 þéttbýlis­stöðum en er aðeins lokið á 6 þeirra. 

Ekkert hættumat til vegna jarðskjálfta

Í skýrslunni segir að þrátt fyrir að Ísland búi við mikla jarðskjálftavá hefur ekkert hættumat verið unnið vegna jarð­skjálfta og engar áætlanir til vegna þeirra. „Þetta er veikleiki sem Veður­stofan hefur bent á, meðal annars til þjóðar­öryggisráðs.“ Sem dæmi um tjón af völdum jarð­skjálfta á Íslandi má nefna að heildar­tjón vegna Suðurlands­skjálftans, sem varð árið 2008, er metið á rétt tæplega 21 milljarð á núvirði. Tjón­staðir vegna tjóns á húseignum voru til dæmis rúmlega fjögur þúsund. 

Þegar dregin er saman staðan varðandi gerð hættu- og áhættu­mats vegna náttúruvár hér á landi og hún skoðuð í saman­burði við Norður­löndin kemur fram að við „stöndum höllum fæti.“ Hin Norður­löndin hafi unnið samkvæmt flóða­tilskipun ESB óháð því hvort hún hafi verið innleidd í viðkomandi ríki eða ekki. Vöktun, rannsókn og hættumat á gróður­eldum, jarð­skjálftum, hafís, ofsaveðri og fjölþátta ógnum hafa ekki verið fjár­magnaðar.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár