Coop í klípu

Danska versl­ana­sam­steypan Coop glímir við erf­ið­leika í rekstri. Versl­unum sam­steypunnar hefur fækkað tals­vert að und­an­förnu og svo virð­ist sem Coop hafi að und­an­förnu látið undan síga í sam­keppn­inni um við­skipta­vin­ina.

Coop í klípu

Fyrir rúmum mán­uði var 12 versl­unum Coop sam­steypunnar í Danmörku lokað. Þetta voru versl­anir sem gengu undir nafn­inu Daglig­Brug­sen og voru allar fremur litlar og flestar stað­settar í smá­bæjum eða litlum byggða­kjörnum víða um land.

Coop sam­steypan rekur sam­tals tæp­lega eitt þús­und versl­anir vítt og breitt um Danmörku. Auk Daglig­Brug­sen ganga þær undir nöfn­unum Super­Brug­sen, Kvickly, og Coop 365 Discount. Til skamms tíma voru Irma versl­an­irnar undir Coop hatt­inum en í byrjun febr­úar var til­kynnt að 17 Irma versl­unum yrði lokað en hinar 48 yrðu fram­vegis reknar undir öðrum nöfnum Coop fyr­ir­tæk­is­ins.

Stofnað 1896 

Saga Coop hófst 1. jan­úar árið 1896. Þá beitti jóskur mat­vöru­kaup­maður,  Severin Jørg­en­sen að nafni, for­göngu um stofnun sam­taka sem hefðu að mark­miði sam­eig­in­leg inn­kaup, dreif­ingu og fram­leiðslu margs konar dag­legra neyslu­vara eins og það var orðað. Severin Jørg­en­sen og fleiri kaup­menn á Jótlandi höfðu þá um nokk­urra ára skeið sam­ein­ast um kaup á ýmsum vöru­teg­undum og sáu í þeim efnum ýmsa mögu­leika.
Samtökin sem stofnuð voru í árs­byrjun 1896 fengu nafnið „Fæl­les­for­en­ingen for Danmarks Brugs­for­en­inger“ ætíð kallað FDB.
Ári eftir stofn­un­ina komu fyrstu vör­urnar sem fram­leiddar voru undir merkjum FDB á mark­að­inn. Það var kaffi, sem brennt var og malað í kaffi­brennslu FDB í Kolding. Ekki var leitað langt yfir skammt eftir nafni á kaffið, það hét ein­fald­lega FDB kaffi og í boði voru tvær mis­mun­andi gerðir.

KaffiÞetta plakat sem aug­lýs­ing Cirkel kaffi er vel þekkt í Danmörku.

Síðar fékk FDB kaffið annað heiti sem notað hefur verið æ síðan og margir þekkja ugg­laust, Cirkel. Kaffið fæst í dag í mörgum mis­mun­andi útgáfum: baunir, brennt og malað, mikið eða lítið brennt og allt þar á milli og líka í svo­nefndum púðum eða hylkjum. Allt eftir smekk þess sem neytir, koff­ín­laust er líka í boði. Á næstu árum fylgdu fjöl­margar vörur í kjöl­farið, 1901 keypti FDB vindla­verk­smiðju í Esbjerg, svo var fram­leitt smjör­líki og hafra­grjón (sem FDB kall­aði dav­regryn) sápur, sinnep og þvotta­duft svo fátt eitt sé nefnt. Stærstur hluti þess­arar fram­leiðslu fór fram í stórum verk­smiðju­húsum í Viby hverf­inu í Árósum, verk­smiðju­svæðið var 55 þús­und fer­metrar. Um miðjan átt­unda ára­tug síð­ustu aldar fór að draga veru­lega úr þess­ari fram­leiðslu og henni að mestu hætt fyrir alda­mót. Margar af FDB vör­unum eru þó enn fram­leiddar þótt sú fram­leiðsla fari ekki fram hjá FDB.

Neytendablað og húsgögn

Árið 1928 hóf FDB útgáfu tíma­rits um neyt­enda­mál. Það hét „Brugs­for­en­ings- Bladet en nafn­inu var síðar breytt og heitir nú Samvirke. Í blað­inu er fjallað um neyt­enda­mál á breiðum grunni og Samvirke er, sam­kvæmt könn­unum Gallup, eitt mest lesna og trúð­verð­ug­asta tíma­rit lands­ins.

Árið 1940 var hinn þekkti arki­tekt Børge Mogensen ráð­inn til að veita for­stöðu teikni­stofu sem FDB ákvað að setja á lagg­irnar. Þar átti að hanna hús­gögn handa dönskum fjöl­skyldum, hús­gögnin áttu að vera ein­föld og á við­ráð­an­legu verði en jafn­framt sterk og end­ing­ar­góð. Fram­leiðsla hófst árið 1945 og hús­gögnin nutu strax mik­illa vin­sælda. Um sama leyti og sala hús­gagn­anna hófst lét FDB gera 25 mín­útna langa aug­lýs­inga­mynd sem sýnd var í kvik­mynda­húsum, hún hét „En lys og lykk­elig fremtid“.

Aðal­per­són­urnar eru ungt par sem er að byrja búskap en er í vand­ræðum með að velja hús­gögn í íbúð­ina. Þegar unga fólkið sér  FDB hús­gögnin er vand­inn leystur og parið er sann­fært um að þess bíði „björt og gæfu­rík fram­tíð“.
Børge Mogensen lét af störfum yfir­manns teikni­stof­unnar árið 1950 en ýmsir þekktir arki­tektar veittu stof­unni for­stöðu en í kjöl­far hans komu aðrir þekktir danskir hús­gagna­hönn­uðir, þar á meðal Poul Volther. 

Teikni­stof­unni var lokað árið 1968 en hús­gögnin voru fram­leidd til árs­ins 1980. Þá voru breyttir tímar, úrval ódýrra hús­gagna hafði auk­ist til muna, ekki síst eftir að IKEA opn­aði versl­anir í Danmörku, þá fyrstu árið 1969.

Endurkoma

Árið 2013 ákvað FDB að setja á mark­að­inn nokkur þeirra hús­gagna sem áður voru fram­leidd á verk­stæðum fyr­ir­tæk­is­ins. Og það var eins og við mann­inn mælt, hús­gögnin rokseld­ust og nú rekur FDB fleiri en 10 versl­anir í Danmörku og hús­gögnin auk þess seld í mörgum öðrum hús­gagna­versl­unum. Auk hús­gagna „gömlu meist­ar­anna“ fram­leiðir FDB nú líka hús­gögn yngri hönn­uða.

Þess má geta að fyrir fáum árum kom út bók um sögu FDB hús­gagn­anna, hún ber sama nafn og aug­lýs­inga­myndin frá 1945 „En lys og lykk­elig fremtid“.

FDB varð COOP amba

Eins og fyrr var nefnt hét það sem lengi hefur verið kallað Coop upp­haf­lega Fæl­les­for­en­ingen for Danmarks Brugs­for­en­inger, FDB.

Í árs­byrjun 2002 var form­legu heiti sam­tak­anna breytt og heitir nú Coop amba. Amba merkir and­elsselskab með begræn­set ansvar, hlut­deild­ar­fé­lag með tak­mark­aða ábyrgð.

FDB voru, og eru, deilda- og svæða­skipt almenn­ings­fé­lög, ekki ósvipað kaup­fé­lög­unum hér á Íslandi. Félagar eru nú tæp­lega tvær millj­ónir, félags­að­ildin kostar ekk­ert en félagar geta með því að fram­vísa skír­teini safnað afslátt­ar­punktum og fá auk þess tíma­ritið Samvirke ókeypis. Versl­unum Coop hefur fækkað á und­an­förnum árum og eru nú tæp­lega eitt þús­und eins og áður var nefnt en fyrir fimm árum voru þær tólf­hund­ruð. Coop er annar risanna í danskri mat­vöru­verslun, með rúm­lega 30% mark­aðs­hlut­deild og tæp­lega 40 þús­und starfs­menn. Rétt er að geta þess að í stærri versl­unum Coop eru, auk mat­vöru, seld bús­á­höld, ýmis konar fatn­aður, reið­hjól og fleira. 

Vandræði Irma toppurinn á ísjakanum

Sú ákvörðun stjórnar Coop að leggja niður Irma nafnið, loka sumum Irma versl­unum alveg en breyta öðrum í Coop versl­anir vakti mikla athygli meðal Dana. Irma var of lítil rekstr­ar­ein­ing var skýr­ing for­svars­manna Coop. Ýmsir sér­fræð­ingar í versl­un­ar­rekstri töldu sig vita að vand­ræði Coop sam­stæð­unnar væru ekki ein­skorðuð við Irma. Þeir reynd­ust sann­spáir. Fyrir réttum mán­uði til­kynnti Coop að 12 versl­unum sem reknar hafa verið undir heit­inu Daglig­Brug­sen yrði lokað.

Fyrr í þessum mán­uði greindi dag­blaðið Berl­ingske frá því að Coop hefði selt hús­eignir víða um land fyrir einn millj­arð danskra króna (20 millj­arðar íslenskir) og í frá­sögn blaðs­ins kom jafn­framt fram að þessi sala væri liður í end­ur­skipu­lagn­inu Coop og fleiri „stórar aðgerðir“ væru framundan.

Síð­ast­lið­inn föstu­dag, 31. mars, var greint frá því að samið hefði verið um sölu á eignum og land­spildum Coop í Albertslund, skammt frá Kaup­manna­höfn.
Kaup­and­inn er líf­eyr­is­sjóð­ur­inn PensionD­an­mark, kaup­verðið er einn millj­arður danskra króna. Coop hefur um langt ára­bil haft höf­uð­stöðvar sína í Albertslund, hvort svo verður áfram hefur ekki verið upp­lýst. Fyrir tveimur árum var greint frá því að PensionD­an­mark myndi byggja nokkur hund­ruð íbúðir á svæð­inu í Albertslund en með söl­unni nú er stigið enn stærra skref.

Af hverju stafa vandræði Coop?

Þótt Coop sam­steypan sé enn mjög stór á dönskum dag­vöru­mark­aði sýna tölur að hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins hefur minnkað að und­an­förnu. Fyrir því eru ýmsar ástæður. Sam­keppni á dönskum dag­vöru­mark­aði er hörð, og sér­fræð­ingar í versl­un­ar­rekstri segja að versl­anir í land­inu séu ein­fald­lega of margar miðað við íbúa­fjöld­ann. Rekstur Salling group, sem rekur fjöl­margar versl­anir undir ýmsum nöfnum, m. a. Føtex, Bilka og Netto, hefur gengið vel á und­an­förnum árum. Auk þess hafa komið til sög­unnar ný fyr­ir­tæki sem taka til sín bita af kök­unni, ef svo mætti segja. Rema 1000, sem opn­aði sína fyrstu verslun í Danmörku árið 1994, rekur nú 364 versl­anir og til stendur að fjölga þeim enn frekar. Þýska fyr­ir­tækið Lidl, sem rekur 11 þús­und versl­anir um víða ver­öld, opn­aði sína fyrstu verslun í Danmörku árið 2005, og rekur þar nú 140 versl­anir.

Danskir sér­fræð­ingar á sviði versl­unar og við­skipta telja þetta sem hér hefur verið nefnt helstu ástæður þess að Coop hefur látið undan síga á síð­ustu árum. Hvort þær aðgerðir sem fyr­ir­tækið hefur ráð­ist í, og framundan eru, duga til að styrkja rekstr­ar­stoð­irnar er ekki gott að segja.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár