Alþingi skylt að veita almenningi aðgang að Lindarhvolsskýrslu án takmarkana

Fyrir tveimur árum síðan fékk for­sætis­nefnd Alþingis lög­manns­stof­una Magna til að vinna álits­gerð um hvort almenn­ingur ætti að fá að sjá skýrslu Sigurðar Þórð­ar­sonar, fyrr­ver­andi rík­is­end­ur­skoð­anda, um Lind­ar­hvol. Nið­ur­staða þeirrar álits­gerðar, sem Heim­ildin hefur undir höndum, er skýr. Almenn­ingur á skýran rétt á að fá að sjá skýrsl­una.

Alþingi skylt að veita almenningi aðgang að Lindarhvolsskýrslu án takmarkana
Forseti Alþingis Birgir Ármans­son hefur tafið birt­ingu á grein­ar­gerð Sigurðar Þórð­ar­sonar og sagt að umfjöllun um hana sé ekki lokið í for­sætis­nefnd. Mynd: Eyþór Árnason

„Með vísan til alls þess sem rakið er hér að framan er það nið­ur­staða und­ir­rit­aðs að skylt sé [...] að veita almenn­ingi aðgang að skýrslu rík­is­end­ur­skoð­anda í þeirri mynd sem hún liggur fyrir hjá Alþingi.“ 

Þetta er meg­in­inntakið í nið­ur­stöðu­hluta álits­gerðar sem lög­mað­ur­inn Flóki Ásgeirs­son, einn eig­enda Magna lög­manna, vann fyrir for­sætis­nefnd Alþingis í tengslum við hvort að hún ætti að veita fjöl­miðlum aðgengi að skýrslu Sigurðar Þórð­ar­sonar, fyrr­ver­andi rík­is­end­ur­skoð­anda, um Lind­ar­hvol. Heim­ildin hefur álits­gerð­ina, sem hingað til hefur ríkt mikil leynd yfir. Sömu sögu er að segja um minn­is­blöð sem Flóki vann fyrir for­sætis­nefnd í kjöl­farið.

Flóki skil­aði álits­gerð sinni 16. apríl 2021, fyrir næstum tveimur árum síðan. Hún er 37 blað­síður og í henni rekur hann ítar­lega þá nið­ur­stöðu sína að almenn­ingur eigi að fá að sjá umrædda skýrslu. 

Málið snýst um það að Rík­is­end­ur­skoðun var falið að fara yfir mál­efni Lind­ar­hvols, einka­hluta­fé­lags sem starf­aði …

Kjósa
52
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Höll spillingarinnar í Minsk sendi þessa ályktun í dag:

    Íslenska sjalla-spillingin er sannarlega einkamál FLokkins og BjarNa aðalbófa í þessu svokallaða...Leyndarhvolsmáli"

    ,,Látið okkur í friði með spillinguna" voru svo megin-skilaboð HS í Minsk til alþingis.

    Birgir Ármannsson er okkar maður á alþingi.

    Ljúkashenka.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár