Þekkt nöfn sækja um stöðu dagskrárstjóra Rásar 1

Meðal umsækj­enda eru þraut­reynt fjöl­miðla­fólk með miklar teng­ingar við Rík­is­út­varpið. Þannig sækja þau Lára og Þor­finnur Ómars­börn bæði um stöð­una. Í hópi umsækj­enda eru fyrr­ver­andi rit­stjórar, frétta­stjórar, menn­ing­ar­rit­stjórar og fram­kvæmda­stjórar.

Þekkt nöfn sækja um stöðu dagskrárstjóra Rásar 1
Mikil reynsla Umsækj­endur um dag­skrár­stjóra­stöð­una eru margir hverjir þraut­reyndir fjöl­miðla­menn.

Átján sóttu um starf dag­skrár­stjóra Rásar 1 sem aug­lýst var fyrir skemmstu, eftir að Þröstur Helgason sagði upp stöðu sinni. Tveir drógu umsókn sína til baka en í meðal þeirra sextán sem eftir standa er fjöldi kanóna úr stétt fjöl­miðla­fólks.

Meðal þeirra sem sem sóttu um stöð­una eru Gunn­hildur Arna Gunn­ars­dóttir, blaða­maður á Lækna­blað­inu. Gunn­hildur er fyrr­ver­andi rit­stjóri dag­blaðs­ins 24 stunda og fyrr­ver­andi umsjón­ar­maður Morg­un­út­varps Rásar 2.

Lára Ómars­dóttir fjöl­miðla­kona, sem nýverið lét af störfum sem sam­skipta­stjóri fjár­fest­inga­fé­lags­ins Aztiq, er einnig á meðal umsækj­enda. Áður en Lára tók við stöðu sam­skipta­stjóra þar hafði hún starfað í fjöl­miðlum um ára­bil, sem frétta­maður og dag­skrár­gerð­ar­kona, og síð­ast sem frétta­maður í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik á RÚV.

Þá sækir Þor­finnur Ómarsson, bróðir Láru, einnig um stöð­una en þau systk­ini eru sem kunn­ugt er börn Ómars Ragn­ars­sonar fjöl­miðla­manns, sem um ára­bil starf­aði á Rík­is­út­varp­inu. Þor­finnur hefur starfað í fjöl­miðlum um ára­bil og meðal ann­ars stýrt Íslandi í dag á Stöð 2 og Viku­lok­unum á Rás 1, auk ann­ars.

Fanney Birna Jóns­dóttir lög­fræð­ingur og blaða­maður er þá meðal umsækj­enda en Fanney Birna á far­sælan feril að baki í fjöl­miðlum. Hún er fyrr­ver­andi frétta­stjóri Frétta­blaðs­ins, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­rit­stjóri Kjarnans og hafði umsjón með Silfrinu á RÚV um ára­bil.

Guðni Tómasson starf­andi dag­skrár­gerð­ar­maður á Rás 1 er einnig meðal umsækj­enda en hann stýrir þætt­inum Víðsjá og er fyrr­ver­andi menn­ing­ar­rit­stjóri Frétta­tím­ans.

María Björk Ingv­ars­dóttir sækir einnig um stöð­una en hún er fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri sjón­varps­stöðv­ar­innar N4, sem hætti starf­semi í byrjun febr­úar. Tölvu­verða athygli vakti í des­em­ber síð­ast­liðnum þegar meiri­hluti fjár­laga­nefndar Alþingis ákvað að veita 100 millj­óna króan fram­lag til rekst­urs fjöl­miðla á lands­byggð­inni sem fram­leiddu sjón­varps­efni, eftir að María Björk fór fram á að fá slíkan styrk í beiðni til nefnd­ar­innar. Ekki síst vakti ákvörð­unin athygli í ljósi þess að mágur Maríu Bjarkar, Stefán Vagn Stef­áns­son, situr í meiri­hluta fjár­laga­nefndar. Hins vegar var dró fjár­laga­nefnd í land með veit­ingu styrks­ins eftir gagn­rýni í fjöl­miðlum. María Björk er fyrr­ver­andi frétta­maður á Rík­is­út­varp­inu og starf­aði meðal ann­ars hjá svæðis­út­varp­inu á Norð­ur­landi.

Þor­steinn J. Vil­hjálms­son er þá meðal umsækj­enda en Þor­steinn hefur starfað í fjöl­miðlum í ára­tugi, ýmist hjá fjöl­miðla­fyr­ir­tækjum eða sjálf­stætt. Hann var meðal ann­ars einn stjórn­enda í Íslandi í dag á Stöð 2 og hefur starfað bæði á RÚV og Bylgj­unni, svo eitt­hvað sé nefnt. Á síð­asta ári fluttti RÚV þætti Þor­steins um Skeggja Ásbjarn­ar­son kenn­ara, þar sem flett var ofan af brotum hans gegn nem­endum sínum og vöktu þeir mikla athygli.

Auk þess­ara umsækj­enda má nefna að meðal ann­arra sem sækja um eru Júlía Margrét Ein­ars­dóttir sem er verk­efna­stjóri vef­út­gáfu og dag­skrár­gerð­ar­kona á RÚV, Hjálmar Hjálm­ars­son leik­ari, Matthías Tryggvi Har­alds­son, sem titl­aður er texta- og hug­mynda­smiður en er kannski þekkt­astur fyrir að vera með­limur hljóm­sveit­ar­innar Hatara og Magnús Lyngdal Magnúson sér­fræð­ingur en hann er eig­in­maður Ragn­hildar Thorlacius, dag­skrár­gerð­ar­konu á Rás 1.

Umsækjendur eru eftirfarandi

  • Ásgrímur Geir Logason leik­ari og leik­stjóri
  • Fanney Birna Jóns­dóttir lög­fræð­ingur og blaða­maður
  • Guðni Tómasson dag­skrár­gerð­ar­maður og fram­leið­andi
  • Gunnar Karel Másson tón­skáld
  • Gunn­hildur Arna Gunn­ars­dóttir blaða­maður
  • Hjálmar Hjálm­ars­son fram­leið­andi og leik­ari
  • Jón Hjörtur Sig­urð­ar­son vef­síðu­gerð og net­mark­aðs­setn­ing
  • Júlía Margrét Ein­ars­dóttir verk­efna­stjóri vef­út­gáfu og dag­skrár­gerð­ar­kona
  • Lára Magn­ús­dóttir sagn­fræð­ingur og rit­höf­undur
  • Lára Ómars­dóttir fv. Sam­skipta­stjóri
  • Magnús Lyngdal Magn­ús­son sér­fræð­ingur
  • María Björk Ingva­dóttir fv. fram­kvæmda­stjóri
  • Matthías Tryggvi Har­alds­son texta- og hug­mynda­smiður
  • Óli Valur Pét­urs­son verk­efna­full­trúi
  • Þor­finnur Ómarsson upp­lýs­inga- og sam­skipta­stjóri
  • Þor­steinn J. Vil­hjálms­son blaða­maður, dag­skrár­gerð­ar­maður og rit­stjóri
Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár