1068. spurningaþraut: Hvaða eyju vildu Bandaríkjamenn kaupa?

1068. spurningaþraut: Hvaða eyju vildu Bandaríkjamenn kaupa?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað kall­ast sú teg­und af skipum sem þarna sést?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða þýska tón­skáld samdi til­komu­mikil verk um Nifl­unga­hring­inn svo­nefnda?

2.  Denys Shmyhal er for­sæt­is­ráð­herra í Evr­ópu­landi einu og hefur mætt mikið á honum síð­asta árið. Það hefur verið harla erfitt. Hann er þó ekki valda­mestur manna í sínu landi því æðsti þjóð­höfð­ingi lands­ins er valda­meiri en hann. En í hvaða landi er Shmyhal for­sæt­is­ráð­herra?

3.  Verka­lýðs­fé­lagið Efling varð til við sam­eig­ingu eldri félaga — í nokkrum áföngum. En hvað af eft­ir­töldum félögum varð EKKI partur af Eflingu? Aldan — Dagsbrún — Framsókn — Iðja — Sókn.

4.  Ungur piltur átti góðan vin sem var björn­inn Balú. En hvað hét ungi pilt­ur­inn? 

5.  Hvað kall­ast á íslensku sá sjúk­dómur (eða sjúk­dóms­ein­kenni) sem heitir á mörgum alþjóð­legum málum díar­rea?

6.  Hvaða stóru eyju reyndu Banda­ríkin að kaupa árið 1947? — þótt ekki muni sú hug­mynd þá hafa kom­ist nema rétt á rek­spöl.

7.  Í hvaða landi er Óláta­garður?

8.  Hvaða áfeng­is­teg­und er hið amer­íska búr­bon náskylt?

9.  Hanukkah er hátíð í ... hvaða trú­ar­brögðum?

10.  Hvað nefnd­ist gríska þjóð­sagna­hetjan sem drap föður sinn og kvænt­ist svo móður sinni?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Konurnar tvær á mynd­inni hér að neðan eru systur og þær eru báðar í skraut­legum kjólum. En hvað eiga þær helst annað sam­eig­in­legt?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Wagner.

2.  Úkraínu.

3.  Aldan.

4.  Móglí.

5.  Nið­ur­gangur.

6.  Grænland.

7.  Svíþjóð.

8.  Viskíi.

9.  Gyð­ing­dómi.

10.  Ödipus.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er galeiða.

Á neðri mynd­inni eru syst­urnar Anna María og Margrét. Þær eru báðar (eða voru í til­felli Önnu Maríu) drottn­ingar. Það er eina rétta svarið!

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár