1067. spurningaþraut: Hér er spurt um nokkra sem hafa fengið forsetaorðu

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað nefn­ist dýrið á mynd­inni?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða landi er teikni­mynda­per­sónan Tinni upp­runnin?

2.  Hvað kall­ast Tinni ann­ars á frum­mál­inu?

3.  Í sagna­heimi hvaða þjóðar býr for­ynjan Medúsa?

4.  Hver skrif­aði bók um afa sinn undir nafn­inu Skrýtn­astur er maður sjálfur?

5.  Í hvaða landi er ferða­manna­stað­ur­inn Sharm El-Sheikh?

6.  The Pres­idential Medal of Freedom er æðsta orða sem Banda­ríkja­for­setar geta veitt óbreyttum borg­urum og þykir mik­ill heiður vestra að fá grip­inn. Einstaka sinnum eru orður þessar veittar látnum ein­stak­lingum og 2018 til­kynnti Trump þáver­andi for­seti að þrír dánir karlar fengju nú orð­una. Einn þeirra var frægur söngv­ari sem dó árið 1977. Hvað hét hann?

7.  Annar hinna hét fullu nafni George Herman Ruth og dó árið 1948. Hann var íþrótta­maður og þekkt­astur undir gælu­nafni sínu, sem var ... hvað?  

8.  Sá þriðji hafði dáið aðeins tveim árum áður en Trump veitti honum orð­una. Hann hét Antonin Scalia. Hvað fékkst hann við?

9.  Ekki ein­ungis Banda­ríkja­menn geta fengið þessa orðu. Síðasta mann­eskjan sem Trump veitti orð­una, áður en hann hrökkl­að­ist frá völdum, var fimm­tug sænsk kona, Annika Sör­enstam að nafni. Hvað fæst hún við í líf­inu sem færði henni þessa orðu?

10.  Ungst­irnið Una Torfa er dóttir ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands.  Hver er sá ráð­herra?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heita þessir kátu karlar? Hafa þarf bæði nöfn rétt?

***

Svör við auka­spurn­ingum:

1.  Belgíu.

2.  Tin-Tin.

3.  Forn-Grikkja.

4. Auður Jóns­dóttir.

5.  Egifta­landi.

6.  Elvis Presley.

7.  Babe.

8.  Hæsta­rétt­ar­dóm­ari. Lög­fræð­ingur hlýtur þó að duga.

9.  Golf.

10.  Svandís Svav­ars­dóttir.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er minkur.

Á neðri mynd­inni eru Ford Banda­ríkja­for­seti og Brésnév leið­togi Sov­ét­ríkj­anna.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár