Sterkar elítur á Íslandi

Sigrún Ólafs­dóttir og Jón Gunnar Bernburg, pró­fess­orar í félags­fræði við Háskóla Íslands, rann­saka ójöfnuð á Íslandi eftir mis­mun­andi teg­undum auð­magns. Þau hafa kom­ist að því að Íslend­ingar hafa minnstan aðgang að félags­legu auð­magni, það er hversu vel þeir eru tengdir valda­el­ítum Íslands.

Sterkar elítur á Íslandi
Fæstir nánir for­stjóra Í rann­sókn Sigrúnar Ólafs­dóttur og Jóns Gunnars Bernburg kemur í ljós að fæstir íslend­inga eru vel tengdir for­stjóra eða æðsta stjórn­enda í opin­beru fyr­ir­tæki.

Flestir tengja orðið auð­magn við pen­inga og að fólk skipt­ist í stéttir eftir því hversu mikla pen­inga það á og að baki þeim pen­ingum liggi oft hátt mennt­un­ar­stig. En hvað er auð­magn? Sigrún Ólafs­dóttir, pró­fessor í félags­fræði við Háskóla Íslands, segir að auð­magn sé „að þú hafir eitt­hvað af ein­hverju sem hjálpar þér áfram í líf­inu, hjálpar þér að ná árangri eða gefur þér aðgang að ein­hverju“. Því sé ekki nóg að hugsa eða skoða auð­magn aðeins út frá pen­ingum eða tekjum eða jafn­vel menntun. 

Í rann­sókn­ar­verk­efni Sigrúnar og Jóns Gunnars Bernburg, pró­fess­ors í félags­fræði, um ójöfnuð á Íslandi, rann­saka þau og mæla fjórar mis­mun­andi teg­undir auð­magns til þess að fá dýpri skiln­ing á því hvernig stéttir virka á Íslandi. Þau eru bæði með sam­an­burð við 40 önnur lönd og yfir tíu ára tíma­bil sýna nið­ur­stöður þeirra að þó að tekjur eða pen­ingar skipti veru­legu máli þegar kemur að við­horfum …

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Ekki hugsa ég þannig að vera að notfæra mér það í mína þágu þótt ég sé náskyld einhverju vesalings fólki sem veður í peningum eða sé í ráðandi stöðu því hver er sjálfum sér næstur elskurnar minar
    0
  • SVS
    Stefán Valdemar Snævarr skrifaði
    Sigrún hefði mátt geta þess að kenningin um þrjár gerðir auðmagns eru ættaðar frá franska félagsfræðingnum Pierre Bourdieu.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár