„Afleit grein til að búa til störf og góð lífskjör fyrir Íslendinga í framtíðinni“

Pró­fessor í hag­fræði segir ekki hægt að byggja hag­vöxt á lág­launa­grein eins og ferða­þjón­ustu í hálauna­landi eins og Íslandi.

„Afleit grein til að búa til störf og góð lífskjör fyrir Íslendinga í framtíðinni“
Ferða­menn Ferða­þjón­ustan tók hratt við sér eftir kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn og fjöldi ferða­manna sem heim­sóttu Ísland í fyrra var um 1,7 millj­ónir. Mynd: Skjáskot/RÚV

„Ferða­þjón­usta er lág­launa­grein í hálauna­landi.“ Þetta skrifar Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði, í grein sem birt­ist í nýj­ustu útgáfu Vís­bend­ingar sem kom út í dag. 

Þar bendir hann á að íslenska hag­kerfið, sem hafi ein­hver bestu lífs­kjör í heimi, stefni á að byggja hag­vöxt á vexti ferða­þjón­ustu sem kalli á vinnu­afl sem getur keppt við vinnu­afl í ferða­þjón­ustu erlendis. Sá vandi hafi verið „leystur“ með inn­flutn­ingi á vinnu­afli sem fær þá oft­ast greitt sam­kvæmt lágum launa­töxtum. „Þessi mót­sögn kemur nú fram m.a. í þeim verk­föllum sem nú hafa skollið hafa á. Til­raunir stjórn­mál­anna árið 2014 að leggja hóf­legt gjald á erlenda ferða­menn runnu út í sand­inn vegna mót­mæla ferða­þjón­ust­unnar en eftir standa skattaí­viln­anir sem örva vöxt ferða­þjón­ustu og er nú búist við 2 millj­ónum ferða­manna til lands­ins í ár.“

Gylfi segir að ferða­þjón­ustan sé góð auka­grein, og jafn­vel góð byggða­stefna, en afleit grein til að búa til störf og góð lífs­kjör fyrir Íslend­inga í fram­tíð­inni. „Líklegt er að þró­unin gæti orðið sú að þús­undir erlendra rík­is­borg­ara flytji til lands­ins á ári hverju og inn­fæddir flytji þá til útlanda í leit að betri störfum.“ 

Erlendir rík­is­borg­arar sem búa hér­lendis eru nú orðnir rúm­lega 65 þús­und. Þeim fjölg­aði meira í fyrra en nokkru sinni áður á einu ári og fjöldi þeirra hefur rúm­lega þre­fald­ast á ell­efu árum. Gylfi segir að vegna ört breyti­legrar sam­setn­ingar þjóð­ar­innar sé mik­il­vægt að huga að því hvernig börnum inn­flytj­enda, fyrstu kyn­slóðar Íslend­ingum, vegnar. „Ýmislegt bendir til þess að fyrstu kyn­slóðar Íslend­ingum vegni verr í skóla­kerf­inu en börnum inn­fæddra. Það er mik­il­vægt að kanna málin og reyna að koma í veg fyrir að til verði stór hópur ein­stak­linga sem finnst þeir hafa skert tæki­færi í þjóð­fé­lag­inu.“

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu með því að smella á þennan hlekk.

Kjósa
56
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PH
    Pétur Hilmarsson skrifaði
    Gott hjá Gylfa. Til viðbótar við það sem kemur fram í þessari grein þá er rétt að benda á að ferðmennska veldur gríðarlegri þenslu á fasteignamarkaði vegna airbnb og þörfinni að hýsa þá tugþúsundir starfsmanna sem greinin hefur flutt inn í landið. Ef ekki væri fyrir greinina þá væri mun betra ástand á íbúðamarkaði.
    Ferðamennska er mjög viðkvæm grein ef eitthvað kemur upp. Hryðjuverk, stríð, farsóttir, náttúruhamfarir valda greininni reglulega mun meiri búsifjum en flestum öðrum atvinnugreinum. Ríkið mun stöðugt verða með skuldabagga vegna einhverra slíkra mála, hver er þá gróðinn?
    Síðan eru umhverfismálin ef menn ætla að taka loftslagsmálin alvarlega þá verður einfaldlega að horfast í augu við það að massatúrismi á stað eins og Íslandi gengur ekki upp. Það er ekki hægt að komast hingað nema með þeim ferðamátum sem hafa langmest kolefnispor, þ.e. flug og skemmtiferðaskip.
    En hvað er hægt að gera, t.d. að leggja á mjög mjög há komugjöld sem yrðu reiknuð m.a. útfrá kolefnisspori þ.a. farþegi í einkaþotu greiddi mun hærra gjald en farþegi í áætlunarflug. Það væri síðan hægt að vera með ferðastyrki fyrir þá sem væru með búsetu á íslandi líkt og gert er fyrir fólk út á landi með innanlandsflug.
    2
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Gylfi veit hvað hann syngur. Til landsins streymir verkafólk en menntafólk úr landi. Viðskiptahallinn í mannauði er aldrei tekinn með í reikninginn, þegar þjóðarbúskapurinn er gerður upp. Er hræddur um að margir fengju duglegt svimakast við það uppgjör.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár