Logi Bergmann til starfa hjá SFS

Logi Bergmann Eiðsson mun vinna að und­ir­bún­ingi árs­fundar Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi. Rúmt ár er síðan hann vék úr starfi sem útvarps­maður á K100 í kjöl­far ásak­ana um brot gegn ungri konu.

Logi Bergmann til starfa hjá SFS
Kominn til starfa fyrir sjáv­ar­út­veg­inn Logi hefur hafið störf hjá SFS. Mynd: Pressphotos.biz - (RosaBraga)

Logi Bergmann Eiðsson hefur verið ráð­inn inn til starfa hjá Samtökum fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS). Er hlut­verk hans þar einkum að vinna að und­ir­bún­ingi árs­fundi sam­tak­anna en auk þess mun Logi sinna til­fallandi verk­efnum.

Enginn starf­andi upp­lýs­inga­full­trúi er hjá SFS nú um stundir eftir að Benedikt Sig­urðs­son lét af störfum. Laufey Rún Ket­ils­dóttir hefur verið ráðin upp­lýs­inga­full­trúi sam­tak­anna en hefur ekki störf fyrr en 1. júní, að loknu fæð­ing­ar­or­lofi. Skipu­lagn­ing árs­funda er alla jafna á höndum upp­lýs­inga­full­trúa að tölu­verðu leyti og því ljóst að vinnu­fúsar hendur hefur vantað hjá SFS í slíka skipu­lagn­ingu.

Logi fór í frí frá störfum sínum sem umsjón­ar­maður síð­deg­is­þáttar útvarps­stöðv­ar­innar K100 7. jan­úar á síð­asta ári, eftir að hafa verið ásak­aður opin­ber­lega um að hafa brotið gegn ungri konu, Vítalíu Lazareva. Vítalía greindi frá því á Instagram-reikn­ingi sínum að Logi hefði brotið gegn sér og í við­tali í hlað­varps­þætt­inum Eigin konur í byrjun jan­úar 2022 greindi hún síðan frá því að hún hefði upp­lifað brot af hendi hans í félagi við Arnar Grant. Vítalía nafn­greindi þó Loga ekki í við­tal­inu.

Logi sendi frá sér yfir­lýs­ingu 6. jan­úar 2022 þar sem hann sagð­ist sak­laus af því að hafa brotið gegn Vítalíu en hann hefði farið yfir mörk í einka­lífi fólks, með því að fara inn í her­bergi sem hann hefði ekki átt að fara inn í. Hann hefði þegar tjáð við­kom­andi að hann tæki á því ábyrgð og þætti það leitt.

Ekki hafa borist af því fréttir á þessu rúma ári að Logi muni koma aftur úr frí­inu frá K100 né fréttir af því að hann hafi ein­hvers staðar ann­ars staðar hafið störf, ekki fyrr en nú. Logi sjálfur vildi ekki tjá sig neitt um hið nýja starf sitt hjá Samtökum fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi þegar Heim­ildin hafði sam­band við hann.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár