Eflingarfólk hjá Íslandshótelum samþykkti að fara í verkfall

Félags­menn Eflingar sem starfa á sjö hót­elum Íslands­hót­ela hafa sam­þykkt að fara í verk­fall. Óvíst er að af verk­fall­inu verði þar sem rík­is­sátta­semj­ari lagði fram miðl­un­ar­til­lögu í kjara­deil­unni.

Eflingarfólk hjá Íslandshótelum samþykkti að fara í verkfall
Samþykkt Mikil ánægja var með nið­ur­stöð­una á fundi samn­inga­nefndar Eflingar í kvöld.

Starfs­fólk Íslands­hót­ela á félags­svæði Eflingar hefur sam­þykkt að fara í verk­fall. Atkvæða­greiðslu lauk í kvöld og boðun verk­falls var sam­þykkt með 124 atkvæðum gegn 58 mót­at­kvæðum og sjö ósk­uðu að taka ekki afstöðu. Af þeim sem greiddu atkvæði voru því 65 pró­sent sem sam­þykktu boð­un­ina. Samtals kusu 189 af þeim 287 sem voru á kjör­skrá og var kjör­sókn því 66 pró­sent.

Í til­kynn­ingu sem Efling sendi frá sér í kvöld segir að stjórn­endur Íslands­hót­ela hafi beitt starfs­fólk miklum þrýst­ingi og hót­unum um tekju­missi tækju þau afstöðu með verk­falli. „Er það skýrt brot á ákvæðum laga um stétt­ar­fé­lög og vinnu­deilur. Var allt starfs­fólk skikkað á sér­staka fundi þar sem stjórn­endur ræddu um kjara­deilu Eflingar við SA á vill­andi og ein­hliða hátt, og komu hót­unum sínum í þá veru óspart á fram­færi. Bárust félag­inu margar kvart­anir frá félags­fólki vegna þessa.“

Þar segir einnig að samn­inga­nefnd Eflingar hafi sam­þykkt frek­ari verk­falls­boð­anir á fundi sínum í kvöld og að þær verði aug­lýstar fyrir hádegi á morgun. Um þær ríkir trún­aður þangað til.

Slitu 10. janúar

Efling sleit við­ræðum við Samtök atvinnu­lífs­ins 10. jan­úar síð­ast­lið­inn og til­kynnti sam­hliða að und­ir­bún­ingur verk­falls­að­gerða væri haf­inn. Samn­inga­nefnd Eflingar sam­þykkti verk­falls­boðun á fundi sínum 22. jan­úar. Hún tekur til starfs­stöðva Íslands­hót­ela á félags­svæði Eflingar, alls sjö hót­ela. Félags­fólk sem verk­falls­boð­unin nær til greiddi í kjöl­farið atkvæði um hvort það vildi að ráð­ist yrði í aðgerð­irnar eða ekki en um er að ræða starfs­fólk sem sinnir þrifum á her­bergjum og í sam­eig­in­legum rýmum, störfum í eld­húsi, við fram­leiðslu veit­inga, þvott og fleira. 

Atkvæða­greiðslan opn­aði á hádegi 24. jan­úar og lauk klukkan 20 í kvöld. Samkvæmt upp­legg­inu átti ótíma­bundin vinnu­stöðvun hefj­ast á hádegi 7. febr­úar næst­kom­andi ef verk­fall yrði sam­þykkt. Hún mun ná til allra starfa undir kjara­samn­ingi Eflingar við Samtök atvinnu­lífs­ins um vinnu í veit­inga- og gisti­húsum sem starfa á sjö hót­elum innan Íslands­hót­ela­sam­stæð­unnar. 

Ríkissáttasemjari lagði fram miðlunartillögu

Eftir að atkvæða­greiðsla um verk­fallið hófst lagði Aðal­steinn Leifsson rík­is­sátta­semj­ari hins vegar fram miðl­un­ar­til­lögu í kjara­deilu Eflingar og Samtaka atvinnu­lífs­ins, sem felur í sér að allir félags­menn Eflingar á almennum vinnu­mark­aði eiga að greiða atkvæði um kjara­samn­ing sam­bæri­legan þeim sem önnur félög innan Starfs­greina­sam­bands­ins hafa þegar gert og að samn­ing­ur­inn feli í sér aft­ur­virkar greiðslur frá 1. nóv­em­ber.

Þetta til­kynnti rík­is­sátta­semj­ari á blaða­manna­fundi 26. jan­úar.

Samkvæmt lögum um stétt­ar­fé­lög og vinnu­deilur telst miðl­un­ar­til­laga felld í atkvæða­greiðslu ef meira en helm­ingur greiddra atkvæða er á móti henni og ef mót­at­kvæðin eru fleiri en fjórð­ungur atkvæða sam­kvæmt atkvæða- eða félaga­skrá.

Atkvæða­greiðslan átti að vera raf­ræn, hefj­ast síð­ast­lið­inn laug­ar­dag og átti að standa yfir þar til síð­degis á morgun, þriðju­dag.

Til þess að fella miðl­un­ar­til­lög­una þurfa ríf­lega fimm þús­und félags­menn Eflingar að greiða atkvæði gegn henni, en yfir 20 þús­und manns starfa sam­kvæmt samn­ingum Eflingar á almennum vinnu­mark­aði. Ef miðl­un­ar­til­lagan er ekki felld, telst kjara­samn­ingur á grund­velli hennar sam­þykktur.

Neituðu að afhenda félagatalið

Efling hefur hins vegar neitað að afhenda rík­is­sátta­semj­ara félaga­tal sitt. Með því er rík­is­sátta­semj­ara ókleift að láta kjósa um miðl­un­ar­til­lögu. Hann hefur leitað til dóm­stóla til að knýja á um afhend­ingu félaga­tals­ins. 

Efling lagði í dag fram stjórn­sýslu­kæru til félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­is­ins vegna miðl­un­ar­til­lög­unnar. Krafa Eflingar er að miðl­un­ar­til­lagan verði felld úr gildi, meðal ann­ars vegna skorts á sam­ráði við Eflingu. 

Í til­kynn­ing­unni sem send var út í kvöld segir að tveir ráð­herrar Vinstri grænna í rík­is­stjórn, Guð­mundur Ingi Guð­brands­son félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra og Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, hafi vitað af miðl­un­ar­til­lögu rík­is­sátta­semj­ara áður en hún var kynnt samn­inga­nefnd Eflingar. Ráð­herr­arnir hafi auk þess stigið fram opin­ber­lega til stuðn­ings við miðl­un­ar­til­lög­una þrátt fyrir háværa gagn­rýni allra heild­ar­sam­taka launa­fólks á hana. „Samn­inga­nefnd fagnar hug­rekki Efl­ing­ar­fé­laga á Íslands­hót­elum, sem kusu með sjálf­stæðum samn­ings- og verk­falls­rétti sínum þrátt fyrir þving­un­ar­til­burði, þrýst­ing og hót­anir frá öllum valda­mestu stofn­unum íslensks sam­fé­lags.“

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sveinn Hansson skrifaði
    0,445% atkvæðisbærra manna hjá eflingu hafnar afturvirkum samningum fyrir hin 99,555% félagsmanna.
    124 segja nei takk fyrir hina27876.
    Þetta kallar Sólveig og sósíalistahirð hennar lýðræði.
    -1
  • Jóhannes Ragnarsson skrifaði
    Glæsilegt. Til hamingju verkafólk.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaradeila Eflingar og SA

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
6
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár