Kíminn femínismi í glímu við listasöguna

Margrét Elísabet Ólafs­dóttir list­fræð­ingur rýnir í mynd­list og opnar heima með penn­anum.

Kíminn femínismi í glímu við listasöguna
Annað

Gletta - mynd­list­ar­sýn­ing

Gefðu umsögn

Það eru gáska­full verk sem  taka á móti gestum á yfir­lits­sýn­ing­unni Gletta í Hafn­ar­borg, sem til­einkuð er verkum Sóleyjar Eiríks­dóttur (1957-1994). Mörg verk­anna ólga af sprellandi leik­gleði sem smitar sér áreynslu­laust til áhorf­and­ans í verkum sem taka á móti honum þegar gengið er inn á sýn­ing­una. Kynjafígúrur með skírskot­unum í furðu­skepnur ímynd­un­araflsins og lík­ama kvenna taka á sig marg­vís­legar myndir í leir og stein­steypu, efni­við sem Sóley not­aði jöfnum höndum þegar leið á fer­il­inn. Efni­viðir, sem hvort tveggja harðna þegar þeir taka á sig form, öðl­ast létt­leika í með­förum Sóleyjar sem glæðir stór­gerð form fígúra­tífum eig­in­leikum. Þessi lýs­ing á ekki síst við um röð af stein­steypu­verkum, flest frá árinu 1988, sem er að finna innst í stærri sýn­ing­ar­salnum á efri hæð­inni í Hafn­ar­borg.

Umrædd verk eru ein­lit, svört og fom­föst í þeim skiln­ingi að þau byggja á skýrum útlínum. Svarti lit­ur­inn drekkur í sig alla birtu þannig að verkin virð­ast abstrakt við fyrstu sýn og í and­stöðu við ljóst yfir­bragðið og leik­gleði í verk­inu Höf­uð­staða (1987), fyrsta skúlp­t­úrnum sem sýn­ing­ar­gestir sjá. Þegar nær er komið reyn­ast svörtu verkin búa yfir fimi og mýkt en í ljós koma rifur fyrir klof og munn eða smá­gerð augu sem glæða formin hlut­bundnu lífi. Við blasir sjón­ar­horn á lík­ama eða brot af lík­ama í undnum eða sam­þjöpp­uðum stell­ingum sem ósa af húmor og gáska. M-laga skúlp­túr Án tit­ils (1988) reyn­ist vera fætur með útglennt klof og hring­laga form með haus­inn á hvolfi í öðru verki, Án tit­ils (1988), lík­ami sem sveig­ist aftur og hringar sig saman í kuð­ung. Í fyrra verk­inu er skýr femínískur und­ir­tónn­inn sem skín í gegnum í fleiri verkum.  

Líkami konunnar sem börur  

Hægindi (1988) er eitt slíkt verk, ein heild í tveimur hlutum. Það er gert úr hálf­hring­laga formi sem stendur á gólf­inu eins og stöp­ull, en ofan á því liggur flatur kven­lík­ami með útrétta arma og fætur. Líkaminn minnir á börur en það eina sem tengir bör­urnar við lík­ama konu eru tvö keilu­laga form, brjóst stað­sett rétt ofan við miðju búks­ins. Þessi böru-lík­ami liggur á völtum und­ir­stöðum hálf­hrings­ins sem einnig má sjá sem hálf­mána, og virkar því eins og óstöðugt vega­salt sem sveifl­ast í þá átt sem þung­inn er mestur. Tit­ill­inn Hægindi getur vísað til und­ir­stöð­unnar sem bólstraðra þæg­inda en vegna teng­ingar forms lík­am­ans sem liggur útbreiddur og sam­vax­inn und­ir­stöð­unum sveifl­ast hug­myndin um hæg­indi að böru-lík­am­anum sem býður sig fram sem sæti. Konu-bör­urnar eru ekki aðeins bornar heldur bera þær þung­ann af hverju því sem lagt er á þær.

Fjalla-brjóst

Hægindi er ekki eina verkið á sýn­ing­unni sem býður upp á marglaga túlkun og teng­ingu við vanga­veltur um stöðu kon­unnar í sam­fé­lag­inu og í listum á tíma­bili sem ein­kennd­ist af orð­ræðu kven­rétt­inda­bar­átt­unnar. Notkun Sóleyjar á keilu­form­inu sem birt­ist í fjöl­mörgum verk­anna má einnig sjá sem vísun í þrástef í íslenskri mynd­list framan af 20. öld­inni; mynd­inni af fjall­inu í mál­verkum sem flest eru eftir karl­kyns lista­menn. Þessi teng­ing kemur greini­leg­ast fram í verk­inu Fjall­kona (1988). Form verks­ins er hár og grannur fer­strend­ingur sem stendur upp­réttur á þunnri plötu. Form verks­ins vísar í stöp­ul­inn eða stall­inn sem hefur borið skúlp­t­úr­inn uppi í gegnum lista­sög­una og högg­mynda­list­ina sem ímynd karl­mennsku og styrk­leika. Uppi á stöpl­inum eru tvö keilu­laga form sem standa allt í senn fyrir brjóst fjall­kon­unnar og fjöllin. Stöp­ull­inn er enda ekki stöp­ull heldur tákn­mynd tein­rétts lík­ama kon­unnar sem brjóstin til­heyra og er áréttuð með titli verks­ins og beinni línu sem er teiknuð í steypuna og liggur upp eftir miðju forms­ins frá gólfi þar til hún kvísl­ast í tvær áttir og myndar kven­sköp rétt undir miðju stöp­uls-lík­am­ans. Merking verks­ins verður að yfir­lýs­ingu um að konur hafi stigið inn á sviðið og séu til­búnar að snúa upp á og út úr karllægum við­horfum og við­mið­unum.

Merking miðilsins

Sóley Eiríks­dóttir er af kyn­slóð lista­kvenna sem hóf nám í Mynd­lista- og hand­íða­skóla Íslands haustið sem fyrsti kvenna­frí­dag­ur­inn var hald­inn árið 1975. Verk hennar eru lituð af hug­sjón kvenna- og jafn­rétt­is­bar­átt­unnar sem á eftir fylgdi og sterkri vit­und um merk­ingu bæði efnis og forma sem hún vinnur með af ein­stakri hug­vits­semi með hár­fínan húmor að vopni. Sóley valdi upp­haf­lega að vinna í leir, efni­við sem lengi stóð skör neðar í stig­veldi list­grein­anna en mál­verk og marmari. Leirinn átti sæti hjá nytja­list­inni og á sýn­ing­unni eru ker­am­ikvasar og skálar sem geta flokk­ast sem nytja­hlutir. En þar eru einnig verk sem sýna hvernig Sóley fjar­lægist nytja­hlut­inn og fær­ist nær mynd­list­ar­legri hugsun með gerð fígúra­tífra leir­verka sem taka gagn­rýna afstöðu til list­sögu­legs flokk­un­ar­kerfis. Notkun Sóleyjar á stein­steypu á síð­ari hluta níunda ára­tug­ar­ins þýddi ekki að hún hefði yfir­gefið leir­inn, mögu­lega vegna þess að hann væri „of kven­legur“, heldur var stein­steypan val­kostur sem gaf henni færi á að vinna stærri verk úr efni­viði sem ekki var slig­aður af list­sögu­legri merk­ingu. Saga stein­steypunnar innan mynd­list­ar­innar var hvorki löng né mótuð og því hægt að líta á hana sem nútíma­legt efni með teng­ingu við 20. öld­ina og  nútíma­sögu bygg­ing­ar­listar og þar með bygg­ingar nýrrar sögu. Val Sóleyjar á efni­við til að vinna með ákveðnar hug­myndir í form er að þessu leyti hlaðið merk­ingu.

Tíðarandi

Hér hafa verið dregin fram nokkur verk sem gefa hug­mynd um við­fangs­efni Sóleyjar, en á sýn­ing­unni Gletta er einnig að finna skúlp­t­úra úr bronsi, teikn­ingar og ætingar sem bera ákveðin höf­und­ar­ein­kenni. Þau birt­ast í keilu­laga formum, lík­ams­fettum, og höf­uð­stöðum sem draga fram femínískt sjón­ar­horn fullt af kímni þar sem daðrað er við súr­r­eal­isma – stefnu, sem þrátt fyrir að vera karllæg gaf konum og öðum kynjum færi á að fjalla um kynjapóli­tísk við­fangs­efni. Þótt verk Sóleyjar hafi aug­ljós­lega mót­ast af tíð­ar­and­anum og ákveð­inni fag­ur­fræði sem stað­setur þau á níunda ára­tugnum og við upp­hafi þess tíunda, hafa þau sterka skírskotun til sam­tím­ans, kannski vegna þess að sam­tím­inn virð­ist hafa sér­stakt dálæti á þessu tíma­bili í lista- og menn­ing­ar­sögu 20. aldar. Sýn­ing­unni er fylgt úr hlaði með sýn­ing­ar­skrá sem hefur að geyma per­sónu­lega og upp­lýsandi texta eftir Auði Övu Ólafs­dóttur og sam­ræður Aðal­heiðar Val­geirs­dóttur við Kristínu Ísleifs­dóttur.


Höfundur: Margrét Elísabet Ólafs­dóttir
Sýning: Sóley Eiríks­dóttir | Gletta
Stað­setn­ing: Hafn­ar­borg, Strand­götu 34, Hafn­ar­firði
Tímabil: 14. jan­úar–19. mars 2023
Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár