1007. spurningaþraut: Það hlaut að koma spurning um Kalle Anka

1007. spurningaþraut: Það hlaut að koma spurning um Kalle Anka

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir hin brosmilda kona hér á miðri mynd?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Sverrir Her­manns­son var þing­maður og ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem stofn­aði um síðir sinn eigin flokk 1999 og náði flokk­ur­inn nokkru flugi um tíma. Hvað nefnd­ist flokk­ur­inn?

2.  Sverrir var kunnur fyrir fleira. Hann átti til dæmis lengi metið yfir lengstu þing­ræðu sög­unnar. Ræðuna flutti Sverrir 1974 og fjall­aði hún um mál sem frá­leitt verður talið til merk­ustu póli­tísku ágrein­ings­efna stjórn­mála­sög­unnar. Ræðan fjall­aði sem sé um ... hvað?

3.  Styrr hefur staðið um raf­magns­byssur sem lög­reglan mun fá í hendur á næst­unni. Hvað kall­ast slíkar byssur á alþjóða­málum?

4.  Virginia Guiffre er tæp­lega fer­tug kona sem hefur vakið athygli fyrir bar­áttu sína á til­teknu sviði. Þar hefur ákveð­inn hátt­settur karl lent í skot­lín­unni. Hver er sá?

5.  Hver er sá sem kall­aður er Kalle Anka í Svíþjóð?

6.  Konur eru for­menn hve margra flokka sem eiga sæti á Alþingi?

7.  Í hvaða ríki Banda­ríkj­anna er gljúfrið mikla sem gengur ein­fald­lega undir nafn­inu Gljúfrið mikla?

8.  George Santos heitir ungur þing­maður í full­trúa­deild Banda­ríkja­þings sem kom­ist hefur í frétt­irnar að und­an­förnu vegna ... hvers?

9.  Hvaða fjörður er milli Arn­ar­fjarðar og Pat­reks­fjarðar á Vest­fjörðum?

10.  Blóð­drop­inn eru bók­mennta­verð­laun sem veitt hafa verið árlega frá 2007. Hvers konar bók­menntir eru verð­laun­aðar?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Dýrið á mynd­inni hér að neðan er eitt stærsta rán­dýrið í heilli heims­álfu. Hvaða heims­álfu?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Frjáls­lyndi flokk­ur­inn.

2.  Bók­staf­inn zetu.

3.  Taser.

4.  Andrés prins á Bret­landi.

5.  Andrés Önd.

6.  Fjögurra — Flokks fólks­ins, Sam­fylk­ingar, Við­reisnar og VG. Píratar hafa sem kunn­ugt er ekki for­mann.

7.  Arizona.

8.  Lyga um menntun sína og starfs­feril.

9.  Tálkna­fjörður.

10.  Glæpa­sögur.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á fyrri mynd­inni er Aníta Briem.

Dýrið á neðri mynd­inni (oft kallað tígrisköttur þótt það sé hvorki tígrisköttur né köttur) býr í Ástralíu.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Emil Kristjánsson skrifaði
    Halló, halló, laumupúkinn hér... mér sýnist nú að hér sé pokamörður á ferð, sem er pokadýr, en ekki rándýr. Auk þess, sem stærsta rándýr í Ástralíu er dingó-hundur, ef ég man rétt.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár