Tugir valdamanna innan Repúblikanaflokksins í New York, þar á meðal fjórir þingmenn í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, hvetja George Santos, þingmann repúblikana í ríkinu, til að segja af sér þingmennsku. Kevin McCarthy, nýkjörinn forseti fulltrúadeildarinnar, er á öðru máli.
Santos var kjörinn á þing fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í þingkosningunum í nóvember fyrir þriðja kjördæmi í New York sem samanstendur af íbúum í hluta Queens og Long Island. Skömmu fyrir jól birti New York Times umfjöllun þar sem greint var frá því að Santos laug til um starfsreynslu og menntun á ferilskrá sinni og lagði mikla áherslu á í kosningabaráttunni.
Santos hefur viðurkennt að hafa hvorki unnið fyrir fjárfestingabankann Goldman Sachs né Citigroup. Þá viðurkenndi hann einnig að hafa ekki lokið háskólaprófi þó fram komi fram á ferilskrá hans að hann hafi verið útskrifast með hæstu einkunn úr Baruch-háskóla og lokið M.B.A.-gráðu við New York-háskóla. Hvorugt er satt.
Í kosningabaráttunni opnaði hann sig um móðurmissinn og sagði móður sína hafa látist í hryðjuverkaárásinni 11. september 2001. Hið rétta er að móðir hans lést árið 2016. Þá sagðist Santos vera gyðingur en hefur nú viðurkennt að hann er kaþólikki. Santos útskýrði mál sitt með því að segjast vera „gyðinglegur“ þar sem slíkan bakgrunn væri að finna í móðurfjölskyldu hans.
Lygar Santos eru nú rannsakaðar sem glæpsamlegt athæfi af héraðssaksóknara í Nassau-sýslu í New York-ríki sem og af alríkisyfirvöldum. Yfirvöld í Brasilíu hafa einnig tekið upp eldri rannsókn frá 2008 þar sem Santos er grunaður um að hafa stolið ávísanahefti og notað.
Santos viðurkennir að hafa fegrað feril sinn og gert mistök en hann ætlar ekki að segja af sér þingmennsku. „Ég er ekki glæpamaður.“
Santos veitti Fox News viðtal í byrjun árs þar sem hann ræddi við Tulsi Gabbard, fyrrverandi þingmann Demókrataflokksins. Gabbard spurði Santos meðal annars hvort hann skammaðist sín ekki? Santos svaraði ekki en sagðist „geta sagt það sama um Demókrataflokkinn og Joe Biden Bandaríkjaforseta sem hefur verið að ljúga að bandarísku þjóðinni í 40 ár“.
Kjósendur geta endurskoðað ákvörðun sína eftir tvö ár
Þrátt fyrir þrýsting frá fyrrum bandamönnum Santos innan flokksins um að segja af sér þingmennsku er Kevin McCarthy, nýkjörinn forseti fulltrúadeildarinnar, staðráðinn í að styðja Santos áfram sem þingmann. Auk þess hefur hann lofað honum sæti í einum af þingnefndum fulltrúadeildarinnar.
„Kjósendurnir kusu hann til að gegna þingstörfum,“ segir McCarthy. „Hann þarf að sinna kjósendum og kjósendur geta ákveðið sig að nýju eftir tvö ár.“
Formaður nefndar Repúblikanaflokksins í Nassau-sýslu, Joseph G. Cairo Jr., segir Santos hafi misst stuðning allra repúblikana í kjördæminu. Kosningaherferð Santos var, að mati Cairo, full af „svikum, lygum og tilbúningi“.
„Hann vanvirti fulltrúadeildina og við teljum hann ekki tilheyra þingmannahópi okkar,“ sagði Cairo á blaðamannafundi á miðvikudag þar sem hann krafðist afsagnar Santos fyrir hönd nefndar Repúblikanaflokksins í Nassau-sýslu.
Santos brást við á Twitter þar sem hann sagðist harðákveðinn í að þjóna kjósendum sínum, en „ekki flokknum og stjórnmálamönnunum“.
„Ég mun EKKI segja af mér!“
Hefur ekki áhyggjur af formlegum kvörtunum
Tvær formlegar kvartanir hafa verið lagðar fram gegn Santos. Tveir þingmenn Demókrataflokksins hafa lagt fram beiðni um að þverpólitísk nefnd fulltrúadeildarinnar rannsaki hvort Santos hafi brotið gegn lögum þegar hann skilaði upplýsingum um fjárhagslega hagsmuni eftir tilskyldan frest og án lykilupplýsinga um bankainnistæður og fyrirtækjarekstur.
Santos segir þingmönnum frjálst að gera það sem þeir vilja, hann hafi ekki áhyggjur þar sem hann „hefur ekki gert neitt siðferðilega rangt“.
Þá hafa eftirlitssamtökin Campaign Legal Center sakað Santos um að nýta fjármagn sem merkt var kosningaherferð hans í persónuleg útgjöld sem og að gera ekki grein fyrir uppruna fjármagns sem hann nýtti í kosningabaráttunni. Eftirlitssamtökin hafa óskað eftir því að alríkiskjörnefnd Bandaríkjanna (FEC) taki kosningabaráttu Santos til rannsóknar.
Þingforsetinn styður Santos en ætlar að stjórna ferðinni
McCarthy forðaðist að tjá sig um Santos á meðan hann barðist fyrir því að ná kjöri sem forseti fulltrúadeildarinnar. Eftir fjóra langa daga í þingsalnum í síðustu viku og fimmtán atkvæðagreiðslur tókst það loks. Þingforseti er vanalega kosinn án vandkvæða með einni atkvæðagreiðslu en innanflokkserjur og átök innan þingflokks repúblikana flæktu málin. Þetta er í fimmtánda sinn í 234 ára sögu fulltrúadeildarinnar sem fleiri en eina umferð þarf til að kjósa þingforseta. Fara þarf 164 ár aftur í tímann til að finna svipaða stöðu en þá þurfti 44 umferðir til að kjósa þingforseta.
Þó McCarthy styðji Santos ætlar hann ekki að láta allt eftir honum. Santos fékk til að mynda ekki sæti í fjárlaganefnd fulltrúadeildarinnar sem hann sóttist eftir og á enn eftir að fá úthlutuðu sæti í þingnefnd. Aðspurður hvort Santos fengi sæti í einum af áhrifameiri nefndum fulltrúadeildarinnar var svar McCarthy einfalt: „Nei.“
Þónokkrir þingmenn repúblikana virðast vera á báðum áttum með stöðu Santos. Ken Buck, þingmaður repúblikana í Colorado, segir gjörðir Santos alvarlegar en sakar demókrata um að hafa brugðist. „Ef demókratar hefðu kannað málið frekar og afhjúpað það hefðu kjósendur haft frekari upplýsingar,“ segir Buck.
Ólíklegt verður að teljast að Santos segi af sér þingmennsku en ef það gerist þarf að efna til sérstakrar kosningar um þingsæti hans. Formaður nefndar repúblikana í Nassau-sýslu segir of snemmt að tilnefna mögulega frambjóðendur til að fylla sæti Santos. Santos er samt sem áður ekki velkominn í höfuðstöðvar Repúblikanaflokksins í New York þó svo að hann sitji enn á þingi.
Athugasemdir