Langvarandi svefnleysi getur valdið alvarlegum sjúkdómum

Nægur og góður svefn er nauðsyn­legur til að líkaminn starfi sem best vegna þess að það gerist mikið í líkamanum á meðan sofið er. Ákveðin kerfi geta raskast ef svefninn er ekki eins og hann ætti að vera til lengri tíma og þá geta komið fram ýmis einkenni og sjúkdómar.

Þótt sífellt sé hamrað á mikilvægi svefns er enn of algengt að fólk fari í gegnum daga, vikur og hvert árið sem líður, án þess að gefa líkamanum nægan svefntíma til að hvílast og endurnýja sig, styrkja ónæmis- og tauga­kerfið. Án svefns er heilinn samt ófær um að skapa og halda utan um minningar, vinna úr tilfinningum og hugsunum, viðvarandi einbeitingar­skortur hefur áhrif á vinnu­framlag, skapsveiflur aukast og svo fram eftir götunum. Áhrifin eru mikil, eða eins og Erla Björns­dóttir sálfræðingur segir: „Svefn er gríðar­lega mikilvæg grunnstoð fyrir bæði andlega og líkamlega heilsu.“ 

Í doktors­námi sínu rann­sakaði hún svefn­leysi, andlega líðan og lífsgæði hjá sjúklingum með kæfisvefn og hefur hún sérhæft sig í hugrænni atferlis­meðferð við svefn­leysi. „Við verjum þriðjungi lífsins í svefn og það er ekkert að ástæðu­lausu; ef við fáum ekki nægan svefn að staðaldri þá koma fram ýmsar neikvæðar afleiðingar á hugræna virkni, einbeitingu, hugsun, minni og andlega líðan og við erum með minna viðnám fyrir streitu þegar við erum illa sofin.“

Undir þetta tekur Erla Gerður Sveins­dóttir, heimilis­læknir og lýðheilsu­fræðingur: „Svefninn er nátt­úrlega svo miklu mikil­vægari heldur en haldið var lengi vel. Núna fer öll þekking hratt fram sem sýnir hvað það er mikið að gerast í líkamanum þegar við sofum og hvað svefninn er gríðar­lega mikilvægt lífeðlisfræðilegt ferli,“ segir Erla Gerður. „Það gerist mikið í heilanum og öllum kerfum líkamans þegar við sofum, sem er nauðsynlegt til þess að þau fúnkeri. Líkaminn þolir vel svefn­truflun í stuttan tíma í einu en ef um er að ræða langvinna truflun þá getur eitthvað farið að gefa sig og þá fara alls konar kerfi í líkamanum að kvarta og þá geta komið fram einkenni og síðan sjúkdómar.“

Erla Gerður bendir á að flestir þurfi sjö til átta tíma svefn, en að næstu vikmörk séu sex til níu tíma svefn. Hér að neðan má sjá leið­beiningar frá Landlækni um hversu mikinn svefn fólk þarf eftir aldri: 

Aldur  Klukku­stundir
65 ára og eldri  7 til 8 
18 til 65 ára 7 til 9
14 til 17 ára 8 til 10
6 til 13 ára 9 til 11 
3 til 5 ára 10 til 13
1 til 2 ára  11 til 14
4 til 11 mán­aða 12 til 15
0 til 3 mán­aða 14 til 17

Unglingar sofa of lítið

Nú er í gangi stór íslensk rannsókn sem er samvinnu­verkefni Reykja­víkurborgar, embættis land­læknis og Háskólans í Reykjavík, þar sem verið er að skoða hvaða áhrif það hefur að seinka upphafi skóladags hjá unglingum. „Rann­sóknir sýna að margir unglingar sofa of lítið og sá hópur virðist stækka, sem er mikið áhyggju­efni,“ segir Erla Björns­dóttir.

„Það er margt sem spilar þar inn í, svo sem orku­drykkir, skjá­notkun og andleg vanlíðan. Unglingar eru auk þess með seinni dægursveiflu heldur en full­orðnir þannig að unglingar verða náttúru­legir nátt­hrafnar. Hormóna­starfsemi þeirra breytist við kynþroskann og þeir byrja að framleiða svefn­hormónið melóntónín á kvöldin seinna heldur en full­orðnir. Það er þess vegna unglingum eðlislægt að vilja sofna seinna á kvöldin og vakna seinna á morgnana. Þetta er ein ástæða þess að margir unglingar eru vansvefta. Þeir sofna oft seint en þurfa að vakna snemma til að mæta í skólann. Vogaskóli í Reykjavík er að seinka upphafi skóla­dagsins um 40 mínútur þannig að nú mæta nemendur klukkan 9.10 í stað 8.30. Við erum að gera veiga­miklar rann­sóknir á þessum hópi og unglingarnir ganga með úr sem mælir svefninn þeirra, svara  spurninga­listum um svefn­venjur og fleira. Við munum bera niður­stöðurnar frá þessum unglingum saman við unglinga í öðrum skólum. Það verður áhugavert að sjá hverjar niður­stöðurnar verða og hvort hægt sé með einföldum samfélags­legum aðgerðum mögulega að lengja svefn unglinga, en slíkt hefur borið góðan árangur erlendis.“

Svefngæðin versnuðu við barneignir

Erla Gerður Sveins­dóttirHeim­il­is­læknir segir lík­amann hætta að geta starfað jafn vel ef hann fær ekki næga hvíld. Smám saman fari eitt­hvað að gefa sig.

Erla Gerður er yfir­læknir kven­heilsu­teymis innan Heilsu­gæslu höfuð­borgar­svæðisins og vinnur að undir­búningi á svefn­rannsókn með nýrri aðferð hér á landi, annars vegar fyrir konur á breytinga­skeiðinu og hins vegar fólk í yfirþyngd. 

Kona, sem hafði í mörg ár fundið fyrir orkuleysi sem mátti rekja til þess að svefninn var ekki góður, ákvað að taka þátt í svefn­rannsókn. Í kjölfarið fylgdi hún fyrir­mælum læknis um að slaka á, gera öndunar­æfingar og breyta svefn­venjum gat hún bætt svefninn um 20 prósent. Konan minnist þess ekki að hafa glímt við svefn­vanda fyrr en hún fór að eignast börn. „Þá neyddist ég til að vakna á nóttunni og svefninn ruglaðist í kjölfarið á því. Í mörg ár svaf ég alls ekki nógu vel. Ég fór síðar að hugsa meira um andlega heilsu og hlúa að mér. Þá gerði ég mér grein fyrir því að það væri ekki nóg að hreyfa mig og taka mataræðið í gegn, heldur þyrfti ég líka að huga að svefninum. Ég átti vonda daga og fór að tengja það við að ég hefði sofið illa eða verið andvaka.“

„Ég fann fyrir orku­leysi og vildi verða orku­meiri seinni part­inn“

Jafnvel þegar hún  hafði sofið nóg voru gæði svefnsins ekki mikil. „Mér leið eins og ég hefði sofið of lítið. Ég átti til að vakna á næturnar. Ég fann fyrir orkuleysi og vildi verða orkumeiri seinni partinn og á kvöldin, en ég var löt að gera meira en ég þurfti.“

Í gegnum þátttöku í rann­sókninni lærði hún ýmis bjargráð. Hún hlóð smáforritum í símann sinn með slökunar­æfingum og fór að axla meiri ábyrgð á svefninum. „Ég hugsa núna meira um gæði svefnsins og ef ég sef illa skoða ég hvað ég get gert til að bæta svefn­gæðin. Enginn getur haft jafn mikil áhrif á þau og ég sjálf. Hreyfing, slökun og það að innleiða fastar venjur fyrr á kvöldin hjálpaði mér mest. Fyrir utan að fara að sofa og vakna á svipuðum tíma alla daga.“ 

Svefnleysi eykur líkur á þunglyndi og kvíða

Lang­varandi svefn­truflanir og skortur á svefni geta haft alvarlegar afleiðingar. „Til lengri tíma litið eykur svefn­leysi líkur á þunglyndi og kvíða,“ segir Erla Björns­dóttir: „Þetta breytir líka hormóna­fram­leiðslunni. Hungur­hormónin fara til dæmis úr jafnvægi þannig að við innbyrðum fleiri hita­einingar þegar við erum vansvefta og erum í aukinni hættu á ofþyngd og þá er einnig aukin hætta á sykursýki, háþrýstingi, hjarta- og æðasjúkdómum og fleiri líkamlegum og andlegum kvillum þegar ástandið er viðvarandi. Þetta getur haft mikil áhrif á lífsgæði og atvinnu­þátttöku fólks; fólk sem sefur of lítið tekur fleiri veikinda­daga, fram­leiðni í vinnu minnkar, slysa­hætta eykst og hætta á mistökum,“ segir Erla Björns­dóttir. 

Ýmsar ástæður eru fyrir svefn­leysi og nefnir Erla til dæmis mikla streitu, áföll eða breytingar sem fólk gengur í gegnum, svo sem barn­eignir, skilnað, flutninga og nýtt starf. „Svefn­leysi getur líka fylgt heilsu­bresti eða lífsstíl viðkomandi og má þar til dæmis nefna óreglulegt svefn­mynstur, mikla koffín­neyslu, áfengis­neyslu og skjá­notkun.“

Erla Gerður nefnir að þegar við sofum sé heilinn meðal annars að stilla minni og fleira sem tengist árvekni okkar og athygli, og skortur á svefni hefur neikvæð áhrif á þetta allt, auk þess að hæfileiki viðkomandi til þess að læra minnkar. „Þarna eru tengsl við Alzheimer-myndun; skortur á svefni getur verið hluti af tilurð Alzheimer. Það er þó mikilvægt að það komi fram að samverk­andi þættir stuðla að Alzheimer. Við vitum þó að til þess að heilinn bæði þroskist eðlilega og haldi getu sinni og hrörni sem minnst þá er svefninn gríðar­lega mikil­vægur.“

Nafna hennar bendir á að nýlegar erlendar rann­sóknir sýni fram á hvernig heilinn starfar í svefni og hvernig hann losar sig við eiturefni og úrgangs­efni á meðan sofið er. „Heilinn er eins og svampur sem er að losa sig við alls kyns óæskileg efni sem er nauðsynlegt að hann losi sig við en uppsöfnun á slíkum efnum hefur til dæmis verið tengt við aukna hættu á að fá Alzheimer og aðra heila­hrörnun.“

Erla Gerður heldur áfram: „Síðan eru alls konar hormóna­kerfi sem fylgja í rauninni líkams­klukkunni okkar. Það eru ákveðin kerfi sem fara í gang þegar við erum sofandi og önnur þegar við erum vakandi. Ég líki líkamanum stundum við verksmiðju; allar vélar eru settar í gang á daginn og þá er verið að framleiða, gera og græja og melta matinn og svo er bara slökkt á vélunum að loknu dagsverki og þá er hægt að komast að vélunum til þess að gera við og þrífa. En ef vélarnar eru alltaf í gangi þá er ekki hægt að komast að til þess að laga þær og þá fara þær smám saman að ganga úr sér.“ 

Hún nefnir frumu­skiptingar sem líkaminn „geri við“ á meðan sofið er. „Líkaminn hættir að geta gert það eins vel og hann þarf að gera ef viðkomandi sefur ekki nóg og þá fer eitthvað smám saman að gefa sig. Það gerist samt ekki við skammtíma­svefnleysi; fólk þarf ekki að vera hrætt ef það nær ekki að sofa í eina og eina nótt. Og eins er með frumu­skiptingar; það er ekki alveg að fara að myndast krabba­mein þó fólk nái ekki að sofa í eina og eina nótt.“ Erla Gerður er spurð hvort langtíma­svefnleysi sé bókstaf­lega krabbameins­valdandi. „Sumir vilja taka svo sterkt til orða. Við vitum að það er verið að gera við frumur á nóttunni en það er bara einn hluti af flóknu ferli.“

Erla Björns­dóttir Sál­fræð­ingur segir að fólk sem er á næt­ur­vöktum sé í sér­stakri áhættu og þurfi að inn­leiða svefn­rútínu og gæta þess að umhverfið minni á nótt.

Fólk í næturvinnu í áhættuhópi

Erla Björns­dóttir segir að fólk sem er í nætur­vinnu sé í sérstökum áhættu­hópi, en fólk þoli nætur­vinnu verr eftir því sem það eldist. Hún lumar á ýmsum ráðum fyrir þá sem fá ekki nægan svefn af þessum sökum, svo sem að forðast koffín og sykur. Hugræn atferlis­meðferð þykir vera góð þegar allt annað þrýtur. 

Vakta­vinna getur verið ákveðinn áhættu­þáttur þegar kemur að svefni. „Við erum öll með innbyggða líkams­klukku sem gerir ráð fyrir því að við sofum á nóttunni og vökum á daginn og starfsemi líkamans fúnkerar samkvæmt því. Stór hluti fólks vinnur auðvitað vakta­vinnu og það eru ekkert allir sem þola það og sýna rann­sóknir að fólk sem vinnur vakta­vinnu eða óreglu­legan vinnutíma sefur minna, eða að jafnaði um sjö klukku­stundum minna á viku, þannig að það má segja að það sé einn klukku­tími á sólar­hring sem það fær skertan svefn. Það eru fyrst og fremst nætur­vaktirnar sem hafa áhrif af því að fólk sefur yfirleitt ekki fullan svefn eftir næturvakt og hefur næturvakt gjarnan áhrif á bæði gæði og lengd svefnsins. Það er mikilvægt að það komi fram að sumir þola vakta­vinnu vel og skipta þar ýmsir þættir máli, en yngra fólk þolir vakta­vinnu almennt betur sem og karlmenn og þeir sem eru nátt­hrafnar að eðlisfari; svokallaðar B-týpur. Því fólki hentar betur að fara seinna að sofa og vakna seinna og það fólk virðist aðlagast því betur að vinna nætur­vinnu.“

Erla segir að vakta­vinna fari verr í fólk eftir því sem það eldist. „Þetta verður í flestum tilfellum erfiðara eftir því sem fólk vinnur vakta­vinnu lengur og þá sérstak­lega konur og spilar þar margt inn í svo sem tíða­hringurinn og flókið hormóna­kerfi kvenna. Margar rann­sóknir sýna að vakta­vinna hefur neikvæð heilsufarsleg áhrif á marga, eykur líkur á sjúkdómum, eykur svefn­vanda og svefn­lyfjanotkun verður meiri. Líkami okkar virkar best í ákveðinni rútínu og mikil­vægasta svefn­ráðið er að fara að sofa á sama tíma á kvöldin og fara á fætur á sama tíma á morgnana. Það er besta forvörnin við svefn­vanda. Það búa ekki allir við þann lúxus að geta gert það. Þegar maður er að vinna með svefn hjá vakta­vinnufólki, þá er hægt að lágmarka líkur á skaðlegum áhrifum vakta­vinnu með ýmsum hætti og meðal annars búa til ramma utan um þessa óreglu sem fólk er í þannig að það sé allavega að forgangs­raða svefni þegar fólk vinnur dagvinnu og þegar eru frídagar þannig að fólk fái góðan nætur­svefn þegar það hefur tök á því. Það er líka hægt að gera ýmislegt til að takmarka neikvæð áhrif nætur­vinnu, eins og til dæmis að fara vel yfir það hvað fólk er að gera á nóttunni þegar það er að vinna; forðast til dæmis sykur og koffín seinni part vaktar, ekki borða stóra máltíð þegar það kemur heim og ekki fara í ræktina; sumir keyra sig nefnilega kannski áfram á nóttunni á sykri og koffíni og klára svo kannski vinnuna, fara í ræktina, koma svo heim, fá sér stóra máltíð og fara svo að sofa. Þetta er allt andstætt því sem maður myndi gera á venjulegu kvöldi. Því er mikilvægt að reyna að innleiða hefð­bundna kvöld­rútínu inn í seinni hluta nætur­vaktar og sömuleiðis þarf að passa upp á að umhverfið þar sem sofið er eftir næturvakt líkist því þegar sofið er um nótt – vera til dæmis með eyrna­tappa, augn­hlífar og hafa myrkur og næði. Allt þetta skiptir máli af því að viðkomandi er líklega að sofa á skjön við aðra á heimilinu og samfélagið í heild. Svo er hægt að nota dagljósa­lampa til að stilla dægursveifluna þannig að það er margt hægt að gera til þess að aðstoða fólk sem vinnur vakta­vinnu til þess að lágmarka þessi neikvæðu áhrif.“

Fleiri ástæður fyrir svefntruflunum

Margar ástæður eru fyrir svefn­truflunum. „Sumt er eitthvað sem viðkomandi getur sjálfur unnið úr, en annað ekki,“ segir Erla Gerður, en þá þarf aðstoð fagmanna. „Það sem fólk þarf að gera er að skoða svefn­venjur sínar og bera virðingu fyrir svefn­tímanum, ekki drekka kaffi eða orku­drykki seinni partinn, ekki horfa á skjá stuttu áður en farið er að sofa og ekki vaka lengi fram eftir. Það þarf að hafa reglu og rútínu þannig að líkaminn geti starfað sem eðlilegast og þá á hann að geta stillt kerfin sín á góðan svefn. Þetta er það sem allir þurfa að gera. Stundum er það nóg og stundum ekki.

„Hreyfing, slökun og það að inn­leiða fastar venjur fyrr á kvöldin hjálp­aði mér mest. Fyrir utan að fara að sofa og vakna á svip­uðum tíma alla daga.“

Eitt af því sem við getum gert er að passa að ósjálfráða tauga­kerfið sem stýrir hjartslætti og fleiru fái ró. Við getum lært alls konar tækni til þess að slökkva á því kerfi, svo sem ýmiss konar öndunar­æfingar og slökun sem hægt er að iðka reglulega. Regluleg hreyfing bætir svefn og einnig er mikilvægt að hafa reglu á máltíðum og nærast vel og hæfilega. Þetta er bara þessi gamli, góði og heil­brigði lífsstíll, að sinna heilsunni og gefa kerfunum okkar hvíld, sem er alltaf grunnurinn. Og þá hefur líkaminn möguleika á að aðlaga sig og stilla kerfin þannig að við getum náð góðum svefni, en stundum þarf meira til.“

Stundum er svefninn ekki nægilega góður vegna truflunar af einhverju tagi. Þá þarf að skoða hvað truflar svefninn, en það gæti til dæmis verið verkir, svitakóf eða truflun úr umhverfinu, hvort sem það eru til dæmis börn, hrotur maka, erfiðir nágrannar eða birta. 

„Ef ekki er um að ræða utan­aðkomandi truflun sem hægt er að laga eða svefn­venjur sem hægt er að bæta, þarf að greina betur hvers eðlis vandinn er og þá leita aðstoðar ef vandinn er viðvarandi. Svefnlyf eru ekki lausn til að bæta svefn en þau geta hjálpað í gegnum ákveðin tímabil. Það á hins vegar að forðast langvinna notkun svefn­lyfja.“

Svefnlyfjanotkun aðeins skammtímalausn

Erla Björns­dóttir varar við því að svefnlyf séu notuð til lengri tíma. „Svefnlyf á ekki að nota lengur en í fjórar til sex vikur samfleytt og notkun umfram það hefur neikvæð heilsufarsleg áhrif. Ég hvet því fólk til að leita sér aðstoðar ef svefn­vandi er til staðar því að það á enginn að þurfa að fara svefnlaus í gegnum lífið með öllum þeim neikvæðu afleiðingum sem það hefur í för með sér.“

Hún hefur áður varað við því að of auðvelt sé að fá svefnlyf og of lítið sé um aðrar lausnir hér á landi. Í lok síðasta sumars kallaði Lyfja­stofnun inn undanþágulyf við svefn­vanda ungra barna, eftir að tvö ung börn voru lögð á spítala vegna ofskömmtunar lyfsins. Íslendingar eiga Norður­landamet í svefn­lyfjanotkun barna og hefur orðið mörg hundruð prósenta aukning þar á síðustu ár.

Aðspurð segir Erla Gerður ekkert eitt svar við því af hverju svefn­lyfjanotkun á Íslandi er meiri en í löndunum í kringum okkur. Það geti haft áhrif á svefninn að á Íslandi og fleiri löndum á norðlægum slóðum er bjart allan sólar­hringinn hluta ársins og svo ríki skammdegið á veturna. „Líkams­klukkan þarf að aðlaga sig að þessu og þetta getur verið hluti af skýring­unni. Svo vilja margir kenna því um að klukkan á Íslandi sé vitlaust stillt; að staðar­klukkan og líkams­klukkan séu ekki samstilltar. Það getur verið ein skýringin. Síðan er nátt­úrlega mikill hraði, spenna og streita á Íslandi og sumum finnst betra að taka svefn­töflu heldur en að gera breytingar á lífs­stílnum.“

Erla Gerður nefnir líka það sem kallast „svefn­truflun“ eða „insomnia“ á ensku. „Þá er viðkomandi lengi að sofna, eða lengur en í hálftíma, og vaknar oft á nóttunni eða vaknar miklu fyrr en hann ætlaði sér og er þá ekki útsofinn. Hugræn atferlis­meðferð getur hjálpað viðkomandi að bæta svefn og alltaf þarf að huga að góðum svefn­venjum.“ 

Kæfisvefn er einn svefn­sjúkdómanna og hann er fremur algengur og getur haft mikil áhrif á heilsu viðkomandi og líðan. „Ef grunur er um slíkt þá þarf að mæla það og meðhöndla vegna þess að við kæfisvefn verður mikið álag á líkamanum við að bisa við að anda þegar viðkomandi er sofandi. Þegar vöðvarnir slakna og öndunar­vegurinn fellur saman þá passar streitu­kerfið upp á að viðkomandi geti andað þannig að hann sé ekki í hættu á að kafna. Ef streitu­kerfið er í gangi mestan hluta næturinnar fylgir því mikið álag sem hefur í för með sér að líkaminn á erfitt með að endurnýja og viðhalda öllu því sem annars gerist þegar viðkomandi sefur.“

Mikilvægt að bera virðingu fyrir svefni

Í ljósi alls sem vitað er um mikilvægi þess að sofa, á fólk að bera virðingu fyrir svefninum, segir Erla Gerður. „Við eigum að gefa svefni þann sess sem honum hæfir og gera allt sem í okkar valdi stendur til að hann geti orðið sem bestur og leita aðstoðar ef það gengur ekki upp.“ 

Erla Björns­dóttir tekur undir og áréttar að svefn hafi svo ótrúlega mörg jákvæð heilsufarsleg áhrif bæði á lífsgæði, andlega líðan og heilsuna þannig að það er mikilvægt að setja svefninn í forgang, passa upp á þessa lífsstíls­tengdu þætti sem við vitum að hafa áhrif, reyna að vera með góða reglu og rútínu, takmarka skjá­notkun á kvöldin og draga úr neyslu koffíns, áfengis og sykurs. Ef fólk er komið með svefn­vanda þá er mikilvægt að leita sér aðstoðar; yfirleitt er hægt að laga svefn­leysi á nokkrum vikum með hugrænni atferlis­meðferð, sem er sú meðferð sem mælt er með sem fyrstu lausn við svefn­leysi.“ 

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár