Fasteignakaup og blóðugur fótboltaleikur

Ef þið elskið fótbolta, lesið þessa bók. Ef þið hatið fótbolta, lesið þessa bók. Ef þið hafið keypt eða selt íbúð, lesið þessa bók. Ef þið hafið leigt íbúð á ómann­eskju­legum leigu­markaði með alls konar dular­fullum meðleigj­endum, lesið þessa bók.

Bók

Gegn gangi leiksins

- ljóðskáld deyr
Höfundur Bragi Ólafsson
Bjartur
157 blaðsíður
Gefðu umsögn

Einu sinni bjó ég á Laufás­vegi í nokkur ár. Það gerði Bragi Ólafsson líka. Það gerði ljóð­skáldið Svanur Berg­mundsson sömuleiðis. Þið sjáið hann á forsíðu bókarinnar. Svanurinn kapp­klæddi. Þetta er alvöru svanur, þótt einu sinni hafi hann verið í manns­líkama. Hann er vopnaður bjór og fótbolta, með Fjallarefs­tösku á öxlinni og skrítna derhúfu á hausnum. Hausnum sem er fótbolti. Þetta er svanur sem hefur drepið mann, ljóðskáld sem drap mann og hætti að drekka á Litla-Hrauni.

Framan af fjallar þessi bók samt aðallega um fasteigna­viðskipti. Hjörtur og Droplaug eru að skoða íbúð systur Svans, íbúðina sem hann býr í núna. Þau vilja kaupa, Svanur vill ekki að íbúðin seljist, því þá á hann hvergi heima.

Við þekkjum þetta flest. Þau okkar sem höfum ekki keypt fasteign höfum leigt húsnæði dýrum dómum eða fengið að gista í húsnæði góðviljaðra ættingja. Við höfum hins vegar fæst upplifað jafn litríkt og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár