Farsóttarhús

Nú kann lesanda að þykja smámunasemi ráða skrifum, en þá er til þess að líta að hér er á ferðinni frábært rit um einstakt efni unnið af alúð og góðri yfirsýn. Ekki verður aftur gefin út bók af þessu tagi. Hér verður því að gera ítrustu kröfur til útgefanda en þær stenst höfundur að nær öllu leyti, skrifar Páll Baldvin um bókina Farsótt.

Bók

Farsótt

Hundrað ár í Þingholtsstræti 25
Höfundur Kristín Svava Tómasdóttir
Sögufélag
350 blaðsíður
Gefðu umsögn

Bók um Farsótt gefur Sögu­félagið út með styrk Starfs­launasjóðs fræði­manna, Reykja­víkurborgar og Miðstöðvar íslenskra bókmennta. Gripurinn er glæsi­legur útlits, rétt 350 síður í 17,5 x 23,5 sm broti, bókin er að hluta litprentuð, með ríflega hundrað myndum, einu innskots­blaði, heimilda- og myndaskrá, enskum útdrætti og nafnaskrá. Neðan­málsgreinar bæta upplýsingum við tilvitnanir og heimildir. Verkið er semsagt eins vandað og það getur orðið, efnið er nýstár­legur samsetningur samfélags­lýsingar og persónu­sögu með Farsóttar­húsið við Þing­holtsstræti sem ramma á hundrað ára tímabili frá 1884 til 1984 en á því tímabili gegndi húsið fjölþættu hlutverki í heilbrigðis­þjónustu lands­manna.

Höfundur þessa verks er Kristín Svava Tómasdóttir, sagn­fræðingur og skáld, og er sómi að verki hennar. Farsóttin var þegar ég fluttist í Þing­holtin orðin að hæli fyrir heimilis­lausa drykkju­menn. Þeir sáust lítið í efri hluta Þing­holtanna, drógust upp úr Kvosinni er líða tók að opnun og áttu þar vísa nætur­gistingu. Þeirra saga er fjórði hluti …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár