Fjárlaganefnd hættir við og felur ráðherra að útfæra 100 milljóna fjölmiðlastyrkinn

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar Alþingis hefur ákveðið að fela ráð­herra að ákveða hvernig auka 100 millj­ónum króna verði varið til stuðn­ings einka­reknum fjöl­miðlum. Í fyrri ákvörðun meiri­hlut­ans var þessum 100 millj­ónum gott sem lofað sjón­varps­stöð­inni N4, einu sjón­varps­stöð­inni sem er með höf­uð­stöðvar á lands­byggð­inni.

Fjárlaganefnd hættir við og felur ráðherra að útfæra 100 milljóna fjölmiðlastyrkinn
For­mað­ur­inn Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­kona Vinstri grænna, er for­maður fjár­laga­nefndar.

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar Alþingis hefur hætt við 100 millj­óna króna fram­lag til sjón­varps­stöðvar sem fram­leiðir eigin efni á lands­byggð­inni. Þess í stað er Lilju Alfreðs­dóttur menn­ing­ar­mála­ráð­herra falið að að end­ur­skoða reglur um rekstr­ar­stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla á lands­byggð­inni þannig að aukið til­lit verði tekið til þeirra sem fram­leiða efni fyrir sjón­varp. Þetta kemur fram í nýju nefnd­ar­á­liti fjár­laga­nefndar um fjár­laga­frum­varpið sem birt var á vef Alþingis í kvöld. Þar er vísað í umræðu í fjöl­miðlum í dag um styrk­inn.

Fyrri ákvörðun nefnd­ar­innar um að bæta 100 millj­óna fram­lagi á fjár­lögin vegna rekst­urs fjöl­miðla á lands­byggð­inni sem fram­leiða eigið efni fyrir sjón­varps­stöð kom nokkuð óvænt fram þann 5. des­em­ber síð­ast­lið­inn. N4 er eina sjón­varps­stöðin sem starfar á lands­byggð­inni en auk hennar fram­leiða Vík­ur­fréttir vef­þætti.

Í morgun greindi Kjarninn …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Eitt minnsta fjölmiðlafyrirtækið fær hæsta styrkinn. Er það vegna þess að eigendurnir eru Samherji og Kaupfélag Skagfirðinga?
    0
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Þetta er nú meira grínið þetta fjölmiðlaumhverfi orðið hefur kannski alltaf verið svona síðan í Geirfinnsmálinu dettur einhverjum í hug að tekið sé orðið fullt mark á þessu ríkisstyrktir fjölmiðlar sem kóa með helvítis kommaspillingunni sem er hreint út sagt skuggaleg í meira lagi
    0
  • Einar Már Gunnarsson skrifaði
    Meira ruglið og illa farið með almannafé.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu