Íslandsvinurinn og pullurnar í Phala-Phala

Cyril Ramaphosa, forseti Suður-Afríku, er í verulega slæmum málum vegna ásakana um að hann hafi misbeitt valdi sínu í tengslum við innbrot á búgarð hans. Ramaphosa, sem var kjör­ræðismaður Íslands til fjölda ára, varð fyrir því að reiðufé að andvirði hálfs milljarðs króna, var stolið í innbrotinu. Peningarnir voru geymdir undir sófa­pullum.

Sófaeigandinn frá Soweto
Sófa­eig­and­inn frá Soweto Cyril Ramaphosa, er fimmti í röð for­seta Suður-Afríku. Hann tók við emb­ætt­inu þegar Jacob Zuma hrökkl­að­ist að heita má úr því árið 2018. Mynd: AFP

Kvöld eitt í byrjun febrúar 2020 mætti þjónustu­stúlka á búgarðinum Phala-Phala í nyrsta héraði Suður-Afríku tveimur grímu­klæddum mönnum í einu af herbergjum íbúðar­hússins. Henni var sjáanlega brugðið. Ekki þó yfir því að þar væru komnir tveir innbrots­þjófar, heldur vegna þess hvar þeir voru staddir.

Þjónustu­stúlkan hafði nefnilega skipulagt innbrotið og sá nú að hjálpar­kokkar hennar voru að athafna sig í röngu herbergi. Hún þurfti því að leiðbeina þeim rétta leið. Hvar þeir fundu sófa. Og í þessum sófa, undir sófa­pullunum, fundu þeir það sem þeir leituðu að. 

Reiðufé í bunkum. Andvirði hálfs milljarðs íslenskra króna, að því er hermt hefur verið.

Svona hófst atburðarás sem hefur orðið til þess að forseti Suður-Afríku, Cyril Ramaphosa, berst nú fyrir pólitísku lífi sínu. Forsetinn, sem átti bæði búgarðinn og peningana sem stolið var þaðan, er nú grunaður um að hafa misbeitt valdi sínu til þess að reyna að ná höndum …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár