989. spurningaþraut: Leikkona með langan feril

989. spurningaþraut: Leikkona með langan feril

Fyrri auka­spurn­ing: Hver er leik­konan á mynd­inni?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hverrar þjóðar var rit­höf­und­ur­inn Dickens?

2.  Hvaða viku­dag var aðfanga­dagur í fyrra?

3.  Tvö ríki í Suður-Ameríku eru land­lukt, eiga sem sé hvergi aðgang að sjó. Þau eiga reyndar landa­mæri saman. Hvaða lönd eru þetta?

4.  Árið 1958 var frum­sýnt á íslensku leik­sviði erlent leik­rit um nærri því barn­unga stúlku en verkið var unnið upp úr dag­bók hennar. Hvað hét sú stúlka?

5.  Það var ung íslensk leik­kona sem lék stúlk­una og þótti fara á kostum. Leik­konan hefur átt langan og glæstan feril og er enn að, meira en 60 árum síðar. Síðast lék hún í kvik­mynd þar sem hún lék að vísu lík. Hvað heitir hún?

6.  Þessi ágæta leik­kona er reyndar að hálfu leyti upp­runnin í öðru landi en Íslandi. Hvaðan kom annað for­eldri hennar?

7.  Fræg jurt skipt­ist — að hyggju flestra fræði­manna — í þrjár und­ir­greinar og auk síns lat­neska aðal­nafns bera þær lat­nesku und­ir­heitin sat­via, indica og rudealis. Oftast er nú samt bara talað um þetta sem eina jurt. Fyrst er greint frá henni í miklu sögu­riti sem grískur sögu­rit­ari skráði um 430 fyrir Krist.  Þar segir frá því, í hneyksl­un­ar­tón, að hinn forni þjóð­flokkur Skýþa nýti þessa jurt í eins­konar gufu­baði. Hvaða jurt er þetta?

8.  Hinir fyrr­nefndu Skýþar voru miklir gull­smiðir og dverg­hagir en bjuggu víða í fornöld en virð­ast þó fyrst og fremst hafa verið upp­runnir í einu núver­andi ríki, þar sem nú gengur mikið á. Hvaða land er það?

9.  Skýþar og/eða frændur þeirra Sarma­tíu­menn eru oft sagðir hafa fundið upp til­tek­inn hlut sem olli bylt­ingu á ákveðnu sviði sam­göngu­mála. Það er reyndar óvíst að þeim beri sá heiður, en hvaða hlut er hér um að ræða sem auð­veld­aði fólki mjög að kom­ast milli staða? 

10.  Í hvaða frægu skáld­sögu kemur morð­ing­inn Rodion Raskolnikov við sögu?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða staður leyn­ist undir rauða depl­inum á þess­ari mynd?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Enskur.

2.  Laug­ar­dagur.

3.  Bólivía og Paragvæ.

4.  Anna Frank.

5.  Krist­björg Kjeld.

6.  Frá Færeyjum.

7.  Kannabis.

8.  Úkraínu.

9.  Ístöð.

10.  Glæp og refs­ingu.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Judy Dench í hlut­veri M í einni af nokkrum James Bond-myndum sem hún hefur leikið í.

Á neðri mynd­inni leyn­ist Fáskrúðs­fjörður undir rauða blett­inum. Sjá betur hér:

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MB
    Magnús Bjarnason skrifaði
    Anna Frank var sýnd í Þóðleikhúsinu. Ég fór sjálfur á þessa sýningu. Bróðir Kristbjargar var bekkjabróðir minn og annar bóðir hennar var skólabróðir minn líka, en tveimur árum eldri.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
5
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár