Ráðherrar meti sjálfir hvort þeir taki þátt í ráðstefnum með Samherjafólki

For­sæt­is­ráð­ur­neytið segir að þátt­taka ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands þurfi að stand­ast lög og siða­reglur ráð­herra. Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra tók nýlega þátt í mál­þingi með Þor­steini Má Bald­vins­syni, for­stjóra Samherja, eftir að þrýsti­sam­tök sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja báðu hana um það.

Ráðherrar meti sjálfir hvort þeir taki þátt í ráðstefnum með Samherjafólki
Ráð­herrar meti sjálfir For­sæt­is­ráðu­neytið segir að ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar þurfi sjálfir að meta hvort til­hlýði­legt sé að þeir haldi ávörp á ráð­stefnum með einka­að­ilum. Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra hélt nýlega ávarp á sama fundi og Þor­steinn Már Bald­vins­son, sem er með rétt­ar­stöðu sak­born­ings í Namib­íu­mál­inu. Mynd: Stundin / Davíð Þór

For­sæt­is­ráðu­neytið segir að ráð­herrar þurfi sjálfir að meta hvort þátt­taka þeirra á fundum og sam­komum hjá eink­að­ilum sé til­hlýði­leg eða ekki. Ráðu­neytið segir engar sér­stakar siða­reglur gilda um þetta. Þátttaka ráð­herr­ans þarf hins vegar að sam­ræm­ast siða­reglum ráð­herra en þar eru engin ákvæði um slíka þátt­töku, svo fram­ar­lega sem ekki er um boðs­ferð að ræða. „Það er almennt undir hverjum og einum ráð­herra komið að ákveða hvort hann eða hún vilji halda erindi á sam­komum á vegum einka­að­ila,“ segir í svar­inu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. 

Stundin spurði for­sæt­is­ráðu­neytið að því hvort þátt­taka Svan­dísar Svav­ars­dóttur mat­væla­ráð­herra á sjáv­ar­út­vegs­degi SFS, SA og Deloitte hafi verið eðli­leg í ljósi þess að Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, var einnig þátt­tak­andi á ráð­stefn­unni.

Þor­steinn Már er með rétt­ar­stöðu sak­born­ings í rann­sóknum …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÖI
    Örn Ingólfsson skrifaði
    Það er alveg dagljóst að Yfir Doninn með sína vildarvini sem skaffa milljónir inn í flokkinn, þá er það skiljanlegt að Yfir Doninn túngulipri geti ekki svarað beinum spurningum í einhverjum spurningaþætti hver átti að vera hvar! Þá er ágætt sem því miður að allir fréttamiðlar á Íslandi hafa ekki spurt don Bjarna um undirskriftir á skjölum í sambandi við Sjóvá í þá daga með tilheyrandi tapi fyrir alla Pabbi bað mig um að skrifa undir og don Bjarni samþykkti það sem pabbi sagði! Og ekki heldur eitthvað olíufélag einhverjir peningar þar sem hurfu ogeða félagi nafnbreytt með annarri kennitölu? Svona er þetta bara með blaðamenn og sjónvarpsspyrla á Íslandi sem þora ekki neinu út af hættu að missa vinnuna!! Og þá er kominn tími til að berja á Don Bjarna að samþykkja Nýju Stjórnarskrána alla! En núna er farið að krauma undir Katrínu og Sigurði Vegatolli, því Íslendingar eru löngu búnir að borga öll gjöld til Vegagerðar og Ríkissjóður skuldar Vegagerðinni 1450 milljarða í dag síðan 1991! Og borgum ennþá!
    1
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    Kleptocracy.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár