Eftirspurn eftir Íslandsbankabréfum þurrkaðist upp í aðdraganda einkavæðingarinnar

Nær engin velta var með bréf í Íslands­banka dagana í aðdrag­anda þess að 22,5 prósenta hlutur ríkisins í bankanum var settur í söluferli. Þá höfðu sjö lífeyris­sjóðir og 19 erlend fyrirtæki þegar fengið upplýsingar um að mögulega stæði til að selja hlut í bankanum. Þetta er nú til rann­sóknar hjá fjármála­eftirlitinu.

Enginn keypti
Enginn keypti Svo virð­ist sem eng­inn hafi viljað kaupa bréf í Íslands­banka dag­ana fyrir einka­væð­ing­una. Banka­sýslan full­yrðir að engar upp­lýs­ingar um fyr­ir­ætl­anir stofn­un­ar­innar hafi þó lekið. Mynd: Heiða Helgadóttir

Viðskipti með bréf í Íslands­banka stöðvuðust nær alveg eftir að markaðs­þreifingar Banka­sýslunnar hófust í aðdrag­anda einka­væðingar 22,5 prósenta hlutar ríkisins í bankanum í mars á þessu ári. Banka­sýslan fullyrðir að engar innherja­upplýsingar hafi lekið en Ríkis­endurskoðun sá ástæðu til að vekja sérstaka athygli á þessu á fundi með fjármála­eftirliti Seðla­banka Íslands sem er í sinni eigin sjálf­stæðu rannsókn á þessu og fleiru í tengslum við einka­væðinguna. 

Greining Ríkis­endur­skoðunar á heildar­veltu með hlutabréf í Íslands­banka og Arion banka sýnir að velta með bréf í þeim fyrr­nefnda hafi dregist verulega saman í aðdrag­anda markaðs­þreifingar saman­borið við veltu með hlutabréf Arion. Strax í kjölfar útboðsins fór hins vegar allt af stað og veltan varð margföld með bréf í Íslands­banka miðað við Arion banka. 

Fóru fram á trúnað við lífeyrissjóði

Á Íslandi voru það lífeyris­sjóðir sem fengu innherja­upplýsingar um söluna; Frjálsi lífeyris­sjóðurinn, Stapi, LSR, Brú lífeyris­sjóður, Lífeyris­sjóður verzlunarmanna, Gildi og …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íslandsbankasalan

FréttirÍslandsbankasalan

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Benediktsson, fyrr­verandi fjármála- og efnahags­ráðherra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þingsins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagnvart hverjum og einum kaupanda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera augljóst að ekki væri hægt að fylgja hæfis­reglum í sölu­meðferðinni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar í dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár