Sjallinn, Sólin og Sálin

Við sem viljum end­ur­lifa Akureyri 1996 fáum svo sann­ar­lega heil­mikið fyrir okkar snúð, skrifar Ásgeir H. Ing­ólfs­son í gagn­rýni um bók­ina Vængja­laus eftir Árna Árnason. Nefnir Ásgeir þessa stór­kost­legu lýs­ingu á Sjall­anum undir lok síð­ustu aldar: „Gólfið var stapp­fullt af fólki. Stemn­ingin raf­mögnuð. Helgi rennsveittur. Peppaður á svið­inu. Blikk­andi ljós. Graðar stelpur. Eru ekki allir sexý?“

Sjallinn, Sólin og Sálin
Árni Árnason Höfundur bók­ar­innar Vængja­laus.
Bók

Vængja­laus

Höfundur Árni Árnason
Bjartur
Gefðu umsögn

Vængja­laus byrjar árið 1996 á Akureyri. Þetta eru ár sveita­ball­anna, hátindur Sál­ar­innar og Sól­ar­innar og síð­ustu stór­veld­is­dagar Sjallans og rúnts­ins í akur­eysku skemmt­ana­lífi. Við áttum okkur þó fljót­lega á því að þessi saga er sögð á tveimur tíma­plönum, jafn­vel þótt það sé ákveð­inn dag­bók­ar­keimur stundum á text­anum þá eru hér stöku vís­anir í fram­tíð­ina, sem reyn­ist svo vera árið 2018. Nútími sög­unnar, stuttu fyrir kóf, tím­inn fyrir næstu umbreyt­ingu.

 

Enda er þetta saga um umbreyt­ingar, hvernig tím­inn og lífið breytir okkur – en um leið festir okkur, hvernig við end­ur­heimtum okkar gamla sjálf og týnum á víxl. Kafla­heitin segja okkur mest um takt sög­unnar, þau eru kunn­ug­leg frá forn­ald­ar­tækjum á borð við seg­ul­bönd og vasa­diskó og eru kafla­heitin ein­fald­lega til skiptis ► eða ◄. Fortíð eða fram­tíð, áfram eða aft­urá­bak. En hægt og rólega áttar maður sig á því að aðal­per­sónan Baldur hefur verið fastur á pásutakk­anum í milli­tíð­inni.

 

Tón­list­ar­vísun …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár