Siðferðispróf þúsaldarkynslóðarinnar

Klemman varðandi bóka­útgáfuna Auðlesin er þó mun áhuga­verðari. Þótt sagan sé samtíma­saga þá er bóka­útgáfan eins og frjókorn fyrir nálæga dystópíu, manni dettur helst í hug Veröld ný og góð Huxleys, þar sem öllum óþægindum er haldið í þægilegri fjarlægð.

Bók

Auðlesin

Höfundur Adolf Smári Unnarsson
Forlagið - Mál og menning
235 blaðsíður
Gefðu umsögn

Geta bækur skilgreint kynslóðir? Já, kynslóðin sem ég tilheyri er meira að segja nefnd í höfuðið á bók, Generation X eftir Douglas Coupland. Bækur þar sem höfundar gangast á hólm við eigin kynslóð eru nánast sérstakt bókmennta­form, þótt oftar en ekki verði kynslóða­tengingin til óvart eftir á.

Það er hins vegar klárt mál að Auðlesin er saga um kynslóð, eiginlega frekar en persónur. Aðal­persónurnar eru tvær, verkefna­stjórinn Bjartur, sem bjargar hunangs­flugum í beinni útsendingu á netinu, og síblanka hugsjóna­skáldið Nína Kristín. Þau skipta með sér köflum bókarinnar en þekkjast þó ekki að ráði.

Þetta eru sann­kallaðar erkitýpur. Bæði koma úr stöndugum fjöl­skyldum, en Bjartur sækir áfram í fjárhags­lega öryggið á meðan Nína Kristín er í þögulli uppreisn gegn eigin góðborgara­fjölskyldu.

Báðum er hins vegar annt um að vera góðar manneskjur – þótt það birtist á gjör­ólíkan hátt. Bjartur er nánast eins og gjörn­ingur um innistæðu­lausa góðmennsku. Hann …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár