Lögreglan segir að finna þurfi út hver tók ákvörðun um að hamla störfum fjölmiðla

Rík­is­lög­reglu­stjóri segir að til standi að funda með Isavia til að finna út hvar ákvörðun um að koma í veg fyrir mynda­tökur fjöl­miðla af brott­flutn­ingi hæl­is­leit­enda var tekin. Í til­kynn­ingu Isavia í gær kom fram að lög­reglan hafi fyr­ir­skipað það.

Lögreglan segir að finna þurfi út hver tók ákvörðun um að hamla störfum fjölmiðla
Myndað Lög­reglan vísar til þess í til­kynn­ingu sinni að fjöl­miðlar hafi getað myndað aðgerð­irnar á fyrri stigum, þó komið hafi verið í veg fyrir mynda­töku á Kefla­vík­ur­flug­velli. Mynd: Sema Erla

Rík­is­lög­reglu­stjóri ætlar að funda með full­trúum Isavia til að fara yfir hver hafi raun­veru­lega tekið ákvörðun um að beina ljós­köst­urum í átt að mynda­vélum fjöl­miðla til að byrgja sýn og koma í veg fyrir mynda­tökur. Blaða­menn Rík­is­út­varps­ins fylgd­ust með brott­flutn­ingi fimmtán hæl­is­leit­enda frá Íslandi til Grikk­lands, bæði í Hafn­ar­firði og svo fyrir utan athafna­svæði Isavia á Kefla­vík­ur­flug­velli. 

„Lögregla mun funda með ISAVIA í næstu viku í þeim til­gangi að fara yfir atvik máls­ins til að varpa ljósi á hvar ákvarð­ana­taka liggur“
úr svari emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar

Í til­kynn­ingu sem barst frá Isavia í gær kom fram að starfs­fólk á flug­vell­inum hefði komið í veg fyrir mynda­tökur fjöl­miðla að fyr­ir­skipan lög­reglu. Svo virð­ist sem emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra sé ekki sátt við þá útskýr­ingu en í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um málið segir að til standi að funda með for­svars­mönnum Isavia til að kom­ast að því hver tók ákvörð­un­ina. 

„Lögregla mun funda með ISAVIA í næstu viku í þeim til­gangi að fara yfir atvik máls­ins til að varpa ljósi á hvar ákvarð­ana­taka liggur,“ segir í svar­inu, sem síðan hefur verið sent öllum fjöl­miðlum. „Ekki stóð til að hindra störf fjöl­miðla en fjöl­miðlar höfðu mun greið­ara aðgengi að myndun aðgerða lög­reglu á fyrri stigum sama máls.“

Í til­kynn­ingu rík­is­lög­reglu­stjóra segir einnig að lögð sé rík áhersla á að fjöl­miðlar hafi gott aðgengi að störfum lög­reglu, ekki síður þeim verk­efnum sem eru sér­stak­lega krefj­andi.

Fréttastjóri krefst svara

Eftir að Rík­is­út­varpið greindi frá aðgerðum starfs­manna Isavia, þar sem fjórum bílum búnum flóð­ljósa­bún­aði var stillt upp gegnt blaða­mönnum frétta­stofu, sendi Heiðar Örn Sig­finns­son frétta­stjóri rík­is­lög­reglu­stjóra bréf þar sem hann krafði emb­ættið svara. 

„Fréttateymi RÚV var á staðnum, utan girð­ingar, og fékk ekki að sinna sínum störfum þar sem starfs­menn ISAVIA fylgdu fyr­ir­mælum lög­regl­unnar og skemmdu upp­tök­urnar. Ég lít þetta að sjálf­sögðu mjög alvar­legum augum enda man ég ekki eftir gróf­ari dæmum um aðgerðir lög­reglu gegn fjöl­miðla­fólki að störfum í seinni tíð,“ sagði hann í bréf­inu, sem birt var á Facebook-síðu Heiðars.

Ein spurn­ing­anna sem hann beindi til Sigríðar Bjarkar Guð­jóns­dóttur rík­is­lög­reglu­stjóra var: „Hvernig skil­greinir þú ríki þar sem lög­regla beitir aðferðum sem þessum til að koma í veg fyrir að fjöl­miðlar sinni sínu lýð­ræð­is­lega hlut­verki, nefni­lega frétta­flutn­ingi og eðli­legu aðhaldi við stjórn­völd?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu