Eru safnmunir þýfi?

Rannsókn á munum, sem sýndir eru á hol­lenskum söfnum, sýnir stóran hluta þeirra vera þýfi frá nýlendu­tím­anum. Yfirvöld í Indónesíu krefj­ast þess að menn­ing­ar­arfi þeirra verði skilað. Mörg höf­uð­söfn evr­ópskra stór­borga eru einnig full af menn­ing­ar­verð­mætum þjóða sem nú gætu gert sömu kröfur. Fræði­menn eru ósam­mála um lausn og benda sumir á óstöðugt ástand margra landa, til að mynda í Írak þar sem þús­undum muna var stolið af söfnum í ringul­reið­inni eftir inn­rás Banda­ríkj­anna árið 2003.

Eru safnmunir þýfi?

Rijk­smu­seum í Amster­dam er vin­sælasta safn Hollands, og þó víðar væri leitað. Það laðar árlega að sér um tvær og hálfa milljón gesta (fyrir Covid) og býr yfir meira en milljón safn­gripum frá öllum heims­hornum þó að aðeins lít­ill hluti þeirra sé til sýnis í einu. Stjórn­endum safns­ins barst beiðni frá indónesískum yfir­völdum fyrir nokkrum árum um að gera úttekt á upp­runa margra safn­muna og skila þeim sem reyn­ist óneit­an­lega þýfi, sér­stak­lega frá þeim tíma þegar Indónesía var hol­lensk nýlenda. Þeir fóru afar illa með inn­fædda og stálu öllu steini létt­ara til að flytja heim til Evrópu, líkt og svo margar aðrar evr­ópskar sigl­inga­þjóðir á nýlendu­tím­anum. Frá sext­ándu öld hafa Evr­ópu­menn farið ráns­hendi um hverja heims­álf­una á fætur annarri og lagt menn­ing­ar­arf ótal sam­fé­laga í rúst.

Martinne Gossel­ink, for­stöðu­kona sagn­fræði­deildar Rijk­smu­seum, sagði í við­tali við sjón­varps­stöð­ina al Jazeera að málið væri flókn­ara en það virt­ist í fyrstu og tók …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Thordis Arnadottir skrifaði
    https://www.npr.org/2022/10/15/1129146779/syria-mosaic-roman-era
    0
  • Thordis Arnadottir skrifaði
    https://www.theguardian.com/world/2015/jul/03/antiquities-looted-by-isis-end-up-in-london-shops
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár